<$BlogRSDURL$>

Saturday, November 30, 2002

Jólahlaðborð

Ég er að fara í jólahlaðborð í kvöld með bekknum mínum. Ég reyndar hlakka nú ekkert rosalega til þar sem að allt sem er á boðstólum er ég með ofnæmi fyrir, semsagt það er aðallega rúgbrauð, síld, álegg og eitthvað svona jukk sem ég get ekki borðað og fisk álegg. Svo er reyndar að ég held stundum purusteik líka, þannig að ég fæ kannski eitthvað fyrir minn snúð. En aðalatriði kvöldsins er svo um hálf snafsaflaska á mann og ef ég á að giska þá verður það viðbjóðurinn Gammel dansk ( jakk). Svo verður bjór og allt þetta kostar 150 kr danskar eða um 1800 kr íslenskar og mér finnst þetta viðbjóðslega dýrt því fyrir 150 kr danskar er hægt að gera svo mikið hérna. En ég verð bara að borða vel áður en ég fer. En jólahlaðborð eru svona hinn alþjóðlegi framhjáhaldadagur í Danmörku, makar eru bannaðir og það er bara flæðandi áfengi út um allt, og Danir eru svona frekar léttari á bárunni en við, allir með öllum og alveg sama þó þeir séu giftir eða í sambandi. Ég meika ekki alveg að horfa upp á þetta, verð alltaf svo reið, en það eru víst hættir flestir í bekknum, getur nú varla orðið mikið meiri inbreeding í bekknum. Það eru (Nadine, Julie, Henriette, bíddu hverjir voru það fleiri?? það var alla veganna lesin upp 4-5 nöfn í verklegri lífrænni efnafræði sem voru hætt, rosalega getur maður gleymt fljótt)
En Sólveig á nátturulega eftir að gera sitt, hún er ekki búin að núlla ein einasta danska gaur, hún sem á alltaf eftir að komast að því hvað þeir segja þegar ......
Ég er alveg viss um að Sólveig gerir stóra hluti í kvöld, enda býr hún á kollegiunni þar sem jólahlaðborðið verður.

Svo var hún Gunna vinkona mín að setja inn mynd af sér og Gísla, og litlu frænku hans, ekkert smá sæt mynd, en mér sýndist Gunna vera búin að lita hárið ljóst, getur það passað Gunna? Eða er ég að sjá vitlaust, myndin er reyndar svoldið dökk og erfitt að sjá.

Friday, November 29, 2002

Fyllibyttur í strætó!

Ég lenti í ansi fyndnu í strætó áðan. Sko það er rosalega mikið um fyllibyttur í strætó í danmörku sem geta verið alveg óþolandi, vond lykt af þeim og þeir eru allir á spjallinu. Ég lenti í einni sem var heyrnarlaus, jámm ég sagði heyrnarlaus, hann reyndi að spjalla við alla og það á táknmáli, eins og maður eigi ekki nógu erfitt með að skilja dönsku, á maður þá að fara að skilja danskt táknmál líka. Ég er reyndar búin að taka einn kúrs í íslensku táknmáli, og þar lærði ég að þetta er ekkert eins í öllum löndum, ég héllt það sko, að það væri bara eitt svona allshliðar táknmál fyrir heiminn. En það er oft allt öðruvísi.
En snúum okkur aftur að fyllibyttunni, hann semsagt veifaði höndum og gretti andlitið á sér í 360 gráður, og reyndi að ná sambandi við alla, ég lét nú bara sem ég sæi hann ekki, ég héllt sko fyrst þegar ég settist niður en hann var ekki fyrir framan mig, heldur fyrir framan þá sem voru fyrir framan mig, að hann væri að spjalla við vin sinn, sá reyndar setti bara alltaf þumalinn upp í loftið svo ég var fljót að sjá út að það var ekki táknmál. En semsagt, í öllu getur maður lent í danmörku. Sara lenti í löggunni áðan.

Við vorum sko, ég, Sara og Sólveig að versla í Bilka alls konar jóladót, ég keypti eina pínu oggulitla jólastjörnu og pott undir hana sem er svona jólapottur með jólahreindyri standandi við hliðina, ég keypti svona dagatala kerti, pott fyrir það og slaufur og skraut til að skreyta með, svo keypti ég líka aðventu krans og kerti og skreytti hann, núna er orðið rosalega jólalegt hjá okkur. Bara algjör jól, og mér fannst þetta vera frekar dýrt eða um 180 kr danskar, en ég er viss um að þetta allt hefði verið dýrara heima. Þið ættuð bara að sjá hvað það er sætt og fínt hjá okkur núna. Bara komin jól næstum því.

Thursday, November 28, 2002

Dúllan hún mamma!
Mamma var sú eina sem svaraði við bón minni um að setja mynd af sér í myndaalbúmið mitt, en ég er núna búin að færa hana í aðalalbúmið myndina svo þið getið öll skoðað mynd af henni mömmu minni. En hún er sko á síðu nr 2, það eru tvær síður í myndaalbúminu. En þessi mynd var tekin af henni í vor, hún er semsagt algjör dúlla hún mamma mín og nú getið þið líka fengið að sjá hvað hún er mikil dúlla. En mér þætti vænt um að fá fleiri myndir, hér með skora ég á alla milli lands og sveita, að setja inn myndir.

Wednesday, November 27, 2002

Ekkert blogg, bara vinna í skýrslu, skil ekki alveg hvað er þetta með mig og kennara sem góðkenna hluti hjá mér og hætta svo við í tímanum sem þeir skila hlutnum. En efnafræðiskutlan góðkenndi skýrsluna hjá mér og Sólveigu en hún var bara " kun lige godtkendt" sem er 4,45 hækkað upp í 4,5 og þú rétt slefar á prófinu, en hún hætti svo við, við þurfum að skila henni aftur eftir viku, og úff, við vorum svo ánægðar með hana síðast og svo var bara allt ömurlegt. Jæja er farin að sofa er farin að telja skýrslur í staðinn fyrir kindur á kvöldin þegar ég er að reyna að sofna.

Monday, November 25, 2002

Myndaalbúm
Ég var að setja upp myndaalbúm, þar eru ýmsar myndir, meðal annars myndir af nýjasta fjölskyldumeðlimnum henni Daníelu, hún er að verða 1 árs núna í desember, ég sá hana glænýja í fyrra, en hef ekkert séð hana síðan. Enda hef ég líka ekki verið á Íslandi síðan í janúar á þessu ári. Daníela er dóttir hennar Hólmfríðar frænku, ég sá myndir af henni á heimasíðunni hennar Silju frænku . En endilega allir sem ég þekki, setjið myndir af ykkur inn í albúmið mitt, mig langar að eiga myndir af allri fjölskyldunni og öllum vinum og vandamönnum. Þið getið sett sjálf myndir í albúmið mitt.

Linkar


Jæja þá var ég að taka til í linkunum mínum og bæta aðeins við í þá, hef alltaf verið á leiðinni en það er víst alltaf nóg að gera. En ef þér finnst þú vanta þá bara láta vita í shout outinu. Endilega bara að tjá sig þar.

Sunday, November 24, 2002

5 glös, 2 diskar, og hellingur af dóti!!!!

Já hver hefði trúað því að ég væri að kvarta yfir því að einhver annar væri að brjóta oft. Ég veit ekki hvað oft um ævina ég hef brotið hluti. En hver hefði trúað því að Gummi væri verri en ég, en hann er það. Síðan við fluttum hingað inn erum við búin að endurnýja öll glös næstum því, hann braut áðan 2 diskinn, nú eigum við bara 4 matardiska og semsagt það verða ekki fleiri en 4 í mat í einu hjá okkur. Við sem eyddum ekkert smá pening í leirtau í haust og það er smám saman allt að hverfa. Hver sagði að allt þegar þrennt er, honum skjátlaðist. Ég er bara búin að brjóta eitt glas, og nú sé ég alveg foreldra mína og Önnu brosa í annað. Ég veit ekki hvað ég hef brotið mikið um ævina heima hjá foreldrum mínum. Ég held ég hafi lika brotið ein 5 glös heima hjá önnu. En Gummi er verri en ég, hvað ætli hann hafi brotið mikið um sína ævi. Ég gleymi því aldrei þegar að pabbi var núbúin að skúra ég ég fékk mér brauð með helling af kavíar og pabbi sagði mér að fá mér disk , ég gæti misst brauðið í gólfið, ég sagði neinei, ég labba bara með þetta að borðinu, ég er með disk þar. En auðvitað missti ég brauðsneiðina á gólfið og kavíar út um allt, ég hef aldrei séð pabba minn eins reiðan á ævinni, pabbi verður nú ekki oft reiður. Jú hann varð einu sinni rosareiður, ég var einu sinni flengd, en það var bara meira svona hræðsla held ég, ég gleymi því aldrei, var kannski 3-4 ára veit ekki hvað ég var gömul, ég vaknaði og klæddi mig í stuttbuxur og stígvél og fór ein út í snjóinn. Ég man nú ekki hvort það var mamma eða pabbi sem voru reið þá, man bara að þau voru alveg brjáluð og ég var flengd og ég skildi ekki afhverju. Kannski er ég að blanda einhverjum sögum saman hérna, mamma og pabbi geta nú bara sett í shout outið og tjáð sig um það. Það rennur voða margt í eitt í svona sögum frá því að maður er lítill.
En þið verðið bara að koma með glös og diska ef þið ætlið að vera í mat hjá okkur.
Jólatívólí!!!!

Það var rosalega gaman hjá okkur í gær í Kaupmannahöfn. Þrátt fyrir úrhellisrigningu, en við erum búin að læra það að regnhlífar eru ekkert hallærislegar hérna í danmörku, svo við vorum frekar þurr nema fæturnar voru alveg rennandi blautar. Við röltum fyrst strikið og upplifðum jólastemmingu þar. En svo hittum við Heimi og Írisi við tívolíið og fórum á julemarkaðinn í tívolíinu. Þetta var einu orði sagt æðislegt jólaljós út um allt, jólaskraut til sölu, jólamatur, vantaði svolítið jólalög. En það voru jólalög inn í jólalandi og þar voru líkar seldar eplaskífur og jólaglögg, ég og Íris fengum okkur heitt súkkulaði og eplaskífur en Gummi og Heimir létu sér nægja Glöggið. Jólaglöggið var eins og viðbjóður á bragðið fannst mér, heitt rauðvín með einhverju jukki í botninum og smá slettu af portvíni.

En já æbleskiver er ómissandi hlutur jólanna hér í danmörku, en ég bjóst við að þetta væri eitthvað eplajukk og þorði ekki að smakka, en viti menn þetta eru kúlur en ekki skífur og þær bragðast eins og kleinur. Rosalega gott, svo dýfir maður æbleskiverne i sultu og flórsykur, og ég verð bara að viðurkenna að eftir þetta eru æbleskiver orðið voðalega jólalegt í mínum huga.

Eftir rölt í tívólíinu og allir orðnir holdvotir, búnir að sjá hvernig brjóstsykrar eru framleiddir, búin að kaupa krydd í poka, kaupa límmiða á jólakortin. Og sjá öll jólaljósin í tívólínu, en það var æðislegt allt uppljómað með þvílíkum skreytingum. Fórum við heim með Heimi og Írisi og þau buðu okkur upp á hamborgara og franskar. Sem var mjög gott og kryddað með nýju kryddi úr tívolíinu, en við keyptum líka svoleiðis krydd ( mongolian barbeque) og það var sjúklega gott.

Semsagt ég mæli með að allir skreppi í tívolíið ef þeir eiga leið um kaupmannahöfn frá 15.nóv til 28.desember.

Friday, November 22, 2002

Afmælisboð

Ég stend víst ekki við það sem ég sagði áðan að ég ætlaði ekki að blogga fyrr en á sunnudag næst. Ég sko bara varð að segja ykkur frá því hvað ég er glöð að mér var boðið í afmæli. Mér líður svona eins og í sex ára bekk, mér var boðið í afmæli hjá einni í bekknum mínum. Ég fékk boðsmiða í líffræði tíma í dag. Og nafnið mitt var meira að segja skrifað rétt, eða sko næstum því, skrifað Bryndis.
Ég ætla að láta boðskortið flakka, en sleppa heimilsfanginu vill nú ekki alveg setja þetta á netið í heild sinni en það er svo hljóðandi:

Hej Bryndis
I anledning af at jeg fylder 20 år, holder jeg fødselsdagsfest lørdag den
14. december kl 19:30
Da jeg ikke bor specielt stort, bliver det uden spisning, men der vil dog være varme æbleskiver, med hvad dertil hører. Jeg giver et par kasser øl, resten må i selv medbringe.
Adressen er:
leyndo

Jeg håber vi ses til en sjov og hyggelig fest.
Varme julehilsner
XXXX

S.U. senest den 11.december
Tlf. xxxxxxxx

Þetta verður mín fyrsta danska afmælisveisla og ég bara hlakka til. Ég er líka ekkert smá ánægð að vera talin hluti af bekknum, ég og Sólveig grófum okkur nefnilega þá gröf að tala saman íslensku, í staðinn fyrir að tala bara saman dönsku frá upphafi. Við erum svona svoldið sér á báti í bekknum, en þau eru ekki alveg búin að gleyma okkur. Þannig að ég fæ að upplifa ekta danska jólastemmingu með eplaskífum og bjór, og ég hlakka svo til.


BROS

Já það er ótrúlegt hvað ég skil lítið í dönskum máltækjum, ég er alltaf að lenda í því að fólk er eitthvað að segja við mig í strætó en ég skil ekki alveg hvað þau eru að meina. Ég er bara farin að brosa og segja já, nenni ekki að segja ha lengur, skil hvort eðer ekkert máltækið þó fólk segi það aftur, ég skil orðin en ekki meininguna hjá fólkinu. Gummi er samt að læra nokkur svona í vinnunni. Eitt er nú samt eins og á Íslandi " det er bare mig som rugler" ég er að rugla. En ef þú bara brosir bara nógu mikið þá skiptir engu máli þótt þú skiljir ekki. Nú skil ég afhverju sómalska stúlkan sem ég vann með í noregi brosti svona mikið, hún skildi ekkert hvað við vorum að segja, stundum hló hún líka rosahátt en það átti ekkert að vera fyndið sem fólk var að tala um, var kannski eitthvað alvarlegt og hún héllt það væri brandari. Ég er alveg eins og tælendingarnir heima ég bara brosi og kinka kolli.

Ég fór sko enn eina strætóferð dauðans í dag. Gummi er að vinna frameftir í dag, og ég fór beint eftir skóla að versla inn fyrir vikuna, með troðfulla skólatösku og keypti 3 fullapoka, kassa af mandarínum og hmm..... svo hófst vandamálið......hvernig á ég að koma þessu í strætóinn. En það tókst en það voru allir að tala við mig, eitthvað að kommenta á hvað ég væri með mikið og ég fékk þetta líka mikið af alls konar málsháttum, ég skildi svona upp og niður í þessu en bara notaði brosið. Það er alltaf svo mikið af einmanna eldra fólki í strætó eða bíða eftir strætó sem er svo ánægt að hitta einhvern og það samkjaftar ekki, þannig að ég kemst upp með það bara að brosa og kinka kolli, einstaka sinnum segi ég "hvad" ef að þetta var spurning, ég er orðin ansi góð í því að heyra hvort fólk er að spyrja eða bara fullyrða, þó ég skilji ekki allt, en ef þetta er spurning kemur " vaaaeeeed" frá mér og þá endurtekur fólkið og ég næ því oftast.

Já ég er alveg sjúk í mandarínurnar hérna, ég keypti kassa áðan í bilka á 26 kr. mmmmmmm.......... og ég sko borðaði svona 5 bara á leiðinni heim. Svo er ég búin að borða nokkrar síðan ég kom heim. Þetta eru sjúklega góðar mandarínur. Ég fékk smá smakk hjá Söru í dag og ég bara varð að fara að kaupa mér mandarínur, svo er sólveig búin að vera með mandarínu æði undanfarið, og ég hef alltaf verið á leið að kaupa mandarínur. Svo ég bara gat ekki látið kassann vera, bara ætlaði mér að koma honum heim. Ég fór þetta á þrjóskunni, maður fer sko ansi langt á henni. Ég veit ekki um neinn annan sem myndi láta sér detta það í hug að taka svona mikið einn í strætó.

Ég er að fara í saumaklúbb í kvöld hjá stelpunum á kollegiunni, hann verður reyndar ekki á kollegiunni núna, verður hjá einni sem bjó hérna á kollegiunni en er flutt hérna rétt hjá. Ég ætla reyndar ekki að vera lengi, þarf að vakna í fyrramálið til að læra. Svo erum við að fara til köben á morgun, ætlum í jólamarkaðinn í tívólíinu, það er víst rosa skemmtilegt að fara þangað, er allt skreytt, jólaljós út um allt. Ég hlakka rosalega mikið til, við förum um leið og Gummi kemur heim úr vinnu. Þá er bara strikið tekið á lestarstöðina og svo köben, verst er bara hvað það er dýrt að taka lest yfir stórabeltið. Það kostar um 750 kr fyrir okkur bæði fram og tilbaka, en það kostar að fara frá odense til Austurríkis 1200kr fyrir okkur bæði, ekkert smá dýr þessi blessaða brú, hún var víst dýr í byggingu en vegatollarnir þar er viðbjóðslegir.

Jæja, þá kemur væntanlega ekki pistill frá mér fyrr en á sunnudag, þá skal ég segja ykkur frá jólatívólíinu.

Thursday, November 21, 2002

Tölvur eru ekki vinur minn í dag! Netkerfið hérna í skólanum er ekki að meika shit
Já ég ætlaði að vera rosadugleg í kvöld að rumpa bara þessu tölvuverkefni af sem við eigum að skila í eftir 3 vikur, vikunni sem við förum heim. En neinei það er ekki hægt að vista núna, tölvukerfið er í rúst og allt sem ég og Sólveig gerðum er bara horfið, púff, ekkert smá pirrandi. Við sem ætluðum að vera svo duglegar og vera með allt á hreinu í næsta tíma hvað við ættum að spyrja að. Nei okkur varð ekki kápan úr því klæðinu. Núna er ég að fara heim og læra og svo slappa af eftir lærdóminn.

Wednesday, November 20, 2002

einn litlir tveir litlir þrír litlir kubbar, 4 litlar 5 litlar 6 litlar baunir

Svona voru 4 tímar í verklegri líffræði hjá mér í dag, var sko verkefni í erfðafræði. Og við vorum að gera alls konar tilraunir á hvað gerist ef X mörg gen eða allel blandast saman á tilviljanakenndan hátt eða að hluta til ekki tilviljannakenndan. Semsagt við vorum með yfir 2000 kubba í dag að leika okkur og 5 liti og hver litur var eitt gen, við semsagt vorum í legoleik í 2 tima. Síðan fengum við að fara í tölvu með forriti sem reiknar út svona líkindareikning og búa til 50 ættliði af dýri af eigin vali, ég og sólveig völdum Superman, það var eitt af valmöguleikunum í tölvunni, einnig geturu búið til dýr bara eins og þú villt. Svo næsta dýrategund sem við völdum það voru hestar, svo fygldumst við með tölvunni láta þá maka sig af tilviljun. Síðan seinasta tilraunin sem við gerðum var að telja baunir og reikna út líkur. Svaka stuð. Mér leið eins og ég væri komin aftur í 6 ára bekk í lego, samt þægilegt tilfinning að vera í skóla að leika sér í einhverjum svona tilraunum og þurfa ekki að skila skýrslu, semsagt all fun and games. Og ég skil núna miklu betur það sem við vorum að lesa um.

Í dag er ákkurat mánuður þar til að ég og Gummi komum til Íslands. Semsagt mánuður og 5 klt, það er nú ekki langt, það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt hérna. Vikurnar bara fljúga áfram, allt of hratt því að það er próf fljótlega. En það er nú bara eitt próf allt hitt metið í verkefnavinnu og ég er komin með 3 einingar í verkefnavinnu, eina í stærðfræðiskiladæmum, eina í lífrænni efnafræði og eina í eðlisfræði. Semsagt bara eitt próf í janúar og þá verð ég búin að standast þessa önn, en aðal prófin eru í vor, kölluð fyrsta árs próf og maður fær ekki að halda áfram á annað ár nema að vera búin að standast þau öll.

Ég er búin að finna meira sem mig langar í jólagjöf, það eru fleiri vinadvd diskar ég á einn, langar í fleiri finnst þeir alveg brilliant. Svo var eitthvað annað en ég er búin að gleyma því. Já svo langar mig rosalega að fá send sendibréf. Eina manneskjan sem sendir mér bréf er Amma mín. Það er ekkert smá yndislegt að fá bréf frá henni. Ég og Gummi lesum þau saman og okkur finnst þau æðisleg, Amma er reyndar á fullu að sauma púða núna, held hún sé að sauma púða handa mér og vona að hún sé líka að sauma dúk. Gaman að eiga svona hluti sem Amma hefur gert, ég á einn púða eftir hana en hann er heima, hann er rosaflottur með engli á. Ég valdi hann reyndar sjálf en hún saumaði hann. Ég ætla að taka hann með mér heim eftir jól og vonandi fleiri. Svo á ég líka einn dúk frá henni, hann er alltaf á stofuborðinu. Ég hlakka ekkert smá til að hitta ömmu mína um jólin, enda að verða komið ár síðan ég sá hana seinast.

Monday, November 18, 2002

Mín fyrsta eining í dönskum háskóla er komin í hús!!!!!!!

Já þá er mín fyrsta eining komin, ég er búin að vinna líka ansi mikið fyrir henni, þetta er indledende fysik A, semsagt svona hjálparfag fyrir Fysik A sem ég er í og próflaus áfangi, eingöngu metin á verkefnaskilum, ég er semsagt búin að skila öllu og sá sem ég og Sólveig kölluðum djöfullinn sagði í dag tilhamnigju við mig og ég væri búin að standast kúrsin, þá breyttist hann nú í pínulítinn engill, en hann átti samt engan þátt í því að ég náði þessu, ekki baun í bala. Hann er bara versti kennari sem ég hef nokkurn tímann haft.

Ég fór á valfundinn áðan, ég misskildi víst eitthvað þetta val dót, en ég fékk að vita það á fundinum áðan að maður ætti að velja ákveðið eftir því í hvaða fag maður ætlaði á næsta ári. Þar sem að ég ætla í Biomedicin þá þarf ég að taka IT2 ( framhald á tölvukúrsnum sem ég er í) og svo þarf ég að taka laboratoriekurs i molykylær biologi og biokemi ( verður örrugglega skemmtilegt), ég þarf síðan að taka efnafræði laboratorie øvelser. Svo held ég áfram í Matematik og Fysik og Biology eftir áramót, ég verð semsagt meira í tilraunum eftir áramót, eða í staðinn fyrir efnafræði þá verða tilraunir í sameindalíffræði og lífefnafræði, sem hljómar nú bara virkilega spennandi finnst mér.Svo verður áframhald á efnafræði tilraunum sem ég og Sólveig vorum að klára skýrslu um. Ég er ekkert smá fegin að þessi skýrsla er búin, þessir útreikningar tóku frekar langan tíma og mikla orku frá manni

Já ég var næstum því búin að gleyma að ég, er svoldið svona skoðanafrík sko, ég þarf alltaf að segja hvað mér finnst, þó ég sé í 200 mann hóp og kunni ekki tungumálið ég læt það ekki stoppa mig. Nei, það virðist ekki vera vandamálið hjá mér. Við vorum beðin í dag um að koma með skoðanir á náminu og gefa tillögur um það sem betur mætti fara. Ég hlustaði á fullt af fólki segja sína skoðun, en enginn sagði mína skoðun, svo ég bara varð að koma henni sjálf á framfæri. Við sko förum ekki í próf í Matematik og Fysik fyrr en í Júní á næsta ári og mér finnst að það gæti nú verið eitthvað æfingapróf eða hlutapróf í janúar, svona aðeins til að sjá hvar maður standi hvort maður sé á réttri leið eða sé bara algjörlega að missa marks í náminu og bara kolfalli í Júní, þá væri nú betra að fá smá aðvörun í janúar og vita hvar maður stendur.


Bloggfiles
Ég bloggaði í gær, ekkert smá dugleg, þvílík hugleiðing en púff, það hvarf, ég gerði post og publish en það gerðist ekkert,pósturinn fór eitthvað en ekki á réttan stað spurning hvort þú hafir hann nokkuð í fórum þínum, það hvarf líka shout outið mitt en það kom aftur í leitirnar. Ég er mikið búin að vera að velta einu fyrir mér, ég er ekkert rosalegur tölvuséní. En sko þegar að ég skipti um template þá hvarf allt sem að ég hafði verið með svo að ég náði aftur í html textann fyrir shout outið, og síðunni þar sem ég náði í það er texti sem að ég bara copy paste, og þá komu upp öll gömul shout out. Hvar vistast þessi shout out? Á bloggsíðunni? Ef svo er hvar á bloggsíðunni? Þetta er svoldið að vefjast fyrir mér, þannig að ef þetta er vistað einhvers staðar, þá hlýtur að vera að hægta að eyða því út eða eitthvað. Ef einhver snillingurinn getur frætt mig um þetta endilega tjáðu þig í shout outinu. Já svo er ég að verða algjört tölvuséní tölvunámið hér í dönskum háskólanum er krefjandi, ég er farin að gera kúnstarinnar allar hluti, eg er að fara að velja fyrir næstu önn á eftir, er að velta fyrir mér tölvum, eða forritun, hmm... yrði samt kannski svoldið mikið álag, ég veit að það ætlar enginn í bekknum mínum í tölvur, eru alveg komin með nóg eftir þessa önn. Ég er mikið að pæla, kemur bara í ljós á eftir. Er að skella mér á fund, og finna eitthvað sniðugt til að læra á næstu önn, adios Bryndís

Saturday, November 16, 2002

Morgunhress!!!!!!

Já ég er sko aldeilis morgunhress í dag. Fór að bera út fyrir kl 05.00 i morgun með honum Gumma mínum. Gummi er búin að bera út tvær seinustu helgar, en þetta er seinasta helgin hans. Hann var ekki með neina vinnu nema hjá bænum þegar að hann fékk þetta tilboð um að bara út alla laugardags og sunnudagsmorgna kl 06.00. Þá hefði hann getað sett auka skattkortið. En hann fékk aftur vinnu og er því ekki með neitt skattkort hjá blöðunum og þá er tekin 60% skattur af svo að það borgar sig ekki að bera út, hann fékk vinnu þar sem hann var í nóvemberkaktussnyrtingunni, núna er hann að pakka inn nóvemberkaktusum, skreyta lítil jólatré í blómapottum, sem er svo selt eins og heitar lummur í búðum eins og bilka og føtex. Hann fær alla veganna vinnu næstu 4 vikurnar og hann er bara í óstjórnlegu jólaskapi, enda í jólaskreytingum og undirbúningi hvern dag, í fyrradag kom hann heim með tvíkynhneigðan nóvember kaktus, helmingurinn var með ljósum blómum og hinn helmingurinn með bleikum, er semsagt ósöluhæfur þannig að Gummi fékk að taka hann með sér heim. Svo í gær kom hann með bækling með sér heim, með allar tegundir af litlu jólatrjánum í blómapottum, hann fær afslátt á því og kom með bæklinginn heim svo við gætum nú valið okkur jólatré saman ( n.b. það er bara rétt nóvember).
Við komum svo við í bakaríi kl 06.00 þegar við vorum búin að bera út, keyptum okkur ýmsar kræsingar og svo hjólaði ég heim og Gummi hjólaði í vinnuna. Núna ætla ég að lesa moggann og vísi.is á netinu og leggja mig svo smástund áður en lærdómurinn hefst.

Friday, November 15, 2002

Loksins loksins er komin helgi!!!!!!

Það er bara allt á fullu í skólanum. Ekki tími fyrir neitt annað en svefn og skóla og heimanám síðustu daga. En ég vona að helgin beri eitthvað aðeins skárra í för með sér. Við ætlum að salta skýrslugerð yfir helgina erum komnar með allt nema svona fínustu fínpússun og ætlum að gera það eftir skóla á mánudaginn. Við erum orðnar nokkuð sáttar við hana, það er bara spurning hvort leiðbeinandinn okkar verði jafn sáttur, við bara krossum fingur og vonum það besta. Hún reyndar lofaði okkur að hún myndi ekki draga okkur niður fyrir málfars og stafsetningarvillur. Danir eru svo ligeglad með tungumálið sitt. Danir eru bara almennt lélegir í stafsetningu, þeir taka líka bara ensk orð beint inn í málið sitt, norðmenn hafa þó fyrir því að stafa ensku orðin yfir í norsku, danirnir taka þau bara beint.
En það hefur alveg bjargað okkur að window er á dönsku í skólanum og er með leiðréttingar forrit, það hefur lagað mikið af vitlausum endingum á orðum og vitlausri stafsetningu.
Svo er ég að byrja í nýju fagi á miðvikudaginn næsta, þá verða verklegir tímar í líffræði, populations genetik, veit ekki alveg hvernig við förum að því að gera tilraun þar, hmm.... kemur bara skemmtilega á óvart vonandi. Þar ætlum ég og Sólveig að sansa ( þið sem vitið ekki hvað er að sansa, þá veit ég það eiginlega ekki fullkomnlega sjálf, en Sólveig notar þetta orð í tíma og ótíma og þetta er fyrsta orð sem mér dettur í hug á eftir orðinu Sólveig). skýrsluna bara strax eftir tímann, það verður bara svona einnar skýrslu tími, ekki eins og skýrslan sem við erum að gera núna sem er skýrsla eftir mánuð í tilraunatímum.
En jámms, á ég að reyna að útskýra sansa betur. Sólveig talar um sansa í staðinn fyrir hözzla, sansa er víst líka að gera upp, það getur held ég líka þýtt að mála sig og gera sig fínan, minnir að hún segi það þegar hún er að fara eitthvað út og ætlar að hafa sig til. Ég er ekki alveg að játa að þetta sé íslenska, en þetta er víst akraneska. Sólveig kemur semsagt frá akranesi og er bekkjarsystir mín, námsfélagi, djammfélagi, msnfélagi, hmm.... bara svona altmuligt kona hérna í Odense.

Wednesday, November 13, 2002

Skýrsla!!!!!!!!!
Ég hef bara eitt að segja í dag og það er Almen efnafræði skýrsla. Ég er búin að vera að vinna í skýrslunni síðan kl 8.00 i morgun og klukkan er nuna half sjö. Ég fer heim kl sjö og þá er ég að fara heim og beint á fund varðandi skemmtiatriði á þorrablóti íslendingafélagsins. Ég er víst búin að koma mér í einhverja vitleysu þar. Síðan er bara vaknað snemma í fyrramálið og haldið áfram með skýrsluna, við erum komnar með 6 síður og margt eftir í skýrslunni, við erum bara búnar að lýsa aðferðum, og gera næstum því alla útreikninga, og þeir líta bara svona helvíti vel út. Eru alveg innan þeirra marka sem þeir áttu að vera. Við eigum semsagt eftir að gera áklyktanir, teori ( eg veit samt ekki alveg hvað við getum skrifað hérna, erum bara að mæla magn NO2 i loftinu). Erum komin með formála og allt svoleiðis, en hana vantar svona final touch, við þurfum bara að leggjast í hana næstu daga. Það verður lítið gert af því að læra næstu daga annað en þessi blessaða skýrsla, því að ef við fáum hana ekki góðkennda þá er bara bæbæ próf í janúar. En ef þið eruð með eitthvað sem má alls ekki vanta í efnafræði skýrslu, þá bara endilega setjið það á shout outið. P.s þetta er mín fyrsta danska skýrsla svo þetta tekur ekstra langan tíma hjá okkur, en er allt á góðri leið, verður alla veganna tilbuin fyrir skilafrestin næsta þriðjudag.

Tuesday, November 12, 2002

Frídagur!!!!!!

Ekkert smá gott að eiga frí, nægur tími til að læra og samt nægur tími fyrir frí. Er að fara niður í bæ að ná í lestarmiðana okkar þegar við förum heim. Erum með flugmiðana í höndunum þannig að á eftir þegar við verðum komin með lestarmiðana, verðum við bara næstum því lögð af stað :O)


Monday, November 11, 2002

Ég er í frekar vondu skap í dag!!!!!!!

Ég missti af eðlisfræði tíma í dag, því að við vorum rekin út úr stofunni í eðlisfræði , við áttum ekkert að vera með tíma í dag samkvæmt stundatöflunni og ég fór upp í netcafe öst sem er fyrir ofan eðlisfræðina, en svo kom Sólveig 5 mín of seint. Og þá voru allir fyrir utan stofuna og það endaði með því að hinn hópurinn fór í aðra stofu, það átti samt ekkert að vera tími hjá okkur. Þannig að ég missti af tímanum, ég var farin, var á hæðinni fyrir ofan. Hann skilaði okkur skiladæmum í eðlisfræði og ég fékk þau góðkennd í fyrstu tilraun í fyrsta skipti, ég hefði getað verið ekkert smá glöð, en nei nei ég var með einn b lið vitlausan og eina smá hugsanavillu í öðru dæmi, ég hugsaði sem að tveir hraðar væru í sömu átt en þeir voru í mótstaða þannig að seinni hraðinn sem ég útreiknaði var með - formerki sem ég var ekki með. Ég veit ekki hvernig dæmin hjá sólveigu voru, en hún bar þau eitthvað saman og kvartaði við kennarann afhverju hennar væru ekki góðkennd og sýndi honum mín, þannig að hann strikaði yfir að mín væru góðkennd. Ekkert smá mikið helvítis djöfulsins fífl og Sólveig græddi ekkert á þessu. Ég þarf semsagt að skila þessum eina b lið aftur, í hinu þarf ég bara að skilgreina hraðann sem í sitthvora áttina, annars var það rétt. Ef ég skila því ekki fæ ég ekki próftökurétt. Ég er alveg að deyja ég er svo pirruð á þessu. Ég fór svo í eðlisfræðifyrirlestur og spurði þar prófessorinn ( fyrirlesarann eða hvað sem hann er) hvort að leiðbeinendur geti bara gefið hvaða einkunn sem er, sýndi honum dæmin mín og spurði hvort þetta væri eðlilegt að þau væru ekki góðkennd. Í öðrum bekkjum er fólk að fá góðkennd dæmi sem eru allt niður í 55% rétt. Kennarinn sagði að hann hefði beðið leiðbeinendurnar um að gefa einkunnir sjálfir því það væri erfitt að samræma í dæmum svona einkunnagjöf, mér finnst frekar skítt að vera með næstum því allt rétt og fá ekki góðkennt þegar að aðrir geta verið með 55% rétt og fengið góðkennt, því þessi dæmi skipta miklu máli, ef að ég fæ ekki allt góðkennt fæ ég ekki próftökurétt í vor, ég hef reyndar frest þangað til í næstu viku. Get fengið að sjá frá einhverjum í öðrum hóp, helvítis kennarinn minn getur ekki drullast til að gefa mér hint um hvað sé vitlaust. Gaf svarið, eins og það hjálpi mér eitthvað ef aðferðin er vitlaus hjá mér, hann er bara með einu orði sagt fífl.
En kennarinn bað mig að tala við leiðbeinandann og ef það yrðu einhver fleiri vandræði með þessi dæmi að tala við hann aftur, hann héllt ég væri að misskilja og var rosalega hissa að þetta væri ekki góðkennt, spurði bara, var þessi ekki bara þessi eini liður sem ekki var góðkenndur, voru dæmin ekki í heild sinni góðkennd, neinei það virkar ekki þannig leiðbeinandinn minn vill hafa þetta 100%, ég sá alveg svipinn á Kennaranum þegar hann spurði um nafnið á leiðbeinandanum, ég svaraði nafnið og ég sá svona ohh var það hann. En Alex er búin að lofa okkur að hann leiðbeini okkur ekki aftur á næstu önn, sem betur fer. Hann neitar að reikna fleiri en eitt dæmi á töflunni í tímanum, ég get alveg eins verið heima og borað í nefið en að mæta í tíma hjá honum. Ég hef ekki viljað kvarta undan honum hingað til, hann er aldrei undurbúinn undir tíma og er bara fífl, ég sagði það nú ekki í dag, spurði bara hvort honum fyndist þetta vera eðlileg einkunnagjöf og hvort hann væri ekki með einhverjar reglur fyrir leiðbeinendur sínar, en svo var ekki. Mér finnst að það verði nú að samræma þetta eitthvað milli hópanna, ekki eðlilegt að það sé svona mikill munur, einkunnir eiga ekki að fara eftir geðþótta leiðbeinandans.

En smá góðar fréttir. Ég er næstum því komin með próftökurétt í lífrænni efnafræði, er semsgat komin upp í 73 prósent af öllum dæmum, eru sko tólf dæmi og maður þarf að ná 75 prósent af öllum dæmum, ég er búin að fá 6 sem eru 100% og eitt 95% og eitt 90%, semsagt þarf bara að skila einum dæmum upp á 20% og þá er ég komin með próftöku rétt og það eru 4 dæmi eftir, þannig að það þarf eitthvað mikið að gerast ef ég næ því ekki.

Svo fékk ég aftur stærðfræðidæmi góðkennd. Það er allt á góðri leið hjá mér nema ég bara HATA eðlisfræði leiðbeinandann, hundur gæti kennt betur og dæmt betur um einkunnir.

Sunday, November 10, 2002

Ég er komin með þennan líka fína teljara sem telur niður þangað til ég kem heim. Fékk þessa fínu hugmynd á síðunni hjá Önnu vinkonu. Leist svona líka vel á þetta. Þá getið þið alltaf kíkt á síðuna mína til að sjá hvað það er langt þangað til ég kem. ( ég verð að viðurkenna það að það er komin smá jólafílingur í mig!!!!!
Jólin eru komin í danmörku!!!!!

Ég var víst ekki búin að segja ykkur að jólin eru komin hérna í danmörku. Fyrsti snjórinn féll þann 8.11.02 ( og þá meina ég jólabjórinn kom, þanig er hann auglýstur, fyrsti snjórinn fellur þann 8.11.02 kl 20:59). Það átti að vera gervisnjór og læti og gefin jólabjór, en það var svo rosaleg rigning á föstudaginn að það var ekki neinn gervisnjór, en ég fékk að sjá bláa tuborgjólasveina og sveinkur og bara alls konar fólk. Það var svo brjálað veður að það var enginn rosaleg stemming í bænum, en venjulega er víst meiri stemming. Við hjóluðum niður í bæ í brjálaðri rigningu, ég blotnaði í gegn eiginlega bara áður en ég lagði af stað, en ég var vel klædd, klæddi mig í úlpu og innanundir henni var ég í vindjakkanum mínum ( heldur smá regni) og svo var ég í regnbuxum, ullarsokkum, með húfu og trefil og hettur og ég veit ekki hvað, í tvennum þykkum peysum og bara vel dúðuð eins og íslendingum sæmir, en allt kom fyrir ekki mér varð ísskallt og ég blotnaði í gegn, er líka ekki með neitt bretti á hjólinu mínu, svo að ég varð rennandi vot gegnum allt, nærbuxurnar var hægt að vinda líka. En við misstum sko af fyrsta trukknum kl 20;59 vorum í öðrum enda bæjarins, við vissum ekkert hvar þetta yrði, héldum að bíllinn myndi keyra um, en svo ákváðum við að hjóla aðeins um og fundum þá einn vörubíl með jólasveina og jólabjór og svo var jólalimmúsina með svona tuborg ( playboy kanínum). En við vorum of sein, jólabjórinn var búin, við snérum súr í bragði við, en stoppuðum aðeins og spjölluðum og þá sáum við annan tuborg vörubíl og eltum hann nátturulega á hjólunum ( vorum sko 4, ég, Gummi, Sólveig og Gunnhildur). Síðan stoppar hann fyrir utan einn pöb og bendir okkur á að fara inn. Við fórum inn og þar vorum við látin syngja eitt Tuborg jólalag og svo fengu allir bjór. En jólalagið er svona:

Lag:Jinglebell
1)
Julen står for dør'n
For voksne og for børn
Hvis du er en julemand
Så er det ud af kanen.
Rudolf han er klar.
pas på julestress
Hvad er det vi venter på?
Gid vi et tegn må få

Omkvæd:
Julebryg Julebryg
Tuborg Julebryg.
Så bli'r ventetiden da,
nå'et man nyder - ja.

Julebryg Julebryg
Tuborg Julebryg
Tag og nyd den med en ven.
Nu er det jul igen.


2)Sneen falder blid
den søde juletid
Der skal kravlenisser op,
og stjernen er i top.
Rudolf han er klar.
on nissen han er rar
Han har giver i sin sæk
han gi'r det hele væk.

Omkvæd...............

3)Julen den er glad,
Med sul og jule mad
og det store kolde bord
musik og jule kor
Nissen rundt i ring
Der mangler kun en ting
Hvor bli'r Julebrygge af?
Den kommer nu - Hurra

Omkvæd..............

Viðlagið eða Omkvæd er sungið hástöfum og sko ég get eiginlega ekki lýst því hvernig á að bera þetta fram en það er allt öðruvísi en menntaskóla danskan sem maður lærði, alla veganna hérna á fjóni þá er sagt julebrygg eins og hmm... get bara ómögulega sagt hvernig það er, maður verður eiginleg að heyra það en ætla að reyna júllebruggg( og sko segðu brug eins og þú sért að byrja aftast í kokinu og reyna að ná slími úr hálsinum, eða sko ert með munnskol í munninum, svona bbbbkkkrrrrrruuuukkkk hljóð).

Þetta er annars mjög skemmtilegt lag og ég skal syngja það fyrir ykkur þegar ég kem heim um jólin :))))
Svo er sko farið að selja núna í búðunum svona tuborg jólasvuntur, tuborg jólatrefla, tuborg jólabindi, tuborg jólahúfur, tuborg jólaeyrnaskjól, allt frekar flott sko. Gunnhildur á víst svoleiðis nærbuxur, ég hef nú ekki séð þær seldar hérna. En það eru alla veganna komin jólin, jólabjórinn er komin. Það eru greinilega líka komin jól hjá Söru, því það er komið líka jólakók, Gummi var að koma úr nærbútikkinni með jólakók : )

Tuborg ønsker alla en glædelig jul og godt Tub'år


Saturday, November 09, 2002

Skunkar!

Ég var í lífrænni efnafræði á fimmtudaginn. Þar var verið að fjalla um sömu efnasambönd og skunkar gefa frá sér, eru frekar illa lyktandi lífræn efnasambönd. Síðan því miður þá gaf hann okkur sýnishorn. Þetta er sko rosalega tæknilegur og flottur skóli sem ég er í, þegar að ein taflan ( af 6) , miðjutaflan niðri er lift upp, þá kemur í ljós svona stinkskápur, og þar inni var hann með ýmis skemmtileg efnasambönd. Meðal annars tvær tegundir af sömu ætt og skunkalyktin. Ég fann samt ekkert fyrst lyktina en svo labbaði hann með efnið um salinn og þá fékk maður nú aldeilis að finna fyrir viðbjóðslegri lykt, mér fannst þetta lykta eins og kaffi, en hann sagði að þetta væri eins og brennt gúmi á lyktinni, alla veganna þá var þetta bara ógeðsleg lykt.

Það er sko rosalegur aðstöðu munur hérna og í háskólanum heima. Alla veganna miðað við í háskólabíó, þá eru þetta mikið betri fyrirlestrar salir og svo er betri aðstaða til bara alls held ég. Það er meðal annars sundlaug í skólanum, rosa fín hef ég heyrt, hef nú ekki orðið svo fræg að fara í hana, en við fáum ókeypis í hana á vissum tímum, þegar það er ekki kennsla þar.

Skólinn er líka örlítið stærri en háskólinn, meðal annars er gata milli tveggja bygginga og þær tengdar með glergöngum yfir götuna, það eru meðal annars 2 strætóstoppistöðvar við skólann í sitthvorum endanum. Ég hef ekki tölu á öllum inngöngum en þeir eru margir. Svo sáu ég og sólveig á föstudag að á einni byggingu voru svona 10 gervihnattadiskar, við vorum nú ekki alveg vissar hvaða institut var þarna, en okkar besta hugdetta var fjölmiðlafræði á staðnum, en svona þegar maður veltir þessu betur fyrir sér, held ég að þetta hafi verið eðlisfræði deildin, því þetta var í þeim enda sem stærðfræði og eðlisfræði og svona vísindagreinarnar eru, félagsfræðideildarnar eru við aðallinganginn hinu megin í skólanum.

Maður skreppur ekkert svona milli enda skólans, þetta er ansi langt labb. Starfsmennirnir eru allir á svona litlum faratækum með palli, maður verður oft að passa sig því þeir eru á fleygjferð um ganga skólans. Allt í einu heyrir maður bara bíb og svo þarf maður að hoppa til hliðar, þá þýtur einn starfsmaðurinn framhjá. Það eru rosalega margir starfsmenn í skólanum. Það er eiginlega ekki hægt að bera saman Suddansk Universitet og Háskóla Íslands, fyrir það fyrsta eru ekki allar deildar háskólans heima með húsnæði, t.d. er líffræðideildin einhvers staðar niður á grensás og svo stundum upp í VR I eða II, fólk þarf að flakka á milli bæjarhluta til að komast í tíma, svo er starfsemin dreifð um stórt svæði, Háskólinn heima er eiginlega dreifður út um allt. Verð eiginleg að segja að Háskóli Íslands stenst engann veginn samanburðinn, enda fær hann frekar lítið fjármagn. Maður sér að menntamálin heima eru ekkert rosalega ofarlega á baugi heima. Það er bara tvennt ólíkt að vera námsmaður heima og hérna, hér fær maður afslátt í bíó, afslátt í strætó, það er afsláttur á öllu eiginlega fyrir námsmenn og eldra fólk.

Thursday, November 07, 2002

Blogg æði!!!!!!

Það er bara algjört bloggæði að ríða yfir sveitir núna! Litla systir mín sem er 6 ára er komin með bloggsíðu, reyndar setti bróðir okkar hana upp og það eina sem er komið á hana so far er jólagjafaóskalisti. Ég varð nú svoldið glöð að lesa hann, því jólagjöfin frá mér er á listanum hennar, ég man nú ekki hvar hún var síðan hennar og var óvart búin að eyða emailinu frá Brynjari með síðunni hennar. En ég var víst búin að lofa að setja upp jólagjafaóskalista og hér kemur hann. Eða alla veganna hluti, mér dettur nú örrugglega fleira í hug seinna og bæti því við.

Jólagjafaóskalisti Bryndísar

Laptop eða rosaflotta heimatölvu ( sko maður byrjar alltaf á því sem að manni langar mest í og er viss um að maður fær ekki, bara svona að setja það just in case, ef að einhver fær lottóvinning)

Mig langar rosalega í myndir sem að systkini mín hafa teiknað eða eitthvað sem þau hafa gert sjálf og ég get skreytt með heima, hafa svona smá hluta af þeim hjá mér, eða sætar myndir af þeim. Sakna þeirra nefnilega rosalega mikið.

Stafræna myndavél

Nýja strigaskó, en núna er að verða komið ár síðan ég fékk Air max skónna frá mömmu og pabba í fyrra, mér langar í aðra svoleiðis, ég notaði enga aðra skó en þá í 8 mánuði. Þeir eru orðnir frekar slitnir. En þetta eru bara bestu skór sem að ég hef átt. Eitt par af skóm hefði ekki dugað mér fyrr en þessir skór eru brilliant. ( eða voru, eru að syngja sitt síðasta)

Svo eru góðar peysur alltaf vel þegnar, einhverjar helst með rennilás, svona þægilegt að skella sér í, keypti mér reyndar eina svoleiðis út á portugal og hún er bara uppáhaldspeysan núna.

Skanni

Sokkar, ég elska góða sokka. Helst svona með myndum á, elska það. Líka svona þykkir sokkar úr sokksjopp, þeir eru æði.

Vettlingar, flíslúffur frá 66° norður ( ég átti svoleiðis svartar, voru geggjaðar en týndi þeim).

Regnjakka (minn týndist, var samt ekki mér að kenna) og það rignir svo mikið í danmörku.

Svo nátturulega langar mig og Gumma í fullt af svona heimilisdóti, eigum samt orðið helling en vantar, teskeiðar, vöfflujárn,
pönnukökupönnu, viskustykki, hnífa(en held það sé ekki góð hugmynd að fara með þá í flug og eini beitti hnífurinn okkar dugar vel )

Það er alltaf gott og gaman að fá nýjar snyrtivörur ( ekki ilmvötn eins og þið vitið nú öll þá hata ég ilmvötn, fæ bara hausverk af þeim)

Ég er orðin þurr í bili en þegar andinn svífur yfir mig, bæti ég bara við hann. Það er sko endalaus þessi listi.








Wednesday, November 06, 2002

Ég veð bara úr einu í annað!!!!!!

Ég er búin að komast að því að bloggið mitt er oft ansi sundurleitt ég er að hugsa eitt og byrja á setningunni og fer svo eitthvað að útskýra en gleymi svo að klára setninguna og fer bara í eitthvað annað. Ég sem sagt veð úr einu í annað. Ég er farin að efast um hvort ég sé á réttri hillu, tilraunirnar í skólanum bara virðast ekki takast hjá mér og Sólveigu, það gengur bara allt á afturfótunum hjá okkur. Held það sé að hluta til vegna þess að við misskiljum leiðbeiningarnar smá, danirnir eru í vanda að lesa sig í gegnum þennan bækling en við erum nú bara eins og álfar út úr hól í tilrauninni okkar, en við áttum að mæla magn No2/NOx í loftinu, við misskildum hvernig átti að gera NOx, vantaði einhverjar gittrur hjá okkur, og það var nú reyndar ekki okkur að kenna, laborantinn sýndi okkur hvernig á að gera og hún misskildi þetta líka og reyndar aðrir sem voru að gera þessa æfingu, semsagt okkur verður nú fyrirgefið fyrir þetta. En svo eru það nú helvítis útreikningarnir, ég er ekki alveg að fatta hvað ég á að gera, ætla að pæla í þessu í frið og ró í fyrramálið. Svo er ég nú ekki þolinmóðasta manneskjan í heiminum eins og fólk sem þekkir mig veit, og þegar sólveig hellti niður einni flösku í dag gólaði mín alveg upp yfir sig "Sólveig", og svo þegar hún var að fara að taka þessa sem datt upp, hellti hún niður annari, semsagt gekk allt á afturfótunum og ekki varð næsta gól ´" Sólveig" eitthvað lægra, allur bekkurinn bara, hvað er í gangi hjá ykkur. Ég er ekki og verð aldrei þolinmóðasta manneskjan á jarðríki, gæti t.d. aldrei verið kennari. Það sagði reyndar einn kennari minn í grunnskóla alltaf að ég ætti annað hvort eftir að verða Stjórnmálamaður eða lögfræðingur. Var alltaf með rökin á hreinu fyrir öllu ( nöldrari), og það versta er að mér tekst oft að tala um fyrir fólki mesta bulli, t.d. vorum ég og sólveig að tala um S og R optisk aktiv kolefnisatóm og ég var alveg búin að sannfæra hana hvernig þetta ætti að vera, þangað til ég fattaði að það var nú bara tómt bull hjá mér, það reyndist reyndar erfiðara að sannfæra hana til baka það sem að hún héllt í upphafi, jámms mér tekst að telja fólki af réttum skoðunum yfir á vitlausar. Þess vegna var ég að pæla hvort ég væri í réttri hillu, ég get ekki talað niðurstöðurnar í rannsóknum til að vera réttar.

Tuesday, November 05, 2002

Rommbollurnar!!!!!

Ég var víst ekki búin að segja ykkur frá rommbollunum sem allir eru sjúkir í hérna upp á Rasmus Rask. En þetta eru svona eins og kókoskúlur heima, svona úr einhverju deigi en í staðinn fyrir kókosmjöl að utan eru þær með svona marglituðu kökusmáskrauti og svo er rommbragð af þeim. Mér finnst þær alveg viðbjóðslegar, en Gummi, Sara, Sandra og fleiri eru alveg húkt á þessum bollum. Vita bara ekkert betra og ef þær eru til þegar þau fara út í nærbutik. En nærbutik er svona smá búð hérna á kollegiunni og hún er opin frá 8.00 á morgnanna til 22.00 á kvöldin, en allar búðir loka hérna kl 20.00 og svo eru allar búðir lokaðar á sunnudögum nema nærbutikin. Hún er nú samt ekkert að gera neina góða hluti hjá mér, er frekar sjúskuð, selur gamalt súkkuðlaði, er aldrei neitt til þarna og er rándýr. Og pingvin lakkrísinn sem er svona það næsta sem maður kemst apalló lakkrís ( alla veganna þetta gula marsipan með kókosinu á það er ágætt, með góðum vilja getur það næstum því bragðast eins og apalló). Getur maður sagt með góðum vilja á íslensku??? Ég er farin að nota þetta ansi mikið og er svoldið hræddum að þetta sé bara danskt orðalag, er alla veganna notað mikið hérna. Einn tutorinn minn hann heldur því fram að þegar við syngjum danska hlutann af danska laginu með ný dönsk, líkist það engann veginn dönsku, en með góðum vilja geti það orðið að dönsku. Svo var ég að komast að því hvaðan orðið glimrandi kemur í íslensku, þetta kemur bara úr dönsku. Var í lífrænum efnafræði tíma og efnafræði kennarinn er rosalegur húmoristi verst er að ég skil ekki nema lítið brot af bröndurunum hans, hann talar svo óskýrt, en hann sagði í gær að eitthvað efnahvarf gengi alveg glimrandi vel. Ég skildi alla veganna þá samlíkingu, svo er hann alltaf að segja alveg frábæra brandara, alla veganna finnst, hinum í fyrirlestrinum það, mér finnst ekkert smá leiðinlegt þegar ég fatta ekki brandarana þannig að ég hlæ bara samt til að vera með. Stærðfræðiprófesorinn er líka frábær, hann var lengi í bandaríkjunum og hann er alltaf að segja sögur þaðan og svona, hann er rosa fyndin, ég skil samt fleiri brandara hjá honum, en það er nú samt svona misjafnt og þar hlæ ég líka oft bara til að vera með. Er samt rosa gaman að geta hlegið aðeins, kemur manni í betra skap, þó maður viti ekkert hvað var svona fyndið.

Ég er að fara að horfa á Vini núna, seriu sem var sýnd eftir að ég fór frá íslandi í janúar, hún er sýnd á norsku TV2, ég er að horfa á auglýsingarnar núna og þetta er ekkert smá sætt tungumál. Ég líka skil alla brandara þar. En danskan verður sko betri með hverri vikunni, bara gengur samt allt of hægt, ég hef ekkert þolinmæði í þetta.

Monday, November 04, 2002

Jæja ég verð víst að gefast upp í kvöld, en ég var búin að setja shout out, það var bara ekki á réttum stað, og bróðir minn var búin að skilja eftir svo fín skilaboð, en ég virðist ekki geta fengið það fram aftur, verð bara að vinna í þessu, seinna á meðan verðið þið bara að senda mér email.
Ég er bara að prufa þetta ekki viss um að þetta virki, en endilega prufið að segja eitthvað


Ég fæ aldrei email! Það virðist enginn nenna að skrifa mér. Ég fæ ekki einu sinni email frá mömmu minniné bróður mínum. Mér finnst þetta nú ekki ganga, og svo er ég nú ekkert vissum að neinn lesi þessa síðu. Ætla að setja svona "shout out" þá getið þið sett athugasemdir á það sem ég er að segja. Já og svo er ég nú að stefna á að setja hérna inn óskalista fyrir jólinn, ef þið verðið uppiskroppa með jólagjafa hugmyndir en það eina sem mér dettur í hug þessa stundina er að mig bráðvantar teskeiðar, svoldið þreytandi að borða allt með stórum matskeiðum, mamma neitaði að gefa mér teskeiðar í jólagjöf, ég neyðist víst til að kaupa hana sjálf. Hey já svo langar mig líka í pönnukökupönnu og vöfflujárn. Væri gaman að geta keypt tilbúið deig í fernu og baka sér ljúffengar vöfflur eða pönnsur :). Annars er jólagjafa listinn eitthvað tómur ennþá en hafið ekki áhyggjur ég skal fylla hann. Ætla að gera svona eins og þegar ég var lítil , gera stóran og góðan lista til að vera viss um að fá eitthvað flott, ég t.d. merkti alltaf vel í jólabókalistanum í þær bækur sem mig langaði í, gerði stór X Bryndísi langar í þessa. Ég var víst algjör lestrarhestur, synd hvað ég hætti að lesa og varð sjónvarpshestur, núna er ég lærdómshestur. Það er sammt ekkert smá gaman að sökkva sér oní spennandi bók, verst er að ég klára alltaf allar bækur sem ég fæ strax, það virðist enginn bók endast mér meira en einn dag eða eina nótt ef hún er góð, oft var ég búin með bækurnar á aðfaranótt jóladags. Gummi öfundar mig reyndar hvað ég er fljót að lesa, en mér finnst samt synd hvað góðar bækur vara stutt. Og svo virðast námsbækurnar sumar hverjar vera endalausar, mér finnst ég hafa lesið í marga tíma, en neinei, ég er kannski bara búin með 4 bls í líffræðibókinni.

Sunday, November 03, 2002

Ég fór út á lífið í gær, skemmti mér bara ansi vel. Við fórum á einn bar með dönskum trúbador og sungum m.a. " vi er røde. vi er hvide" og fullt fullt af góðum dönskum lögum. Við sungum úr okkur lungun og fórum svo á karoke bar þar sem að sara ætlaði að syngja, við sungum þar og trölluðum líka við fullt af dönskum lögum, ég er komin á allt aðra skoðun um danska tónlist, það er til annað en Kim larsen og Rollo og King. Þetta eru mörg hver alveg brilliant lög. Langar að eignast danska geisladiska, það er stefnan í framtíðinni.


Saturday, November 02, 2002

Rússneskt Radíó rúlar!!!!

Ég er búin að vera að þrífa við rússneskt útvarp! Ég get ekki hlustað á íslenskar né danskar útvarpsstöðvar í gegnum netið, skil ekki afhverju en ég get hlustað á bandarískar , rússneskar og ég veit ekki hvað, ég er búin að finna eina ansi góða rússneska útvarpsstöð sem að ég er búin að vera að hlusta á meðan ég þríf. Erum að fá gest í kvöld, við þekkjum nú ekkert svo marga hérna í danmörku, Sólveig er farin til Søndeborg, ég veit ekki hvort að Sara kemur. Ármann er að fara með sambýlingu sínum honum Einari í matinn í öðrum í klakamóti. Ég, Gunnhildur ( gesturinn sem kemur í kvöld) og Gummi ætlum að grilla í kvöld( það er sól og gott veður hérna núna) og svo ætlum við að fara á annan í klakamóti þegar maturinn er búin ( það var uppselt í matinn). Ég ætti nú kannski að útskýra hvað annar í klakamóti er. Enn sko klakamót er fótboltamót milli íslendinga hérna í danmörku og strákarnir hérna í Odense unnu fótboltamótið og það er verið að fagna því í kvöld.

Gummi æfði stundum með strákunum, en er eiginlega hættur því, er farin að æfa körfu með dönsku körfuboltaliði hérna í odense og svo er hann í dönsku skóla 2 sinnum í viku. Þannig að Gummi þekkir alla þessa stráka og langar og fara að gleðjast með þeim í kvöld. Ég var nú alveg ligeglad um þessa gleði þessara drengja, en ætlaði nú samt að fara með honum. Svo ákvað Gunnhildur að slást í hópinn og þá fékk ég nú gleði mína aftur og hlakka til að fara í kvöld. En Gunnhildur er algjör stuðbolti. Hún og Ármann eru saman í bekk, Ármann býr hérna í sömu blokk og ég og Gummi og er í fótboltanum líka, hann og sambýlingur hans hann Einar ætla báðir í matinn í kvöld. Þannig að það verða einhverir þarna í kvöld sem að maður þekkir. En Ármann og Gunnhildur eru algjör eðlisfræðibrainar, þannig að það er gott að leita til Ármanns ef maður er algjörlega lost í eðlisfræði dæmum, því hann er bara hérna í sama húsi. Ég fór einmitt til hans í dag og fékk að sjá honum tvö dæmi. Ég þarf nefnilega að skila aftur seinustu eðlisfræði skiladæmum, og vill nú helst hafa þau rétt svo ég fái nú próftökurétt í vor. Eins og þið hafið kannski lesið nokkrum sinnum hérna áður þá er eðlisfræði ekki uppáhaldsfagið mitt. Ég væri til í að taka fleiri stærðfræði áfanga eftir þennan en ekki meiri eðlisfræði svo lengi sem ég lifi. Ég var víst búin að segja það þegar ég var búin með stúdentsprófið að ég skyldi ekki taka meiri eðlisfræði en neinei, ég stóð víst ekki við það, maður á aldrei að segja aldrei.

En þetta er nú víst orði ansi langt og komið gott í dag, en ég las á gillitrutt síðunni hennar Önnu nokkuð gott, ætla að enda þetta með því.


What goes around comes around.
Work like you don´t need money.
Love like you´ve never been hurt.
Dance like noone sees you.
Sing like noone hears you.
Life like this were Heaven on Earth.



















This page is powered by Blogger. Isn't yours?