<$BlogRSDURL$>

Thursday, October 31, 2002

Þetta er yndislegur dagur!!!!!

Þetta er einu orði sagt búin að vera frábær dagur. Ég fór í tölvutíma og þar kláraði ég skilaverkefnið í tímanum. Svo kom ég heim og það beið mín bréf frá skólanum. Að tilkynna mér að umsókn mín um framlengingu á prófstíma hefði verið samþykkt. Ég fæ 15 mín aukalega á hverjum klukkutíma, þannig að í 3 tíma prófi fengi ég um 3 klst og 45 mín. Sem er nú bara fínt, ég má líka taka með mér orðabækur. Ég verð að kaupa mér einhverja góða dansk/íslenska orðabók, ætti nú samt frekar að kaupa mér dansk/enska og sem er með ensk/danskri orðabók í líka. Því ég er alltaf í vandræðum að flytja texta í enskum bókum yfir á dönsku. Ég er líka í vandræðum oft að gera heimadæmi ef að orðin eru ekki í dansk/dansk rauðu gyldendalsbókinni. Já ég ég kaupi mér einhverja góða orðabók, sem ég get tekið með mér í prófin.
Það er bara allt að ganga upp hjá mér. Þetta er bara frábært líf. Er að fara að reikna efnafræði í kvöld, það er nú bara skemmti reikningur og ég kann það næstum því, svo að lífið bara leikur við mig í dag. Já og svo er ég löngu búin með stærðfræði skiladæmin sem ég á að skila eftir helgina. Þetta er yndislegt líf.



Wednesday, October 30, 2002

Hleypur þú þitt eigið hlaup?
Það er alveg ótrúlegt hvað ég er farin að koma með danska frasa yfir á íslensku og raða stundum setningunum vitlaust. Þegar ég er að segja frá einhverju sem tengist einhverju sem ég hef heyrt um eða séð eða talað um við einhvern á dönsku. T.d í dag var ég að segja frá því að það væru fleiri í bekknum mínum sem þoldu ekki eðlisfræðikennarann minn, ein stelpan í bekknum mínum sagði í gær að kennarinn hlypi bara sitt eigið hlaup ( hún sagði við mig " han løber fulstændig sit eget løb") og mér tókst að orða þetta svona skemmtilega yfir á íslensku. Það er einn kostur við að læra norsku, orðatiltækin eru mjög mörg, ef ekki flest eins og á íslensku. Þú getur t.d. sagt á norsku að þegar kötturinn er úti leika mýsnar inni og fleiri svona íslensk máltæki sem eru enn í norskri tungu. En hérna eru máltækin allt öðruvísi, t.d. þegar ég var nýkomin hingað út, þá sagði ein bekkjarsystir mín við mig að þegar að hún hefði veriðð í búlgaríu hefðu verið þrjár dauðar hænur í sænginninni, og ég bara ojjjj, þvílíkur viðbjóður, hún var líka búin að lýsa því hvað það hefði verið mikil fátækt þarna, en þarna gerði ég mig nú að fífli, hún útskýrði fyrir mér að þegar að maður segir á dönsku(fjónsku) að í sænginni séu þrjár dauðar hænur, þá er fólk að meina að sængin sé svo þung.
Ég er nú að verða betri í dönskunni þó það gerist, hægt, en það bara gengur ekkert með framburðinn, fjónbúar tala svo hratt og svo er þetta bara svo óskiljanleg mállýska hérna, ég efast um að ég nái þessu nokkurn tímann, en ég er nú farin að skilja næstum því allt og það er orðið ekkert mál að fylgjast með í skólanum allan daginn, fyrstu vikuna þá kom ég bara heim með hausverk og var rosalega þreytt.
Jæja ætla að segja þetta gott í dag. Hafiði það öll gott og endilega sendið mér póst, kveðja Bryndís

Tuesday, October 29, 2002

Það duttu nú af mér allar lýs eftir að ég tók þessa könnun en ég er víst:


Who are you?

Einhvern veginn er þetta nú ekki ég! Eða hvað finnst ykkur?

Monday, October 28, 2002

Síðan mín er nú farin að taka á sig fallegri mynd! Það er komin gestabók þar sem að þið getið skrifað í og sett á landakort hvar þið eruð í heiminum. Einnig er komin vefkosning þar sem að þú getur valið hvernig þér líkar við síðuna mína. Þið sem viljið vera neikveið verið ekkert að kjósa. En ég er víst sú eina sem er búin að kjósa og auðvitað valdi ég excellent. Vonandi á síðunni minni eftir að fara batnandi, en það gengur hægt þar sem að það er alveg nóg að gera.

Var ég búin að segja ykkur frá leiðinlega leiðinlega allra leiðinlegasta eðlisfræði kennara sem ég er með í einni eðlisfræðinni sem ég er í. Ég er sko í tveimur eðlisfræði tímum því að ég er ekki með A niveau í eðlisfræði ( sem þýðir það að ég er ekki búin að taka trilljón eðlisfræði áfanga, lét mér næga mína 3 skylduáfanga á nátturufræðibraut). En alla veganna þá er þessi eðlisfræði ætluð sem aðstoð við þá sem að eru ekki að meika erfiðari eðlisfræðina og þetta aðstoðarfag er bara til áramóta. En kennarinn minn í aðstoðarfaginu er bara mesta fífl í heimi. Hann nennir ekki að reikna dæmi, hann nennir ekki að gefa okkur svör og segir svo ef hann drullast til að reikna eins og mesta lagi eitt dæmi í tíma, " jeg håber det kommer ingen spørgsmål om dette eksampel, det er alt for let til det" eða það kemur eitthvað eins og " jeg gider sko fanden ikke ad gøre det her, det er alt for let til det". Hann semsagt einu orði sagt nennir ekki að vera þarna. Hann er aldrei búin að kíkja á dæmin fyrirfram, í öllum öðrum tímum eru kennararnir búnir að reikna dæmin fyrirfram og geta þá svarað fyrirspurnum um dæmin, en neinei ekki hann Alex.

Ég og Sólveig köllum hann semsagt djöfulinn ( hann er sko dökkhærður, heitir einhverju svona spænsku nafni, og er frekar brúnn) en stærðfræði kennarann okkar sem að við erum í stærðfræði dæmatímum hjá í tímunum á undan eðlisfræði hjá djöflinum, köllum við engilinn ( hann er ljóshærður, er alltaf búin að reikna heima ) og hann spyr hvort að við viljum ekki spyrja um eitthvað og hvort allir séu nú ekki pottþéttir á þessu. Hann reynir að útskýra eins vel og hann getur og er búin að reikna öll dæmi heima áður en að hann kemur í tíma hjá okkur. Þeir eru bara algjörar andstöður, eins og Svarthöfði og Luke.

Núna í þessum töluðu orðum er Gummi að gera pastasalat, með pepperoni og grænmeti, svo að ég ætla að setja punktinn yfir i-ið og leggja á borð.

Sunday, October 27, 2002

Þetta er nú voða viðburða lítill dagur, er bara að reyna að æfa mig að gera þessa síðu flottari, vonandi verður hún orðinn skárri þegar þú kemur hingað næst.

Saturday, October 26, 2002

Þetta verður víst aðallega dagur bókanna. Enda er nóg að gera og mér leiðist aldrei því ég þarf alltaf að læra og þegar maður þarf að vera gera eitthvað er svo auðvelt að finna sér eitthvað að gera svo að það er alltaf allt á fullu hjá mér. Ég er búin að vera að læra síðan í morgun og ég ætla að læra til 15.00 og þá ætlum við að hjóla niður í bæ og horfa á fótboltaleik ( yeahh, mitt uppáhald eða þannig). En svo ætlum við eftir leikinn að fá okkur eitthvað að borða niður í bæ og skella okkur svo í bíó. Það verður nú stuð, erum reyndar ekki búin að ákveða myndina ennþá, enn það verður vonandi einhver góð. Kannski það verði bara einhver skemmtileg kvikmyndagagnrýni hérna á morgun, ég skal nú samt passa mig að kjafta ekki of miklu ef það er ekki byrjað að sýna myndina heima.

Friday, October 25, 2002

I ´m a barbie girl in a barbie world. Ég og Barbie virðumst bara alltaf eiga ætla að eiga samleið ekki nóg með það að við eigum sama afmælisdag, þó hún sé nú 20 árum eldri, þá eigum við alltaf stórafmæli saman, áttum tildæmis stórafmæli þann 9.03.1999 þá var ég 20 og hún 40 ára. Við eigum líka saman stafinn, báðar byrjum við á B. Þá var bekkurinn minn með fredagsbarinn í skólanum, en það er alltaf á hverjum föstudegi bar eftir skóla og þá er einn eða tveir bekkir saman með barinn og skreyta hann og skenkja bjór. Minn bekkur var með hann í dag, ég var nú samt ekkert með í undirbúningi og átti á engann þátt hlut í vali á þema barsins. En hvað haldið þið að hafi verið valið? Já að sjálfsögðu hún vinkona mín hún Barbie. Það var allt skreytt með bleiku ( ég á fleira sameiginlegt með Barbie, við fílum báðar bleikan lit). og svo var líka silfrað skraut, og flestir í bekknum voru í barbie og Ken búningum, rosa flott, það var reiðhestabarbie, hún var í hestakeppninsbúining, alveg eins og ridingBarbie sem er á tilboði í Føtex núna, hún var sko í stígvélunum, þröngu buxunum með hatt og í jakkaog svo nátturulega máluð eins og barbie, rosa flott, svo var HjúkkuBarbie, það var space Ken, afroBarbie( sem var nátturulega lang best, það var einn bekkjarfélagi minn sem er með rosalega krullað og mikið hár og svo var hann í pilsi og hlýrabol og málaði sig svartan, og setti slaufu í hárið, það var eiginlega uppáhalds barbie mín. Svo var sko Ken með bleikt bindi og alles, svo var Barbie frá 1975 hún var rosa flott, og svo var línuskautabarbie og FairyKen ( hann var á nærbuxunum einum saman og svo með vængi og töfrasprota, ég gæti endalaust haldið áfram en þetta var rosalega flott og vel skreytt hjá þeim, flottasti fredagsbaren sem hefur verið síðan ég byrjaði í skólanum. Hjartablöðrur út um allt, allir veggir skreyttir með bleiku og silfruðu og svo bleikir dúkar. Síðan var keppt í tyggjókúlublæstri og sjálfsögðu var bleikt tyggjó.
Þetta var bara hið besta mál og ég og Barbie höldum áfram að vera jafn tengdar og nánar vinkonur. !!!!!!

Thursday, October 24, 2002

Hafiði einhvern tímann velt fyrir ykkur öllu skrýtnu fólki sem maður sér í strætó heima. Oft alla veganna hefur maður kímt út í annað. Hérna í Odense getur maður lokað augunum og verið allt í einu komin til japan ( hojjj jahhh úhhh, það búa sko um 30 japanar hérna á kollegiunni og það eru alltaf einhverjir í strætó og þeir tala allan tímann). Svo geturu maður í næsta andartaki verið komin til póllands ( en það er einn pólskur skiptinemi hérna á kollegiunni, sem reyndar talar ensku, en hún talar svo mikið, hún talar stanslaust alla leiðinna og manneskjan sem situr við hliðina á henni kemst aldrei að, hún talar frekar mikið um kærastann sinn og hún er ekki viss hvort hún elski hann og blablabla.). Síðan getur maður ímyndað sér að maður sé komin í eyðimörkina, lokar augunum þegar arabarnir eða svörtu múslimarnir ( sem konurnar ganga í svona síðum skikkjum og eru huldar alls staðar nema andlitið, og oft frekar vond svitalykt af þeim og karrylykt einhver,) maður einfaldlega gæti verið komin eitthvað allt annað bara að loka augunum finna lyktina og hlusta. Svo stundum er maður bara í danmörku í strætó og þá er það bjórlykt sem maður finnur og danska sem maður heyrir. Það er ótrúlegt hvað maður getur oft fundið vonda bjórlykt í strætó. Þó þetta séu vondar lyktir sem maður finnur í strætó og skrýtin tungumál sem maður heyrir, þá einhvern veginn er þetta gott efni í dagdrauma.
Svo stundum er maður vakin hrottalega af dagdraumum og verður vitni að þvílíkum kynþáttafordómum í strætó. Flestir færa sig einn tveir og þrír þegar kona með barnavagn kemur og ef ekki þá kallar strætóbílstjórinn upp og skipar fólkinu að færa sig, en þegar múslimsk kona kemur inn með barnavagn kemur stundum ( eiginlega of oft) fyrir að fólki er nokkuð sama strætóbílstjórinn skitpir sér ekki af neinu og enginn stendur upp ( eru sko svona sæti sem er hægt að taka upp og niður og maður á að færa sig ef barnavagnar koma, svo þeir komist betur fyrir og svo geti mömmurnar sest og haldið í vagnana.
Reyndar finnur maður líka fyrir þessu úr hinni áttinni, allir standa upp fyrir gömlum konum en múslimakarlarnir láta sér nú ekki detta það í hug, láta oft eins og þeir heyri ekki í þeim ef þær eru að byðja um sæti. Þeir líta niður á konur. Danir líta niður á múslima ( það hefur víst orðið verra síðan eftir 11.september).
Eftir 11.september í fyrra fögnuðu múslimar hérna í Odense á götum úti, keyrðu í bílum með fána og flautuðu og sungu, þeir voru reyndar handteknir og látnir vita að við gleðjumst ekki að óförum annara og við sýnum Bandaríkjamönnum samúð ( ég var nú ekki á staðnum þar sem að ég var á Krít, þar varð ég bara var við hernaðaræfingar Nato meðan ég lá í sólbaði).
Ég vildi óska þess að það væru ekki svona miklir fordómar. Ég lendi ekki í miklum fordómum hérna en það kemur fyrir, ég er alla veganna með ljósa húð og er álitinn svona eins og frændi dana, en ég verð að segja það að ég myndi ekki vilja vera af öðrum menningarheimi og búa hérna í danmörku. Ekki heldur myndi ég vilja að Íslensk menning og tunga myndi drukkna eins og það virðist vera að gerast hérna, ég alla veganna heyri ekki oft dönsku í strætó.

Wednesday, October 23, 2002

Jæja þá ætla ég að koma mér upp almennilegri bloggsíðu. Já og þá er ákkurat allt tómt hérna uppi, gjörsamlega hef ekkert að skrifa um. Var frekar góður dagur hjá mér, kornfleks í morgunmat( nei ég ætla nú ekki að gerast svona slæm, skrifa bara meira hérna seinna inn þegar andinn grípur mig.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?