Friday, January 31, 2003
Af mér er ekkert að frétta, er aðeins að leika mér með litina á síðunni, datt í huga að þið gætuð nú sett í shout outið hvernig ykkur líst á þetta. Ég væri líka alveg til í góðar hugmyndir að betri litasamsetningu, finnst þessi ekkert spes, bara ákvað að prufa. En ef þið viljið skoða lita úrvalið er það á þessari síðu. Og ef þið vitið um aðra síðu með fleiri liti þá er það líka vel þegið í shout outinu. Einnig datt mér í hug að setja link á hvar þið getið fengið númer fyrir íslensku stafina, ég hef verið í vandræðum með það en ég fer að laga það hjá mér, er byrjuð á einum link, hitt kemur með tímanum.
Thursday, January 30, 2003
Well af mér er nú mest lítið að frétta, er bara enn að bíða eftir einkunn úr prófinu. Í gær var ég á leið út í búð og ætlaði að taka strætó, og ég hitti Ragnheiði vinkonu hennar Önnu út í strætóskýli. Hún var að flytja hingað á kollegieið á mánudaginn og var að leita að skólanum sínum, ég héllt ég vissi hvar hann væri og fór með hana í annan skóla sem er í næstu götu við hennar, ég sko hefði getað flett þessu upp á krak.dk en þar sem ég hitti hana í strætóskýlinu, var þetta svoldið erfiðara. En þegar við komum hingað aftur til baka hringdi ég til einnar sem er í sama námi og hún sagði mér hvar skólinn er, núna get ég alla veganna sagt henni hvar skólinn er, en hún er að byrja í skólanum á mánudaginn.
En út í aðra sálma, af mér er ekkert að frétta................ bara sko hálf leiðist, það var enginn sem vildi koma og heimsækja mig í fríinu mínu og núna er fríið að verða búið, og skólinn og allt þetta er að byrja aftur, byrja strax í verklegu á miðvikudaginn og hlakka ekki til að fara í þetta XXXXXXXX verklega, nema ég byðji fallega þá fæ ég kannski annan kennara.
Kær kveðja Bryndís

Monday, January 27, 2003
Ég fékk svoldið sjokk áðan, ég kíkti á netið að athuga hvort að það væri komin einkun fyrir prófið. Og tað var komið eitthvað inn, en það var ekki prófið. Ég semsagt er komin með staðfestingu á því að ég er búin að ná einum eðlisfræði áfanga sem heitir Indledende fysik, og fékk Bestaet fyrir hann, það er enginn einkunn bara annað hvort stendur þú þetta eða ekki, og fékk 3 einingar fyrir það. Síðan er líka komið inn fyrir einn verklegan áfanga, almenna verklega efnafræði, ég fékk 1 einingu þar. Og er því komin með skjalfestar 4 einingar, er reyndar búin að ná 6 einingum af 16, og bíð bara í ofvæni eftir því hvort að ég standist þetta 10 eininga próf, ég fékk þvílíkan hjartslátt áðan, bara trommur og læti, ég þorði ekki að kíkja og svo var þetta bara ekkert prófið, svoldið óþægilegt, var orðin spennt en svo var þetta bara eitthvað sem ég vissi. En það er samt ánægjulegt að sjá þetta svart á hvítu að ég sé komin með 4 einingar af hmm... ansi mörgun en þetta er alla veganna byrjunin. Nú er það bara spenna eftir einkunninni, ég get eiginlega ekki beðið lengur.
Helgin var rosa skemmtileg hjá mér, við fengum gesti frá köben, vinur hans Gumma og kærastan hans, komu hérna og það var bara djamm og stuð. Á föstudaginn fékk ég svo líka tvær sendingar í póstkassanum bréf frá Ömmu Ásdísi og bréf og myndir frá Ásdísi Birtu systur minni, það besta sem ég veit þegar maður er í útlöndum eru sendingar að heiman. Á föstudagskvöldið, fórum við á vertarann, eða sko barinn á kollegiunni. Síðan á laugardagskvöldið, átti Sara vinkona mín hérna sem býr í næsta húsi 23 ára afmæli. Þá grilluðum við og borðuðum sjúklega gott svínakjöt, og alls konar meðlæti, banana og grillaðar kókosbollur og súkkulaði, í eftirrétt. Svo fengum við fleiri gesti eftir matinn og horfðum á þáttinn "THE LICK" sem var tekinn upp á íslandi, þetta var rosa flottur þáttur og góð landkynning. Síðan ákváðum við að fara sjö saman niður í bæ á skemmtistað sem heitir Arkaden og inniheldur 6 aðra staði, sem maður getur rölt á milli og skipt um tónlist eða svona fíling, eftir því sem skapið tekur mann. En þegar við vorum úti að bíða eftir leigubíl (engin hjól núna á djammið, hmmmm) hittum við fleiri íslendinga sem búa á kollegiunni og ætluðu líka í bæinn, og auðvitað komu þau bara með okkur á Arkaden. Það var semsagt bara fjölmenni og rosa gaman. Við byrjuðum á pianobarnum, þar sem að það er sko live pianoleikur og söngur, svaka stuð, við báðum um óskalag " vi er røde vi er hvide" og fengum það, alla veganna sungum við manna hæst en kunnum samt bara viðlagið, sungum bara lalala í hinu. Síðan þegar við vorum farin að klæja í tærnar eftir tjútti, því maður sko situr inni á píanobarnum, er líka dansgólf en þetta er meira svona situ fílingur, gott þegar fæturnar eru orðnar lúnar að kíkja aðeins þarna inn. En næst lá leiðin á karoke barinn, og þar tók Gummi lagið ásamt Heimi og Ingva, en það endaði með að Gummi dansaði eins og vitlaus og átti bara sviðið en þeir stóðu hinir fyrir aftan og sungu og stóðu kyrrir eins og bakraddir, en sem betur fer heyrðum við ekkert í söngum, sviðsframkoman var samt skemmtileg og Gummi hafði nokkrar grúpppíur fyrir framan sviðið. Næst var komið að Söru að syngja og hún söng "simple the best með Tinu Turner" og stóð sig bara vel í sviðsframkomunni. Ég og Ágústa og Sigurrós vorum búnar að skrá okkur til að syngja " I will survive" en sem betur fer held ég fyrir hina kom aldrei að okkur.
Jæja, núna er ég víst búin að útlista allri helginni hjá mér, endilega segjið líka frá ykkar. Kveðja Bryndís

Thursday, January 23, 2003
Búðarráp og annað skemmtilegt!!!!
Það er nú orðið frekar þreytandi að vera í fríi, maður nennir ekki að gera neitt af viti þegar maður er í svona löngu fríi. Skólabækurnar hafa gjörsamlega fengið frið fyrir mér, en þær bíða spenntar eftir að verða opnaðar og lesnar fram og tilbaka þangað til í vor. En ég finn mér alltaf eitthvað til dundurs og dægrastyttingar eins og þið vitið. T.d. er ég búin að mála gler með svona glertússi og brenna svo, ansi skemmtilegt. Ég og Sara fórum í gær í bæinn í klippingu og kíktum svo á smá búðarrölt, við erum svoldið bilaðar og þar sem við höfðum nú ekkert að gera, þá datt okkur í hug að velja hryllileg outfit handa hvor annari til að máta. Hún valdi vægast sagt hryllilegt outfit handa mér í H og M, það var bleikur og fjólublár þverröndóttur bolur og bleikt flauelispils við sem að var svona ekstra vítt að neðan, svoldið ljótt í sniðinu, og svo eina frekar röndótta marglita peysu sem passaði engan veginn við pilsið. Ég valdi nú ekkert svo hryllilegt handa henni, ég valdi rautt flauelispils handa henni (og það var síðan bara flott) og svo valdi ég tvo frekar ljóta boli handa henni. Við stóðum svo fyrir framan spegilinn og hlógum eins og vitleysingar. Þetta var svona eins og í bíómynd, pritty women þar sem að maður situr bara og starfsfólkið kemur með outfit fyrir þig til að máta og þú bara tekur allt sem þér dettur í hug, eða fílar, en við reyndar fengum ekki að fara með þetta heim, enda var þetta nú ekkert spes.
En þegar við vorum í klippingu, fékk ég þessa líka pirruðu kellu, hún hellti sér yfir mér yfir því hvað hárið á mér væri slitið og þar fram eftir götunum og stökk ekki bros á vör allan tímann, og klippti mig bara einhvern veginn. Sara var síðan líka hjá henni og þar hellti hún sér yfir söru um hvað hún væri með þurrt hár, Sara er ólík mér og hún reyndi mikið að brosa til gellunnar og fá einhver svona góð viðbrögð en gellunni stökk víst ekki bros á vör. En hún klippti Söru ágætlega, en ég fer ekki á þessa hárgreiðslu stofu aftur, fékk mig alveg fullsadda.
Síðan erum við að fá gesti um helgina frá Köben, vinur hans Gumma og kærastan hans eru að koma og ætla að gista hjá okkur 2 nætur. Það verður bara gaman, Sara á afmæli á laugardaginn og þá ætlum við að grilla og fara síðan á djammið, verður rosa stuð.
En annars er ekkert að frétta af mér! En hvað er að frétta af ykkur???? langt síðan ég hef fengið emaila eða komment í shout outið.

Tuesday, January 21, 2003
Yndislegi Bróðir minn
Mig langaði bara að segja ykkur frá því hve ég á yndislegan bróðir. T.d. þá valdi hann sjálfur handa mér og Gumma jólagjöf og keypti, hann keypti 4 kerti, eitt Beaver Lux handklæði og tvo blómótta pottaleppa. Þetta hefur komið sér ekkert smá vel og minnir mig á hverjum degi hvað hann er yndislegur. Ég var einmitt að kaupa um daginn kertastjaka til að geta notað kertin og kveikti á einu kertinu í kvöld, það var reyndar kerti sem hann gerði sjálfur og gaf okkur í jólagjöf í fyrra. Ég er að vonast eftir því að fá hann í heimsókn í sumar og hann er að safna pening til að komast út til mín. Það yrði ekkert smá gaman ef að hann kæmi, við erum strax byrjuð að plana hvað gert verður, en á dagskrá er t.d. tivolíið í köben, Bon bon land, legoland ( það eru alla veganna hlutir sem hann hefur samþykkt að gera og langar að gera, en ég og Gummi erum ekkert minna spennt). Svo nátturulega ef það verður gott veður er stutt fyrir okkur að fara í Friluftsbad, sem er útisundlaug með alls konar skemmtilegu, eins og blakvelli og svona, en ef það verður 30 stiga hiti verður ekki amalegt að fara í sund. Síðan nátturulega munum við grilla pulsur og hamborgara og svona, elda pitsur og annað sem honum finnst gott, það verður sko enginn mömmu matur hérna, bara skyndibiti og annað gott, enda verður hann í fríi.
Ég alla veganna sakna hans mikið og hlakka til að fara heim í ferminguna hans, ég sakna auðvitað litlu yndislegu systur minnar líka og hlakka til að hitta hana um páskana.

Monday, January 20, 2003
lord of the rings!!!
Ef ég væri hobbit þá myndi ég heita "Mara Toadfoot of Frogmorton ", ef ég væri álfur úr lord of the rings myndi ég heita " Ainariël Míriel ". Gummi myndi heita " Griffo Loamsdown of Deephallow " ef hann væri hobbit og "Angaráto Carnesîr " ef hann væri álfur. Villtu tékka á þínu nafni?

Áramótaheit!!!!
Síðbúið áramótaheit! Ég ætla að hætta að skrifa kjaftæðissetningar hérna á blogginu eins og t.d. í gær " síðan vann í hitti fyrra var valið í stelpuhljómsveit sem heyrðist ekki í eitt ár næstum því ". Ég virðist bara skrifa stundum eintóma vitleysu, er bara að flýta mér að skrifa eitthvað hérna inn. Nýjasta mottóið mitt er núna gæði fram yfir magn.

Sunday, January 19, 2003
Raunveruleikaþættir!
Svona í sambandi við alla raunveruleikaþættina sem eru að tröllríða öllu dönsku sjónvarpi og annars staðar í heiminum líka. Þá eru sumir þessara þátta ansi hallærislegir. En við horfum á danskan fear factor i kvöld sem að er alveg eins og þessi norski sem við sáum þar, sömu stönt gaurar og allt, og sömu þrautir. Síðan er nátturulega popstars og þar vann í fyrra gaur sem heitir Jon og hann er bara að meika það hjá 11 ára stelpunum, síðan vann í hitti fyrra var valið í stelpuhljómsveit sem heyrðist ekki í eitt ár næstum því , en þegar Jon vann komu þær fram og eru svo eitthvað búnar að vera að skemmta með honum, en eru nú frekar slappar eitthvað. Síðan er sko norska TV2 með þátt sem heitir "Idol" og á sér sína amerísku fyrirmynd eins og flestir þættirnir nema Robinson Expedition sem er fyrirmyndin af survior og er búin að vera held ég ein 5 eða 6 ár hérna og lofuðu að hætta í fyrra en sviku svo og eru að safna fólki í nýja seríu núna fyrir þetta ár.
En aftur að þættinum "Idol" þar sko var sýnt í kvöld í "God kveld norge" frá amerískum stelpum sem voru að reyna fyrir sér í prufu hjá ameríska idol, og sumum var bara sagt hreint út að þær gætu ekki sungið, en þær voru með þvílíkt attitude, og þær bara sögðust víst geta sungið og ætluðu sér að verða frægar og þau gætu bara kysst á þeim rassgatið, ýkt fyndið þar sem að gellurnar gátu ekkert sungið. Við eina gelluna sem bara sko öskraði eitthvað bull, var samt með ágætis rödd, sagði gaurinn, heyrðu vinan ég hef aldrei nokkurn tímann heyrt einhvern syngja svona mikið án þess að halda einni einustu laglínu, ég veit ekki einu sinni hvaða lag þú varst að reyna að syngja eða hvort þetta var lag. Eru sko ákveðin lög sem fólk á að reyna við. Gellan bara trylltist og sagði honum að hún væri falleg og ætlaði sér að verða fræg og hann væri með númerið hjá henni og gæti hringt í hana þegar hann væri komin á jörðina, því hún væri frábær. Geðveikt fyndið að sjá hvað þær voru vissar um hvað þær væru frábærar, ég vildi að ég væri með svona mikið sjálfstraust.
En ég er nú bara búin að stikla á stóru í flóru raunveruleikaþáttanna, en svo er nátturulega The Bachelor sem var á skjá einum, svo eru tveir breskir þættir þar sem að er sko einn þáttur með strák og einn þáttur með stelpu og þar er verið að finna kærasta og kærustu, og það eru 3 persónur sem finna þann rétta sem er síðan látin búa með hinum í 3 vikur ef allt gengur vel annars er skipt út í hverrri viku ef gengur illa, en þetta er allt frekar hallærsilegt en samt hef ég gaman af því að horfa á þetta.
ég er alla veganna bara orðin ánægð að ég er farin að skilja dönskuna og farin að geta horft á danska sjónvarpsþætti, það er alla veganna skref fram á við.

Saturday, January 18, 2003
Ryksugan á fullu étur alla drullu tralalalalalala, skúra skrúbba bóna rífa af ykkur skóna trallalalalalalla................
Við vorum að kaupa okkur ryksugu, sáum eina á tilboði í Bilka á 250 kr og fengum far með Sigurrósu og Ingva í Bilka í dag og keyptum gripinn. Þetta er rosa fín ryksuga 1300 w og lítil og sæt, ákkurat eitthvað svona fyrir okkur, alla veganna dugar okkur og er betra en ekki neitt, þetta er bara um 3000 kr íslenskar. Erum bara rosa ánægð og þessa stundina er Gummi með ryksuguna út um allt hann ryksugar alla ofna allar smugur þar sem að skúringarkústurinn hefur hingað til ekki náð í, og fílar sig bara vel með hana held ég, hún fer honum alla veganna vel ryksugan, er svona skemmtilega gul og grá á litinn. Hann sagði orðrétt "bara fantastik" svona ánægður er hann með hana. En Adam var ekki lengi í paradís, hann nennti ekki að klára að ryksuga allt, var bara æstur að prufa hana, rosalega var nú nýjabrumið fljótt að fara af henni. En þetta mun alla veganna auðvelda okkur lífið, getum ryksugað loksins.

Thursday, January 16, 2003
Spilakvöld í kvöld! Frekar daufur dagur, bara þvottahúsið og sjónvarpið sem hafa haldið mér félagsskap. En heilsan hjá Gumma fer batnandi sem betur fer. Í kvöld ætlum við að spila saman 3, ég , Sólveig og Sara. Við ætlum að spila partýspilið sem Sólveig fékk í möndlugjöf og hver veit nema við tökum Yatsi sem ég fékk í möndlugjöf
Wednesday, January 15, 2003
Útsölur!!!
Ég fór á útsölur í dag, var orðin frekar þreytt á því að gera ekki neitt, og ekki alveg á þeim buxunum að byrja að læra strax. Og fór í bæinn að skoða, keypti ekki neitt, enda fór ég ekkert í þeim tilgangi, keypti reyndar kertastjaka í systrunum grænu á 100 kr til að geta kveikt í kertunum sem Brynjar gaf mér í jólagjöf núna og í fyrra. Með mér í búðarröltinu voru Sara og Sólveig og við skemmtum okkur nú bara vel. En verst var að hjóla heim aftur í mótvindi og rigninguupp brekkur, hverjum hefði dottið í hug fyrir ári síðan að ég myndi hjóla í bæinn til að fara að skoða í fatabúðir, ekki mér alla veganna.

Tuesday, January 14, 2003
Danskur Tannsi!!!
Ég fór til tannlæknis í dag, fyrsta skipti sem ég fer til dansk tannsa. Hann angaði því miður af reykingalykt og var ekki eins spjallandi og tannlæknirinn minn heima. En hann kom alla veganna með góðar fréttir, ég var sko búin að vera með tannpínu síðan um jólin og gat ekki orðið burstað tennurnar, var sko alltaf vont að bursta tennurnar og drekka kalt. En ég var víst bara búin að bursta tennurnar of mikið og tannholdið var bara uppeytt að hluta til og þess vegna var þetta svona vont þar sem að tannrótin er svona viðkvæm, en þetta er víst ekki neitt alvarlegt, bara að bursta með mýkri tannbursta, hann sagði mér alls ekki að hætta að bursta eða minnka tannburstunina bara nota mýkri bursta og svo lakkaði hann þetta. Wow hvað þetta er eitthvað áhugavert alltaf hjá mér, nú vitið þið bara allt um tannræturnar mínar líka.
En Gummi hló mikið þegar að ég kom heim, hann sagði að ég væri óð með tannburstann, tannburstaði mig að minnsta kosti 5 sinnum á dag. En það er ekki satt, ég bursta mig bara eftir hverja máltíð, og við nánari umhugsun er það svona 5 sinnum á dag, hmm... kannski ég eigi að minnka aðeins tannburstunina hjá mér, en það gæti ég bara ekki hugsað mér, finnst vont að hafa matarleyfar í tönnunum. En það er víst orðið slæmt þegar tannlæknir segir að maður bursti sig of mikið, ætli það séu til svona AA samtök fyrir fólk sem tannburstar sig of mikið.

Monday, January 13, 2003
Dótið komið!!!
Jæja þá er langþráð sending frá íslandi komin á leiðarenda. Loksins er rúmið okkar komið, og afgangurinn af fötunum mínum ( er búin að sakna þeirra mikið, sérstaklega Diesel regnkápunnar minnar) og svo komu jólagjafirnar okkar líka, svo að það verður pönnukökuveisla hérna seinnipartinn þið eruð endilega velkomin. Við vorum reyndar komin með straujárnið frá ömmu og það var prufað á laugardagskvöldið og virkaði bara svona rosa vel, fengum sko tvær pönnukökupönnur og eitt vöflujárn og skiptum annari pönnukökupönnunni yfir í straujárn. Síðan kom svona smá puntudót og þannig að það er orðið rosa fínt hérna hjá okkur og 3 sófar í stofunni. Við erum núna með lausan svefnsófa svo það eru velkomnir gestir hingað til okkar frá í dag 13.janúar og fram til 3.febrúar þegar skólinn byrjar aftur.
Síðast en ekki síst má gleyma að við fengum geisladiskana okkar, nú vantar okkur bara stað til að setja fötin okkar á ( kommóðu t.d.) og tölvuborð, þar sem talvan er á eldhúsborðinu, en það verður einhvern tímann í fjarlægri framtíð þegar við verðum rík.

Sunday, January 12, 2003
Rúgbrauð og vodki!!!
Ég sá í fyrsta skipti á ævinni nokkurn mann drekka vodka og borða rúgbrauð með, var samt eitthvað svo danskt. Einn bekkjarfélagi hennar Gunnhildar gæddi sér á þessu í gærkvöldi. En áður en að við lögðum af stað í þetta partý ákváðum við bara að stoppa stutt ef við myndum ekki skemmta okkur vel, við þekktum nú ekkert bekkjarfélaga hennar Gunnhildar, höfðum nú reyndar séð þá í skólanum og þetta voru þvílíkir nördar. En í gærkvöldi sýndu þeir nú aðra hlið á sér en að leiðrétta stærðfræði og eðlisfræði fyrirlesarana með jöfnur og kenningar. Þeir voru bara svona rosa hressir. Reyndar byrjaði kvöldið á því að við sátum öðru megin íslendingarnir og danirnir hinu megin, og það blandaðist ekki neitt, enda þekktum við ekki hvort annað, svo kom einn bekkjarfélagi hennar Gunnhildar og eftir smástund sagði hann, bara hingað og ekki lengra nú hættið þið með þessa íslensku, talið ensku, þýsku, dönsku, bara eitthvað sem við hin skiljum líka, og jú við gerðum það og svo var sungið og dansað lengi, þeir sungu lag og við með þeim sem við höfum heyrt áður á karoke bar, og heitir "hundehimlen" er eitthvað á þá leið, hvort maður fái að taka hundinn með sér upp til himins.
En kvöldinu okkar lauk með því að taka taxa á raskið og leigubílstjóranum tókst að misskilja hvert við ættum að fara ( við sem héldum að við værum orðin svo góð í dönsku, spjölluðum heillt kvöld við dani) en á endanum komumst við heim heil á höldnu.

Saturday, January 11, 2003
Loksins loksin búin í prófinu!!!!
Það var ekkert smá æðislegt að koma inn í stofuna okkar, en við vorum bara sex þar inni með tvær gamlar danskar ömmur sem voru algjörar dúllur. Ein byrjaði að ganga á milli og spyrja hver væri hvað og spyrja út í nöfnin okkar og hvaðan við værum, henni fannst nú nafnið á Sólveigu og Söru bara ekta dönksk nöfn, en henni fanst Bryndís ( brrruunnndis) ansi skrýtið nafn. Hún sagði nú söru frá því að ein tengdadóttir hennar héti Sara. Hún var algjör dúlla, við hlógum og allt stress leið úr öllum, okkur öllum 6 fannst hún jafn mikil dúlla. Svo var hún líka svoldið gleymin og þurfti að spyrja nokkrum sinnum hver væri hvað. En við vorum 4 frá íslandi í stofunnu ( ég, sara, sólveig, Gunnhildur) og svo ein frá Mexíko og ein fra Líbanon.
Síðan borðaði hún súkkulaði af áfergju í prófinu og réð krossgátur, hin prjónaði og réð krossgátur. Ég þurfti að fara einu sinn á klósettið í prófinu og amma gamla sem hafði áhuga á nöfnunum okkar fylgdi mér, og hún hérna eiginlega bara sleppti mér lausum hala, fylgdist ekki með því á hvaða klósett ég færi, og svo þegar ég kom út var hún hvergi og ég bara shit, núna verð ég tekin fyrir svindl. Svo þegar ég var komin hálfan ganginn til baka sá ég hana og hún sagði bara " du er ikke forsvundet fra meg" ég bara neinei og brosti og svo var farið aftur inn í stofuna, ég hefði bara getað átt í hörku samræðum inn á klósetti, mætti einni í bekknum mínum, hefði þess vegna getað bara spurt hana út úr, en gerði það auðvitað ekki.
Þær voru sko algjörar dúllur, síðan sko þegar Sara spurði mig hvort hún mætti fá lánaðan vasareikninn minn sagði ég að Það mætti ekki lána í prófum, las það í heftinu í gærkvöldi um prófreglur, svo kom gamla konan og Sara spurði " kan jeg låne hendes lommeregner" og hún sagði bara ég veit það ekki þú verður að spyrja hana, ekkert smá fyndið, svo áður en að ég náði að svara sagði sólveig að hún væri með tvo vasareikna. En þær voru semsagt ekkert að stressa sig á prófreglunum, svo leyfðu þær okkur að byrja 5 mín fyrr, og sögðu að enginn nema þær myndu vita það. Semsagt ´mér leið svona eins og ég væri komin með varaömmur hérna í danmörku.
Nú er svo bara fest i aften, er hjá bekknum en ég ætla ekki í hana, Gunnhildur er að halda fyrir bekkinn sinn og bauð mér, Gumma, Söru og Sólveigu og við ætlum bara að skella okkur til hennar.

Friday, January 10, 2003
Próf!!!!!
Já þá er eiginlega komið að því, prófin mín tvö eru á morgun, og ég verð nú bara að segja eins og er að þá hlakka ég nú ekki til. Ég er semsagt búin að leggja alla þá vinnu sem ég get í þetta próf, klukkutími til eða frá miðað við 4 mánaða stanslausa vinnu breytir nú engu um hvort ég næ þessu á morgun eða ekki. Ég stefni nátturulega að því að ná, en ef ég næ ekki veit ég alla veganna að ég gerði mitt besta.
En Dagurinn í dag er búin að snúast um glósulestur og svona smá upprifjun. En glósurnar mínar eru ansi skrautlegar þær eru á 3 tungumálum, dönsku, ensku og íslensku og stundum eru öll þrjú tungumálin í einni setningu. En það skiptir mestu að ég skilji þær, samt svoldið fyndið að lesa þetta. Þetta er samt kannski bara eðlilegt þar sem að ég les bækurnar á ensku, hugsa allt á íslensku, er í tímum á dönsku og á að taka prófið á dönsku.
Gummi er að elda handa mér kjúklingabringur, mmm..... í tikkamasala sósu.... svo ætla ég bara að horfa á sjónvarpið og fara snemma að sofa og verða hress og vel uppilögð í prófinu á morgun.
Það verður sko léttir á morgun að labba út úr 5 tíma löngu prófi. Efast samt um að ég noti allan þann tíma.

Wednesday, January 08, 2003
Próflestur!!!
Ja ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að lýsa þessum próflestri hjá mér, en það er alla veganna komin pirringur, leti og leyði í mig, ég er búin að vera frekar mikið dugleg síðan ég kom hingað út aftur , síðan fékk ég bara alveg nóg seinnipartinn í dag og er komin með lesstíflu ( einskonar form af ritstíflu nema maður bara getur ekki lesið, lýsir sér með, þreytu, syfju, almennum leiðindum) og bara hef ekki getað lesið, reyndi fyrst að fara í göngutúr, og það endaði bara með því aðtýnuvillustrumpur týndi lyklunum sínum, síðan reyndi ég að læra meira, ekki gekk það, Gummi fór með mér í göngutúr, og mér tókst að gera 2 dæmi, síðan fékk ég alveg nóg, síðan eldaði hann handa mér mat, og hann var ljúffengur, og svo bara nenni ég ómögulega að fara að læra meira, en ég bara verð, úff úff úff, ég á eftir að verða svo ánægð þegar þessi próf eru búin. ÉG HATA PRÓFLESTUR
Ja ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að lýsa þessum próflestri hjá mér, en það er alla veganna komin pirringur, leti og leyði í mig, ég er búin að vera frekar mikið dugleg síðan ég kom hingað út aftur , síðan fékk ég bara alveg nóg seinnipartinn í dag og er komin með lesstíflu ( einskonar form af ritstíflu nema maður bara getur ekki lesið, lýsir sér með, þreytu, syfju, almennum leiðindum) og bara hef ekki getað lesið, reyndi fyrst að fara í göngutúr, og það endaði bara með því að
Saturday, January 04, 2003
Jólasnjór!!!!!!!!
Það fór svo aldrei þannig að ég fengi ekki að sjá jólasnjó! Það snjóaði rosamikið í gær og núna er bara allt hvítt og fallegt. Rosa svona íslandsfílingur, sá fullt af fólki á snjóþotum á pínulitlum hól rétt hjá Skólanum ( á móti Bilka). Hólinn var að verða snjólaus og sást alls staðar í grænt, en fólk virtist skemmta sér vel og allir með snjóþotur eða þoturassa.
Af mér er annars ekkert að frétta nema próflestur og ætla að halda áfram að læra í dag, þetta er samt frekar leiðinlegt, "vont en það venst".
Snjókveðjur frá Danmörku