Friday, December 20, 2002
Jólastjarnan okkar er látin ( *sniff*)
Ég held að jólastjarnan okkar hafi bara fundið á sér að við værum að fara, við áttum sko svona minipiniokkuponsulitla jólastjörnu sem að dó í nótt ( eiginlega af ofþurrki) en ég held að hún hafi gefist upp útaf því að hún sá að við vorum að pakka niður í gærkvöldi og ætlum að yfirgefa hana um jólin.
En núna er loksins loksins komið að þessu. Við erum að fara heim um jólin, og við erum að fara í dag, og það styttist bara og styttist, ég fer bráðum að fara að fara í bað og hafa mig til, þurfum að fara út úr dyrum eftir 4 klt, og ég held ég þurfi að sjæna mig til, og svo er uppáhaldssjónvarpsþátturinn minn eftir 2 og 1/2 tíma, horfi á hann og svo fer bara að líða að þessu.
En þetta er búið að vera virðburgðarríkir 11.mánuðir sem ég hef verið í burtu. Ég er búin að skoða stóran hluta af Evrópu ( Danmörk, Þýskaland, Austurríki ( vín og svo þrælabúðir í alpönum og einn frábær skíðadagur), Sviss, Frakkland-París ( sem var hreint út sagt frábær og við ætlum pottþétt þangað aftur), aftur þýskaland ( Köln, Munster), síðan var það danmörk aftur, Noregur, lærði þar norsku ( ég elska að læra ný tungumál, þegar ég er búin að læra þau), Svíþjóð(útilegu og verslunarferðir), síðan var það Danmörk aftur (stutt stopp, redduðum okkur íbúð og svo var farið í hoppferð), Portúgal(2 vikur af sælu), síðan aftur Danmörk og þar var slegið um sig og gist á hótel Legoland eina nótt, og tvær nætur á hryllilegu farfuglaheimili og svo var íbúðin orðin okkar, og við vorum ekkert smá glöð og erum ennþá glöð með hana. Og núna verður stefnan tekinn aftur á byrjunarreit, Ísland nafli alheimsins bíður okkar.

Thursday, December 19, 2002
Seinasti tími annarinnar
Jæja seinasti tími annarinnar fer að hefjast. Ég get bara farið að telja tímana þar til ég fer, ótrúlegt hvað þetta líður hratt og hvað ég á eftir að gera mikið áður en að við förum heim. Ég fór í bæinn áðan og sá 3 hluti sem ég bara varð að kaupa, meira í jólagjöf handa Gumma , þó ég hefði nú verið búin að kaupa handa honum jólagjöf, ég bara varð að kaupa þetta, svo keypti ég 2 hluti, einn handa hvoru systkini mínu, langar svo að færa þeim eitthvað smá þegar að ég kem, ekki hægt að koma úr 11.mánaða útlegð frá útlöndum og koma ekki með neitt, en mamma og pabbi og allir sem eru búnir að fermast verða bara að bíða þolinmóðir eftir jólunum að fá pakka frá mér. Ég trúi eiginlega ekki að það sé bara komið að þessu og ég er búin að standast allt á önninni, eða bara standa mig vel og er bara ánægð með sjálfa mig, við erum líka allar stelpurnar hérna úti búnar að standa okkur vel og búnar að standast allt (smá fyrir mömmu hennar Sólveigar, hún kvartar yfir því að ég bloggi bara um minn skólaárangur en Sólveig lætur aldrei vita) ég er nú bara stolt af okkur, þó þetta hafi verið erfitt á stundum. Svo bara þegar við komum heim úr jólafríinu ætlum við að styðja hvor aðra og læra alla daga frá morgni til kvölds og bara ætlum að ná þessum tveim efnafræði prófum, það kemur bara ekki annað til greina. Við tökum þetta með stæl ( úff það er eins gott að ég standi við stóru orðin í janúar, en það kemur bara í ljós, ég geri alla veganna mitt besta).
Ég hlakka til að hitta ykkur öll á íslandi og sé ykkur á morgun, eða sko eiginlega á laugardaginn förum ekki fyrr en með tíufluginu annað kvöld.

Úlallallalalal!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ég er búin að finna efnið mitt, ég sko héllt ég væri búin að finna rétta efnið og þá kom Gunnhildur og sagðist hafa fengið nákvæmlega sama smeltepunkt á sinni carboxylic sýru, og ég bara hmm.... þeir endurnýta efnin milli hópa, hún er sko í öðrum hóp en ég, var í hópnum sem var í tíma í morgun, ég bara jámms, og það passaði bara svona rosalega vel hennar efni, eiginlega betra en það sem ég héllt að það væri, svo ég fór og spurði kennarann hennar Gunnhildar hvort að þetta væri efnið mitt og hún fletti mér upp og svo kom langþráð já frá henni. Núna þarf ég bara að senda þetta blessaða blað og þá verð ég búin að standast þennan áfanga.

Wednesday, December 18, 2002
Dagur í helvíti en samt góður að vissu leyti!!!!!!!!!
Núna er bara morgundagurinn og svo er ég farin heim til ykkar á Íslandi og ég hlakka rosalega til. En ég er lasin eins og þið hafið kannski lesið hérna á netinu, og þurfti samt að mæta í verklegt í morgun, erfiðasta strætóferð ever, kallt skalf, óþægileg sæti, og hausverkur útaf stífluðu nefi upp í heila. En svo kom ég upp í skóla og þar var ennþá kaldara og ég sat í úlpunni, með snjóbrettahanska og hettu á mér, og bara gat ekki hugsað mér að fara úr úlpunni og í slopp, en Sólveig peppaði mig upp, ég hafði líka ekkert val, varð bara að klára þetta verklega. En ég fékk skýrsluna mína tilbaka, ekkert smá ánægð hún var góðkennd, svo var líka TLC blaðið mitt góðkennt ( ein tilraun) og svo náði ég að greina eitt efni og fékk það blað góðkennt, er semsagt búin að fá 2 af 4 efnum góðkennd, skýrsluna góðkennda, TLC blað góðkennt, en hún var ekki sátt Kella og sagði mér að mæta í fyrramálið í annan tíma ég yrði að fá góðkennt 3 af 4 efnum, þó svo að skýrslan mín og TLC blaðið væri komið, ég útskýrði nú fyrir henni að ég væri veik og væri ekki viss um að heilsan mín leyfði það, en hún bara svaraði mér ekki og bara töff luck svipur, og bara sagði að maður yrði að fá 3 af 4 góðkennd og ég fæ alla veganna engann séns út á veikindi, ekki einu sinni samúð. Svo heyrði ég hana tala við aðra sem var veik fyrsta skiptið, var með kossaveiki, en hún fær séns og þarf ekki að skila öllu, en ég verð bara að finna alla mína vara orku fara að sofa og gera ekki neitt fyrr en í fyrramálið og verð bara að finna annað efni, reyndar er eitt efnið mitt af þeim 2 sem eftir eru búið, svo ég verð bara að finna út mitt amíðið á 2 tímum, því svo er dæmatími í efnafræði sem ég má ekki við að missa kl 10:00.
En Sólveig skutla skrifaði í gær disk með Christian fyrir mig, hann er brilliant þessi diskur er að hlusta á hann núna, hún skrifaði disk sem hann gaf út í fyrra, mig langar í nýja diskinn líka. Hún er nú ekkert smá góð stúlka hún Sólveig, alltaf að gera eitthvað fyrir mann. Hún og Sara fara saman heim á morgun og ég mun nú hugsa til þeirra á morgun, kl 20:00 núna eru þær að fara í loftið, kl 23:30(danskur tími) núna eru þær að lenda og þar fram eftir götunum. En ég er nú líka alveg að fara, meika bara ekki að vera svona kvefuð og með illt í eyrunum í fluginu, en ég verð bara að kaupa mér nóg af tyggjó og jóðla í lendingu og loftaki.

Tuesday, December 17, 2002
Ég tók svona persónuleika próf, komin aftur í tölvuna, líður illa leiðist, get ekki lesið því það lekur bara hor á bækurnar og hausinn dúndrar, ekki það að talvan sé skárri kostur. En ég tók próf yfir hvaða persónuleikatýpa ég væri af háskólanema og út kom svoldið áhyggjandi útkoma, en svo fattaði ég að ég er að læra Biomedisin, þeir hafa bara þýtt þetta vitlaust. Ég held alla veganna að ég sé á réttri hillu.

Sjáðu hvaða týpa þú ert

Sjáðu hvaða týpa þú ert
Hálsbólga, kvef og hiti!!!!
Hálsbólga, kef og hiti og bara almennur slappleiki í gangi, ég vaknaði í morgun og shit, það voru bara rakvélablöð í kokinu á mér. En á svona stundum er ég samt fegin að vera ekki með hálskirtla, þó að það hafi verið eitt af því versta sem ég hef lent í. Misheppnuð svæfing, rifnar varirnar út á kinnar, og bara viðbjóður í viku eftir aðgerðina. Þá er ég samt feginn að vera ekki með hálskirtla í dag, því að þá liði mér ennþá verr. En ég verð að komast í skólann á morgun, þá er verkleg lífefnafræði og ég má ekki missa af þeim tíma, því ef ég missi af honum, þá þarf ég að taka þetta verklega allt aftur næsta haust, nenni því nú ekki. Ég fer í skólann sama hvort ég verði með hita eða ekki. En núna get ég ekki meira fyrir framan tölvuna, ætla að leggja mig og vonandi svef ég þetta bara úr mér.

Monday, December 16, 2002
Smá fróðleikur úr lífrænni efnafræði í skólanum!!!!!
Nyt om krigsgasser.
I forbindelse med gidseltagningen i Moskva har der været forskellige gisninger om, hvilken gas, der blev anvendt, da man stormede teatret. En af gisninger er BZ-gas 1, der er en ester af quinuclidionol og benzilsyre ( 2-hydroxy-2,2-dipheynylethansyre), den er kendt som en kampgas, der framkalder omtågehed og manglende evne til at orientere sig. Et andet forslag er fentanyl 2, der er et syntetisk stof med en morfinlignende virkning blot 100 gange stærkere end morfin. Det anvendes i medicinen mod stærke smerter. Endelig er nævnt halothan 3, som er et af de almindeligeste bedøvelsemidler ved operationer i dag. Det er en meget flygtig væske Kp. 50°C, som let kune pumpes ind i teatret. De to andre er faste stoffer, som måtte sendes ind som en aerosol, Dette passer godt med, at man havde kunne mindske virkningen ved at holde et tørklæde for mund og næse.

But of the joke
Sólveigu fannst hann ekki alveg jafn mikill engill í dag, henni fannst hann fyrst rosa engill að koma með köku, en svo sko spurði hann hana yfir allan bekkinn út í seinustu stærðfræði skiladæmi. "Súlvæg hvad betyder at grise" ég og restin af bekknum grenjuðum úr hlátri, þegar að það kom í ljós að þetta átti að vera gætte, en hún skellti bara orðinu " at grise" inn, semsagt íslenska orðið að grísa á eitthvað en þetta heitir gætte á dönsku og gætteløsning, en hún kallaði þetta víst griseløsning, þetta var nú svoldið ljótt hjá honum að spyrja hana fyrir framan allan bekkinn, en okkur fannst þetta briliant hinum í bekknum, besta setning annarinnar í stærðfræði. Kemst á stall með þegar íslenskur strákur í dönskutíma með Gumma, sagði þegar það var verið að tala um Hátíðisdaga að íslendingar væru með "Bolledag og boller hver anden i rassen" og spurði síðan hvort danir væru líka með þennan dag. En það er bara gaman að þessu.

Engillinn
Muniði þegar að ég sagði ykkur frá því að við kölluðum eðlisfræði kennarann djöfullinn og stærðfræði kennarann engilinn. Jæja í dag sannaði Stærðfræði kennarinn okkar að hann er algjör engill. Í dag var síðasti tíminn og haldiði ekki að hann hafi komið með draumaköku ( drømmekage) handa okkur öllum, heitir held ég sjónvarpskaka á íslensku. Alla veganna var kakan ljúffeng og hann sannaði að hann er algjör engill. Þetta er alla veganna einn besti stærðfræði kennari sem ég hef haft, hann útskýrir ekkert smá vel, ég þarf oft að skilja ef ég er ekki alveg að fatta allt í dæmunum ( ég er sko svona týpan sem verður að skilja allt, ef þið munið eftir þvi þið sem hafið verið með mér í skóla). En alla veganna þá getur hann útskýrt fyri rmér, þó hann sé að blabra á dönsku, það tel ég nú gott. Jæja nú ætla ég að fara að reikna efnafræði. Hlakka til að koma heim eftir 4 daga víííííííí, bara eftir að fara að sofa 4 sinnum, efast samt um að ég eigi eftir að geta sofið seinustu nóttina fyrir spenningi, svo eru krakkarnir í bekknum að reyna að breyta þannig að við fáum að hafa efnafræði tímann sem á að vera á föstudeginum yfir á fimmtudag, þá þyrfti ég ekkert að mæta á föstudeginum og þá væri bara 3 dagar eftir í skólanum, væri gott sko. Well ætla að halda áfram að láta mig dreyma um heimför og reyna að læra.

Sunday, December 15, 2002
Litlu jólin
Við héldum litlu jólin í gærkvöldi, ég, Sólveig(súlvæg), Sara(SAA) og Gunnhildur(Gúnní). Við höfðum pakkaleik, mikið af nammi og bara rosa kósý, kerti en það vantaði spilin. Svo eftir mikið át og kjaft þá var farið á vertarann, sem er hérna á raskinu, þar var eins og venjulega mikið af despó fólki og við fíluðum okkur bara vel, ekki það að við séum despó, við gátum bara dansað eins og við vildum og enginn tók sérstaklega eftir okkur, var svo mikið af nörrum og despó fólki þarna. Súlvæg öðlingur kom með geisladiska sem hún hafði brennt fyrir okkur allar, með úrval af því vinsælasta sem er að gerast í dönsku tónlistarlífi og svo nátturulega Andasanginn, sem var fyrsta danska lagið sem ég lærði að fíla. En muniði hvað maður þoldi ekki dönsku í grunnskóla og danska tónlist( sem maður tengdi bara við Kim Larsen) þegar maður var yngri. En ég er virkilega farin að fíla danska tónlist og er að fíla þennan disk í tætlur sem Sólveig gerði og syng núna hástöfum ( det er trist at være en and i dårligt vejr) og söng áðan ( gå frem og tilbage, fra side til side, gå op og ned), svo eru fullt af fleiri góðum lögum á þessum disk eins og Eurovision lögin góðu á dönsku. Það var svoldið sjokk að heyra það þannig fyrst, á djamminu með skólanum, lög sem maður þekkti en gat ekki sungið með því það var bara allt á dönsku, muniði eftir laginu sem var í öðru sæti í Eurovision eftir Rollo og King, ( det vil vi aldrig glemme). Svo má ekki gleyma honum Christian sem var að gefa út nýjan disk fyrir þessi jól, og mig langar nú bara svoldið í þann disk, jáhh, ótrúlegt en satt ég vill nú varla viðurkenna það ég er bara farin að fýla danska tónlist í botn, þannig að vinir sælir, bara varið ykkur, ég kem heim með þennan disk um jólin og öll partý eða djömm verða núna ekki laus við danska tónlist, þið verðið bara að læra að fíla þetta með mér, ég kenni ykkur bara að fíla þetta.
Jæja ykkur getur núna farið að kvíða fyrir eða hlakka til dönsku tónlistarvæðingarinnar sem kemur eftir 5 daga, það er meira segja gangster paradise á dönsku ( vi liver frede liv, det er gangstas liv i paradise).

Saturday, December 14, 2002
Það eru 6 dagar, 14 klukkustundir, 34 minutur, og 52 sekundur thangad til Eg kem til Islands, núna þegar klukkan er 09.24 að laugardagsmorgni, ég hlakka ekkert smá til. Við erum að fara að kaupa jólagjafir handa ömmum okkar, og síðan er afmæli hjá einni í bekknum mínum í kvöld, og ég nenni varla að fara út í þennan kulda í kvöld. Til að sitja í hóp af fólki og skilja ekki neitt og fitta engann veginn inn, en ég ætla mér ekki að vera algjör félagskítur, það eru 2 önnur partý í næstu viku, fer ekki í þau, svo maður verður nú að sýna smá lit. En bara kuldakveðjur frá baunalandi!!!!
Friday, December 13, 2002
Jólagjafaleiðangur
Talandi um það að danir séu tímanlega í öllu. Ég sem héllt að ég og Pabbi værum slæm í stundvísinní og tímanlegheitum. En danir eru verri. Það var byrjað að selja áramótadót(flugelda og áramótahatt og svona stuff) í byrjun þessarar viku. Já og svo var jóladót í enda október. Svo sko er búið að vera alla þessa viku jólaörtröð í verslunarmiðstöðinni, ég fór eldsnemma í morgun að versla jólagjafir, en neinei, það var bara full verslunarmiðstöðin og það er 13 des, hvað er þetta með stundvísina. Heima er ekki svona troðið fyrr en eftir 20 des. Síðan sko fær maður 3 vikna fyrirvara á afmælisboðum, það er sko aldrei gert neitt á seinustu stundu hérna. Sem er svosem ágætt, en þegar maður telur sig vera tímanlega og lendir svo bara í ösinni.
En ef þið vissuð það ekki lesendur góðir, þá verð ég á leiðinni til íslands eftir viku í þessu töluðu orðum að fara upp í lest. Víííiíí ( en úff hvað ég á eftir að gera mikið, ég verð að fara að láta hendur standa fram úr ermum.

Thursday, December 12, 2002
Skýrslan er komin í póstinn
Já þá er ég búin að senda skýrsluna af stað, en helvítis ( xxxxxx) á örrugglega eftir að láta mig skila henni aftur. Ég verð þá semsagt á miðvikudegi og fimmtudegi í næstu viku að gera skýrsluna aftur, og fara heim á föstudegi, ég verð bara að pakka niður á næsta þriðjudegi og svo þarf maður nú víst eitthvað að læra í næstu viku. Tíminn líður allt of hratt, en samt svo hægt, því mig hlakkar svo til að fara heim.

Wednesday, December 11, 2002
Monday, December 09, 2002
Ross 2
Umm..... ef þið horfið á vini ættuð þið að lesa þennan pistil, annars getið þið bara hætt held ég. En alla veganna ég er með líffræði kennara sem er að kenna núna nokkra kafla um risaeðlur, steingervinga og annað skemmtilegt ( uhh semsagt hrútleiðinlegt). Og hann er með alveg sömu áhugasvið og ross, það er bara eins og að vera komin í tíma hjá Ross í vinum, nema að hann er ekki eins sætur og Ross kennarinn okkar ( ekki það að Ross sé eitthvað sætur, Ross er bara myndarlegri). Kennarinn okkar er líka með skegg sem er jafngamalt og steingervingarnir sem hann er að tala um og jafn sítt og á jólasveininum. Hann kom okkur reyndar á óvart um daginn með því að fara í klippingu en skeggið fór ekki neitt.
Kennarinn okkar ( veit sko ekki hvað hann heitir) er alltaf að vitna í Jurassic park, greinilega uppáhalds myndin hans, en það kemur setninging " ligesom i Jurrassic park" svona 10 sinnum í hverjum tíma ( og nú er ég ekki að ýkja ég ætlaði að skrifa 50 sinnum, en deildi í með fimm til að fá rétta tölu). Hann er samt búin að afsanna kenningu myndarinnar fyrir okkur, en samt er hann alveg heillaður af henni ( eða sko hvernig þær voru vaktar aftur upp er ekki hægt, það er allt DNA horfið úr svona gömlum steingervingum, það hafa fundist steingervingar sem eru mun yngri ein risaeðlurnar og það finnst ekki snefill af DNA eftir í því,en Jurrassic tímabilið var fyrir 144 til 206 milljónum ára síðan ( ég var sko að lesa þennan kafla áðan og gera verkefni og man þetta)). Þannig að þið getið bara rétt ímyndað ykkur hvað það er mikið af DNA eftir í þessu sem átti að endurlífga í Jurrassic park). En ég held að hann sé bara svona heillaður af Risaeðlunum í myndinni eða eitthvað, er ekki alveg að fatta hvað heillar hann svona mikið við þessa mynd og man bara ógeðslega lítið úr henni. En well pointið með þessu var að við erum með kennara sem er jafnmikið nörd og Ross. Held ég sé búin að koma því til skila. HEy já svo í seinasta tíma var hann með nokkrar gerðir af hauskúpum, allt frá fyrsta mannapanum upp í manneskjuna í dag, var held ég með 5 hauskúpur, var svoldið spennó. En óhugnalegt um leið. Hvar fékk hann þetta eiginlega?????
Well ætla að segja þetta gott.

Sófarnir komnir loksins loksins!!!!!!
Jæja eftir langa bið þá erum við komin með sófana sem við vorum að kaupa. Eru svona second hand sófar, en samt bara tæplega 3 mánaða gamlir. Eru í stíl við svefnsófann okkar, sama efni og úr sömu búð og sami litur og bara alveg í stíl. Eru semsagt gráir, rosa fínir, reyndar sko ekkert svona margra ára sófar, en duga okkur væntanlega vel hérna í danmörku. Við keyptum þá líka báða einn 3 sæta og einn 2 sæta á 1500 dkr. Þannig að loksins erum við hætt að sofa í stofunni og erum farin að sofa inn í svefnherbergi ( fyrsta nóttin í nótt). Núna er sko notalegt að horfa á sjónvarpið inn í STOFU. Gummi er einmitt að láta fara vel um sig fyrir framan sjónvarpið og í einum af nýja sófanum. Væri alveg til í að joina hann, en þarf að fara að svara spurningum fyrir dæmatíma í líffræði.

Sunday, December 08, 2002
Kálormar ( jakk)
Helduru að við höfum ekki keypt kál í gær í fötex, og vorum að kíkja á það áðan, ætluðum að fá okkur morgunmat. Var þá ekki bara hluti af kálinu orðinn brúnn og viti menn, ég bað Gumma að opna það því það gætu verið pöddur í því og því miður hafði ég rétt fyrir mér. það var risa LIRFA eða ormur eða hvað sem þetta var, VIÐBJÓÐUR, ég ÖSKRAÐIupp yfir mig eins og ég væri í hryllingsmynd. Nágrannarnir hafa örrugglega haldið að Gummi væri að berja mig. En það var alla veganna kálveisla hjá lirfunni og verður það í ruslinu líka. Gummi henti reyndar bara þessu í ruslið og út fyrir dyrnar, ruslagámarinir eru svoldið langt frá en stefnan er sett þangað fljótlega. En talandi um að ruslið sé langt í burtu. Þá er einn nágranni okkar greinilega að safna rusli, hann hefur ekki farið út með ruslið ( eðá jú út en ekki út í gáma)síðan konan hans fór til Íslands fyrir tveim vikum held ég, fór með barnið þeirra líka, hún er ekki að gera neitt hérna held ég nema vera heima með strákinn og fór snemma heim í jólafrí. Það eru semsagt pizza kassar og ruslapokar og sko mannhæðaháur haugur hérna í þarnæstu íbúð. Ekki girnilegt, sérstaklega þar sem að maður fékk aðvörun í haust um að skilja ekki úti rusl útaf rottugangi. JAkk, ég semsagt má eiga vona á rottuveislu líka ef drengurinn fer ekki að fara með ruslið sitt bráðlega. En við erum sem betur fer ekki á jarðhæð, því þá væri bara katta, broddgalta, rottuveisla í ruslinu. Við erum sko með svona svalir þar sem inngangarinir allir eru, svipað svona eins í íbúðinni hjá Gunnu , það veitir alla veganna smá vörn fyrir rottuplágu. Well ætla að hætta að hugsa um þessi skorðkvikindi, og reyna að fara að læra.

Saturday, December 07, 2002
Pulsugrill!!!!
Við erum að fara að grilla pulsur, Sólveig ætlar að koma með SS gull og það verður sko veisla, síðan ætlum við að grilla banana og hafa það gott. Við verðum bara 3, buðum reyndar fleirum en enginn annar ætlar að koma. Þannig að það verður bara stuð hjá okkur, alla veganna góður matur. Erum reyndar með pulsur fyrir 10 manns ( erum líka með danskt jukk) en það verður bara pulsupasta og pulsur í matinn á næstunni, sem er bara fínt. En well, ætla að fara að hafa til matinn Sólveig er á leiðinni.

Thursday, December 05, 2002
Ömurlegir dagar!!!!!!
Síðustu tveir dagar hafa hreint út sagt verið ömurlegir, mér gekk vægast sagt illa í verklegri lífrænni efnafræði í gær og í dag þá kom ég full vonar í tölvtímann minn og kennarinn minn ætlaði að ráða bót á öllum mínum vandræðum, hann lét gera nýtt heimasvæði sem átti að svínvirka en viti menn eftir tímann komst ég að því að það bara virkar jafn illa og hitt, ég get ekki vistað, margra tíma vinna er farin í súginn, ég er að verða búin að gera þessa tölvurapport 10 sinnum, hátt í 20 klt og 5 forsíður, ég er orðin frekar þreytt á þessu. En ég sendi honum email áðan og vonast til að fá úrlausn mála minna á morgun, eða eftir helgi, en ef ég get ekki vistað fyrir miðvikudaginn næsta mun ég ekki ná þessum tölvuáfanga, þá get ég ekki skilað rapportinu og er í djúpum skít. Semsagt ekki bjart hjá minni, en vona bara svo innilega að þetta reddist, meika ekki að taka allan tölvukúrsinn aftur útaf einhverju kjaftæði um að ég geti ekki vistað, það væri ömurlegt. Ég líka gæti þá ekki byrjað á öðru ári í haust, því öll 1 árs próf verða að vera búin. En þið verðið bara að hugsa fallega til mín. Er loksins að fara heim úr skólanum eftir hátt í 5 tíma fyrir framan tölvuna án þess að geta vistað, semsagt bara tími til einskis. arrrrggggg!!!!!!!!!

Tuesday, December 03, 2002
Skýrslan búin aftur!!!
Þá erum ég og Sólveig búnar að gera skýrsluna aftur, loksins. Það er rosalega mikið að gera í skólanum, en ég er einhvern veginn ekki alveg í stuði fyrir skóla núna, mig langar bara í jólafrí, ég er búin með mest allt sem þarf að gera fyrir jól, á eftir eina skýrslu í viðbót, annars er ég komin með öll heimadæmi og allt svona á góðri leið og þá er svo erfitt að einhvern veginn reka sig áfram að læra og gera heimadæmi eða skilaverkefni sem þú þarft ekki að gera. Ég er bara búin með skólaorkuna fyrir þessa önn held ég, og próf eftir í janúar, það verður bara tekið á því eftirjólafrí og afslöppun heima. Gummi er farin að fara að vinna eldsnemma á morgnanna því það er svo mikið að gera í jólaösinni, t.d. í gær vaknaði hann 4 og í morgun kl 5 og ég er búin að vakna með honum en get ekki sofnað aftur, ég er semsagt orðin langþreytt á að vakna snemma fékk litla hvíld um helgina og er bara einu orði sagt þreytt. Langar bara í jólafrí og afslöppun, og það eru bara 17 dagar í það, og ég get ekki beðið, ég og Sólveig vorum að rifja upp jólalagatexta í dag. Mig langar helst af öllu að liggja upp í rúminu mínu ( sem er á íslandi) og hlusta á íslensk jólalög og borða íslenskt súkkulaði eða appalólakkrís og lesa afþreyingarbók en ekki skólabók. En ég verð víst að sætta mig við svefnsófa og mandarínur og námsbækur næstu 17 dagana.

Sunday, December 01, 2002
Jólahlaðborð í danmörku
Jólahlaðborð í danmörku var svolítið spes upplifun. Maturinn var nú ekki í hávegum hafður, maður fékk nokkrar rúgbrauðsneiðar ( sem ég n.b. get ekki borðað og danir borða hvern einasta dag), nokkrar flísar af fisk ( sem ég n.b. get ekki borðað) og svo voru frikadellur ( kjötbollur, sem ég veit ekki hvað er í þannig að ég gat ekki borðað þær). Síðan voru svona eina smá rosaþunn purusteiksneið á mann ( sem ég gat borðað), rauðkál og einhver salöt. Síðan var í eftirrétt mygluostar ( sem ég n.b. get ekki borðað) og kex ( sem ég gat borðað). Síðan var eiginlega bara áfengi, danirnir spurðu mig hvort jólahlaðborðin væru eins heima, ég sagði þeim reyndar að það væri nú örlítið meira um mat. Þarna var sko hálf flaska af sterku víni á mann og hálfur bjórkassi á mann. Það flaut semsagt allt í áfengi og allir orðnir haugafullur á smátíma, og ein bekkjarsystir mín fræddi mig á því að Julefrukost væri einn aðalframhjáhaldahátíð í danmörku, ég sagðist nú hafa heyrt það en væri ekki alveg viss um að það væri satt, hún sagði JÚ það er satt. Ég var líka vitni að því, fólk var saman hægri vinstri, í kross, upp og niður og aftur og bak og áfram ( gå op og ned, fra side til side, gå frem og tilbage). Nei nú ýki ég aðeins, það var nú bara reyndar eitt framhjáhald, en ábyrgðafyllsta manneskjan í bekknum mínum sleppti sér alveg lausri og var með einni hórunni í bekknum sem á kærustu í öðrum bæ. Síðan sko er eitt par í bekknum mínum, og sko þegar skólinn byrjaði áttu þau bæði kærasta/kærustu, síðan var hún með öðrum gaur í rússtúrnum, og héllt framhjá kærónum, þau hættu saman, en hún býr ennþá með honum, þau fluttu sko saman til Odense, og hún mun búa með honum fram í febrúar þó þau séu hætt saman og hún sé með einum bekkjarbróðir okkar.En þau bæði voru í þvílíku daðri við aðra, hann var með aðra stúlku í fanginu og hún að daðra við annan gaur ( ég skil ekki alveg hversu líbó danir eru). Síðan sko var ein stelpan í bekknum á þvílíkum trúnó, við mig og Sólveigu, sólveig lenti samt verr í því en ég, ég fékk bara 5 sinnum að heyra söguna að fyrsti strákurinn sem hún svaf hjá er stjúpbróðir hennar. Síðan sko var hún með miklar áhyggjur af því hvað hún ætti að segja börnunum sínum um hver væri hennar fyrsti ( en ég spyr nú bara segir fólk börnunum sínum svoleiðis).
En þetta var nú ágætt, ég fór snemma heim, tók seinasta strætó um miðnætti. Ég varð ekki vitni af fleiri pörunum en sólveig sá fleiri paranir, það voru víst allir komnir með skemmtun fyrir kvöldið, og Sólveig greyið sat bara föst með einni á trúnó.
Jæja, e´g er farin að hlakka óstjórnlega til jólanna, Gummi gaf mér jólaskafdagatal er búin að skafa fyrir daginn í dag , erum búin að kveikja á aðventukransinum ( sem ég bjó til) og jóladagatalakertinu. Semsagt jólin jólin alls staðar, eru bara að koma. Ég hlakka svo til!!!!!!!!!