<$BlogRSDURL$>

Monday, March 31, 2003

Ég var að fá fullt af myndum sendum frá Evu Lind. Ákvað að leyfa ykkur að njóta þeirra líka, hérna er mynd af skvísunni á Hótel Borg.







Saturday, March 29, 2003

Mikil gleði hér á bæ, var að fá bréf í dag frá skólanum um lengri tíma í prófunum sem ég fer í. Svo langar mig að sýna ykkur myndir sem að voru teknar á digital myndavélina hennar söru þegar við vorum í seinasta BM102 verklega tímanum.


En mynd nr 1 er mynd af mér og Söru í sloppunum svaka hressar. Mig minnir að Malik hafi tekið hana en hann er hálf grænlenskur bekkjarbróðir Söru.



Næsta mynd er svo Sara hress og kát með pípettuna og tilbúin til að klóna og gera genabókasafn




Þriðja myndin er svo af Tómasi bekkjarbróður Söru að setja PCR afurðir á gel. Svaka mínigerð af gelektroforesu.






Thursday, March 27, 2003

Hafiði einhvern tímann lent í því að þið bara vitið ekkert hvað þið eigið að segja hérna á blogginu ( þið ykkar sem bloggið) ég lendi ansi oft í því og skrifa bara eitthvað hundleiðinlegt bara til að skrifa...............svo er ég kannski fyrr um daginn búin að semja alveg trilljón ógeðslega fyndin og skemmtileg blogg um hitt og þetta sem mér dettur í hug og svo bara man ég það ekki þegar ég sest fyrir framan tölvuna en man það yfirleitt um leið og ég er búin að slökkva á tölvunni. Ég er oft alveg búin að semja heilt blogg frá orði til orðs þegar ég sé eitthvað sniðugt, t.d. í gær þegar ég lenti á tveimur kellum á strætóstoppistöð og var að spjalla við þær........var alveg rosa fyndið í huganum samtalið við þær á blogginu, en svo bara hmmm....... er þetta bara ekkert fyndið lengur og ég man ekkert hvað ég ætlaði að skrifa, voru rosa miklar hugleiðingar, en endar bara í engu......svona virðist þetta vera oft. Ég gæti aldrei verið rithöfundur eða dálkahöfundur eins og Carry í sex and the city , því ég mundi aldrei muna allar skemmtilegu sögurnar sem ég væri búin að búa til í huganum, reyndar sko burtséð frá hæfileikum á ritsviðinu, þá mundi ég aldrei muna það hvað ég vildi skrifa ef ég hefði einhverja hæfileika.
En ég er víst að byrja í verklegri eðlisfræði á morgun, er búin með tvo verklega áfanga og tveir eftir, fer allt að koma á þessari önn og áður en að maður veit af verður hún búin. En alla veganna þá er ég að vinna með honum Bo Hansen, héllt fyrst að þetta væri bara bjöggi halldórs komin að meika það í SDU, en svo heyrði ég kallað á mig í eðlisfræði " BRINDIS"( svona með geggjað amerískum hreim eins og danirnir segja nafnið mitt), og ég lít við og sé bara Cesar ( eða sko gaur sem lék Ceasar í leikriti sem við gerðum í rústúrnum, hann er sko í vinarbekk míns bekkjar) og það var bara Bo hin danski holdi klæddur og einn af 2 samstarfsfélögum mínum í eðlisfræði, eigum eftir að komast að því hver hinn er, en ég hef lúmskan grun um að það sé einn frekar grannur og bólugrafinn bekkjarfélagi Gunnhildar hann var alla veganna í spurningartímanum í dag. Vona bara að þeir séu betri en ég í eðlisfræði, annars erum við í vondum málum, ég er samt búin að undirbúa mig eins vel og ég get og lesa alla teoriuna á bak við þessa æfingu og lesa það sem við erum að fara að gera á morgun, gat samt ekki svarað öllum spurningum svo að ég bara krossa fingurnar og vona að þeir séu eðlisfræði nörrar. Reyndar ætlaði Bo heim að lesa, svo hmm...... hann virtist ekkert vera mikið betur á sig kominn en ég í eðlisfræðinni en kannski var hann bara hógvær.....maður spyr sig.......en það kemur allt í ljós á morgun. Svo þarf ég að gera með þeim tvær skýrslur, ég vona bara að ég verði ekki látin gera teoriuhlutann.........bara þeir láti mig búa til einhver gröf eða gera formálið....og þeir sjái um teoríuna......en það kemur allt í ljós bara hvernig við skiptum þessum skýrslum á milli okkar

Monday, March 24, 2003

Ætlar þetta olíustríð bandaríkjamanna ekkert að hætta??????????

Ég er ekkert smá reið þegar ég hugsa um þetta stríð og hverjar eru nú ástæðurnar fyrir þessu stríði?? Afvopna Írak er reynt að telja manni trú um, en ég trúi því að þetta sé nú bara olían sem er verið að hugsa um. Var að enda við að horfa á fréttirnar á CNN þar sem að allur sólarhringurinn fer í að fjalla um þetta blessaða stríð og þar voru þeir voðastoltir yfir því hvað þeim tókst að bjarga stóru svæði af olíubrunnum, hörfandi írakarnir náðu bara að brenna smá, maður spyr sig þá, var ekki takmarkið að losa þá við efnavopn og önnur hættuleg vopn?????
Ég er með einum Írana í verklegu, við vinnum tvö saman í hóp í verklegri sameindalíffræði. En hann kom hingað sem flóttamaður þegar hann var lítill og stríð íraka við Írana var. En þessi strákur er óhjákvæmilega með miklar skoðanir á þessu máli og með hugann við ættingja á heimahögum, en reyndar er ættin hans dreifð út um allar jarðir, meðal annars á florida.
En hann sagði mér ýmislegt sem ég ekki vissi, hann var voða ósáttur við að það sé alltaf verið að nefna trúnna í þessu máli og hans skoðun er sú að trúin hafi ekkert með þetta að gera, hann sagði og ég sel það nú ekki dýrara en ég stal því, að Írak væri nú ekki versta landið í umskurði á stúlkum, hann sagði að um helmingur allra umskurða færi fram í Saudi Arabíu, og þeir væru með verri ofsatrú en í fjölmiðlum er okkur alltaf talið trú um að Saudi Arabía sé nú svoldið vestræn, enda eru þeir hliðhollir bandaríkjamönnum
En þar er rosa tvískinnungsháttur, ráðamenn lifa í vellystingum eiga nokkrar konur, en það er bannað samkvæmt trú múslima, og drekka áfengi, það er líka bannað og lifa eins og kóngar.

. Hann sagði líka að bandaríkjamenn myndu gera nákvæmlega það sama í Írak og þeir hafa verið að gera í Íran, um leið og stjórnin sem að er við völd fer eitthvað að mótmæla bandaríkjamönnum, vilja hærra verð fyrir olíu, þá séu bandaríkjamenn fljótir að svipta þá völdum og skipta um stjórn, hann sagði að það yrði ekkert lýðræði í Írak eftir þetta, það yrði bara stjórn sem yrði hliðholl bandaríkjamönnum, það yrði ekkert fólkið sem fengi að ráða, eins og hann vildi meina að væri í Íran.
Reyndar sagði þessi strákur nú að hann væri að hluta til ánægður ef að Saddam Hussein yrði sviptur völdum, en auðvitað fannst honum og mér líka hryllilegt hvað mikið af saklausu fólki lendir í stríðinu, missir heimili sín og annað. Gummi reyndar þekkir einn Íraka sem hann vann með í bæjarvinnunni og hann vildi ólmur að Saddam Hussein yrði sviptur völdum svo að hann gæti farið aftur heim, en á aðra höndina, mjög umhugað um ættingja sína.

En hvað er að heiminum að láta þetta viðgangast, það er í raun ráðist á Írak án þess að þeir hafi í raun gert neitt, mér finnst að það sé verið að fangelsa áður en að glæpurinn er sannaður. Ég er samt ekkert að efast um að Saddam Hussein sé glæpamaður, en mér finnst Bush og Blair bara ekkert minni glæpamenn. Var það ekki svo Bush sem átti verksmiðjur sem að framleiða hernaðarvopn, hver er að græða þar????? Maður spyr sig.

Fyrst afganistan, síðan nokkrum mánuðum seinna er það Írak........ ég efast stórlega um að þetta endi þar...... eru það ekki bara öll arabaríkin sem verða tekin hvert á eftir öðru.

Á meðan eru svo Osama bin laden og Saddam Hussein lifandi í lystingum einhvers staðar í felum, og saklausa fólkið þjáist, við hverja er verið að berjast????



Sunday, March 23, 2003

Í sól og sumaryl ég samdi þetta lag...............
....

Það er frábært veður úti, ég er reyndar ógeðslega þreytt, svaf ekki mikið í nótt, var á balli í gærkvöldi og kom heim undir morgunn og svo vaknaði ég um 10 í morgun og lærði til hádegis og lagðist þá fyrir framan imbann í smástund og vaskaði upp og fór í þvottahúsið og annað þarfaþing. Síðan kom hann Gummi minn heim, en hann var í æfingabúðum með fótboltanum um helgina, spilaði 5 klt í gær fótbolta og svo var skolað vel niður með öli. Ekkert smá gott að fá hann heim, er búin að knúsa hann ansi vel.

En snúum okkur nú aftur að ballinu, það var rosa gaman á ballinu, frumraun nafnlausabandsins, en sko þeir eru ekki búnir að nefna hljómsveitina, en hún samanstendur af íslenskum strákum hérna í Odense og þeir stóðu sig rosavel á ballinu, tóku helling af góðum lögum og svo þegar lagalistinn var búinn tóku þeir hann bara aftur og aftur, það var spilað fram eftir nóttu og við skemmtum okkur rosavel þó að prógrammið hefði gengið aftur og aftur enda voru þetta svo góð lög.

Núna er stefnan bara sett á að hvíla sig smá og kúra smá hjá Gumma sínum og læra kannski aðeins meira, þyrfti þess eiginlega svoldið mikið.


Wednesday, March 19, 2003

Ég tók líka annað próf hjá eddu, hvort ég væri með karlmiðaðan eða kvenmiðaðan heila...... Ég er víst með heila sem virkar meira eins og hjá karlmanni. Ég fékk bara 130 stig en konur liggja yfirleitt á bilinu 150 - 300 stig. Konur sem eru með undir 150 stigum eru þar á . Þessir einstaklingar búa yfir góðri rökvísi og skilgreiningarhæfni, eiga auðvelt með að tjá sig með orðum, eru agaðir í betra lagi og vel skipulagðir. Þeim mun nær núllinu þeir eru, þeim mun hæfari eru þeir til að gera kostnaðaráætlanir og spá fyrir um niðurstöður út frá tölfræðilegum athugunum án þess að tilfinningar hafi þar minnstu áhrif.
Ég er víst góð til að gera áætlanir og er víst svoldið skipulögð, fjölskyldan mín mun vitna um það, þegar að ein jólin vorum við 9 manns heima og allir ætluðu að baða sig á sama tíma á aðfangadag, þannig að ég setti bara að hver fékk hálftíma inn á baði og skipti niður á 4 og hálfan tíma frá hádegi til hálffimm, og svo gat fólk bara skipt innbyrðis ef það væru vandræði með baðtíma, en fólki fannst þetta ekki alveg nógu sniðugt, þar sem að þetta hentaði víst ekki plönunum hjá öllum, allir vildu jú fara í bað á sama tíma. Þegar við erum bara 5 í heimili eins og venjulega er oft rifist um baðið á svona dögum, allir á seinustu stundu, þannig að ég tók bara málin í mínar hendur.
En sem betur fer er ég ekki mjög langt undir 150 því ef maður fer að nálgast núllið er maður víst með ansi mikið magn af testosteroni. En það verður spennandi að sjá hvað Gummi fær í þessu prófi, hann tók sko bókmenntaprófið og fékk nákvæmlega jafn mörg stig og ég.


Þá er það komið á hreint ég fékk: 7-14 stig í bókmenntakönnunn eddu og hef:::
Þú hefur góða meðalþekkingu á íslenskum bókmenntum. Eins mætti segja að þú værir vel samkvæmishæf(ur), getur vel haldið uppi þokkalega lærðum samræðum í öllum skárri veislum.

Tuesday, March 18, 2003

Sólin skín enn og leikur við mig .........ég hjólaði í skólann í dag á mettíma. Afleiðingarnar eru nú ekkert sérstaklega skemmtilegar, ég svitnaði svo mikið að það er eins og ég sé búin að pissa í buxurnar, svo er bolurinn minn svo blautur að það má vinda hann, og ég er að fara í stærðfræði þar sem ég á að reikna dæmi upp á töflu, það verður semsagt góð lykt af mér, ég er eldrauð í framan og móð, Semsagt bara skemmtilegt, er búin að hanga hérna í tölvunni, hef 45 mín að bíða í tímann svo ég ákvað bara að blogga smá hérna.
Annars er allt gott að frétta, frábært veður sem er ekki neitt nema gott að segja um, reyndar þarf ég að vera í skólanum til sjö, í dag og á morgun, en á fimmtudaginn ætla ég að sitja úti og lesa og sleikja sólina, það er að segja ef að hún verður hér ennþá á fimmtudaginn.



Monday, March 17, 2003

Loksins get ég farið að búa mér til heimasíðu hérna í skólanum...............reddaðist með einu emaili í dag......en alla veganna er komin með mitt heimasvæði í skólanum þar sem að ég get sett inn heimasíður og annað skemmtilegt............er reyndar ekki búin að búa til síðuna.........en hún verður væntanlega á dönsku þar sem að ég þarf að skila henni í lok áfangans...........en ef þið viljið kíkja þá bara setti ég bloggsíðuna þar í bili

Sunday, March 16, 2003

Sólin skín og veðrið leikur við okkur hérna í Danmörku. Ég og Sigurrós fórum aftur í hjólatúr í dag, reyndar vorum við ekki tvær því Nökkvi kom líka, en það er 5 ára strákurinn hennar og svo dró ég Gumma með á seinustu stundu, gat ekki hugsað mér að hann lægi inn í sófa í sólinni. En hann var hugsanlega að fara að keppa í fótbolta, en varð ekkert úr því svo.

Við byrjuðum á því að hjóla niður í bæ og kíktum þar í einn garð, rosalega sætur garður með leiktækjum og öðru skemmtilegu fyrir börnin. Þar hittum við Freyju og Gumma og stelpuna þeirra, þau voru líka í sunnudagshjólatúr. Þau bentu okkur á leiðina í annan garð sem Sigurrós hafði heyrt um, en við semsagt hjóluðum meðfram öllu síkinu í Odense, framhjá dýragarðinum og í þennan garð, það var rosa gaman, fengum að sjá kameldýr og Gíraffa og annað skemmtilegt þó við hefðum nú ekki farið inn, en dýragarðurinn er sitthvoru megin við síkið. Við fórum líka í fótbolta og frisbý og enduðum svo í den fynske landsby, sem er svona nokkurs konar Árbæjarsafn fjónbúa. En ég er alveg búin að sjá það að þegar að Brynjar kemur í sumar þá verðum við að hjóla þarna með honum, reynum að fá lánað hjól einhvers staðar eða leigja hjól og taka með nesti og eyða þarna deginum, væri rosa gaman.
Alla veganna þá vorum við úti í tæpa fjóra klukkutíma í sólinni og ég held að ég sé farin að taka smá lit, eða kannski er það bara óskhyggja maður er alla veganna útitekin. Það sem við gerðum í dag er alla veganna svona must fyrir gesti sem koma til okkar hingað út í heimsókn.
En þetta er svona sunnudagsrúntur danana, sáum fullt af fólki í pick nik, sumir voru meira að segja með rauðvínsflöskurnar með sér. Ég alla veganna skemmti mér mjög vel í dag, sá nýja hlið af Odense, var sko bara búin að sjá hluta af sýkinu, vissi aldrei hvar dýragarðurinn var, var reyndar búin að koma í den fynske landsby, hann er samt bara rétt hjá dýragarðinum, en svona er þetta, maður bara einhvern veginn fer alltaf sömu leiðarnar í kuldanum, en núna er allt að lifna við og vorið komið og allir komnir á stjá og við farinn að kanna Odense betur.

Saturday, March 15, 2003

Enn leikur veðrið við okkur, ég og Sigurrós vorum búnar að plana að fara í leikfimi í morgun, ætluðum í tíma hjá Big Mama! en svo var Gummi veikur, hann ætlaði niður í bæ að kaupa stafræna myndavél á tilboði, tilboðið var 639 dkr, HP photosmart 120 vél, sem er bara allra fínasta stykki fyrir okkur. En ég plataði í staðinn Sigurrós að hjóla með mér niður í bæ fyrir leikfimina, þar var svo vélin búin, vonbrigðin í svipnum á mér hafa örrugglega sést langar leiðir. En ég og Sigurrós gáfumst ekki upp svo auðveldlega, hjóluðum 5 km í aðra búð, sem var með sömu vél á tilboði, reyndar smá dýrara en ekki mikið þar var þessi vél á 699 dkr. En þegar við komum þangað var okkur sagt að vélin væri til, og við alveg sáum okkur gott til glóðarinnar, Sigurrós ætlaði líka að skella sér á eina svona stafræna. En eftir langa bið kom afgreiðslumaðurinn aftur og enginn vél til, vonbrigðin voru sár, en við létum ekki buga okkur alveg strax, röltum búð úr búð á rosengardsvæðinu, sáum sömu vélina á 990 dkr í Bilka, vorum nú ekki alveg á þeim buxunum að kaupa hana. Verðum bara að bíða eftir öðru góðu tilboði og fara þá ekki af stað á seinasta degi tilboðsins.
Það endaði semsagt með því að við fórum ekkert í leikfimi en hjóluðum 17 kílómetra í sólinni og góða veðrinu.

En ég ætla að setja fleiri myndir leyfa ykkur að njóta mynda sem ég og Sara tókum í gær, hefði samt verið gaman að vera komin með stafræna myndavél og taka myndir af öllu sem mann langar að sýna ykkur heima.


Þessi mynd er tekin uppi á svölunum okkar, og þarna sést yfir kollegiuna.





Þetta er útsýnið niður af svölunum okkar, eða sko nágrannarnir sem búa fyrir neðan okkur, þau Mæja og Steini.





Þarna erum ég og Sara, fyrir framan OB stadion, sjálfsmynd sem við tókum saman.




Friday, March 14, 2003

Frábær dagur!!!

Bongóblíðan heldur áfram að leika við mann hérna í baunalandi. Í dag fórum ég og Sara í stóran göngutúr, byrjuðum á að labba á pósthúsið með umsóknirnar hennar og lékum okkur síðan með stafrænu myndavélina hennar og tókum myndir af öllu sem fyrir augu okkar varð, þó aðallega okkur sjálfar. Svo enduðum við á því að kaupa okkur ís og ekta litaríkt danskt gos. ´
Hér getið þið séð forsmekkinn af því







Her kemur svo ég fyrir framan fótboltaleikvanginn!!







Síðan var Sara að taka fyrir hafmeyjuþemað!!!



Thursday, March 13, 2003

Endemis lukka leikur við mann!

Gummi fékk pakka í dag, og haldidi ekki bara að oní honum var svo sending handa mér, en það voru rosa sætir glossar og svo penger og ógesslega sætt afmæliskort. Síðan sko var í kassanum líka nammi og íslensk dagblöð sem við bæði skötuhjúin njótum nú góðs af, ætlum að detta í nammið um helgina.
Ekkert smá gaman að fá pakka, bjóst líka ekki við því, en sendingin var frá Mömmu og Pabba og litlu systir hans Gumma, mér fannst þetta reyndar allt of mikið, en rosalega gaman og óvænt.
Það eru eins og jólin þegar maður fær eitthvað sent frá íslandi.


Tuesday, March 11, 2003

Hey, mig langaði bara að láta ykkur vita af einni síðu þar sem að þið getið séð myndband við lag með Saybia En þetta er það danska band sem að er hvað mest að meika það í dag. Ég sá þetta á síðunni hjá Sigurrós, þetta lag er víst spilað oft heima, en fæstir vita að þetta er danskt band. En Sara vinkona er að fara á tónleika með þeim bráðum hérna í Odense. En endilega kíkjið á þetta lag, það er frábært.

Monday, March 10, 2003

Stofan okkar, þið sjáið hérna sófana okkar þrjá ( sara er í svefnsófanum) svo er þriggja sæta sófi sem við sjáum bakið í, og svo er það tveggja sæta sófinn við hinn vegginn á móti. Síðan er það nátturulega dúkurinn frá ömmu á borðinu, og svo sko frystikistan ekki má gleyma henni, nýjasta stofustássið okkar.








Síðan er það Eldhúsið!!!!! Hvernig líst ykkur svo að heiman á höllina okkar???




En hérna er ég svoldið sjúskuð með afmæliskökuna sem að ég bakaði, og með lakkrísinn sem að mér var sendur að heiman.
Já svona er lífið, tæknin er að stríða mér þessa stundina, fann gamla posta hjá henni gunnu og þar eru sko svona dansandi stafir og ég var að reyna aðsetja nafnið mitt og viti menn bara allt í kássu, pastaði frá gunnu tekstann hennar til að athuga hvort það virkaði og ætlaði svo bara að breyta þessu þannig að það hentaði mér eða bara eyða þessu út en neinei, bara ekkert hægt að edita þessa pósta og bara allt í hakki. En ég get samt editað þennan póst, er ekki alveg sátt en þetta verðurvíst bara að fá að standa.
Kveðja Bryndís
stafi einhvers staðar..
fannst þeir frekar sætir og fyndnir..



// posted by Bryndis @ 08:18
// posted by Bryndis @ 08:14
Ég lærði reyndar eitt skemmtilegt í tölvutíma í dag, ef þú ert að gera html og langar að sjá hvernig það virkar og hvort þetta sé rétt, þá geturu farið á
http://www.fuzzylu.com/docs/html/js/home.htm og bara leikið þér og séð útkomuna á síðunni.
// posted by Bryndis @ 08:01
Jesus minn guð og allir þeir dýrðlingar á himni!!! Ég er í tölvutíma að læra á power point, þetta er eitthvað sem maður lærði í grunnskóla for crying outloud. ég ljái Sólveigu ekki fyrir að hafa Sofið lengur, ég og Sólveig ættum bara að skiptast á að mæta í tímana og vita hvað er sagt, er samt aldrei neitt merkilegt.

Well en á ég að byrja á að segja ykkur frá helginni?

Föstudagur: Bekkjarpartý, rosa gaman, góðar kökur, mikið af bjór, bara gaman, var líka víst búin að segja ykkur frá því. En ég var ekki búin að segja ykkur hvað ég fékk, já ég fékk sko gjafir, ég fékk sko pakka frá Söru og Sólveigu, fékk geisladisk með Christian sem er danskur tónlistarmaður sem ég fíla. Svo fékk ég frá bekknum mínum tvær vínflöskur með miklu glimmeri á, rosa flottar, verða held ég bara til skrauts. Gummi var ekkert rosa ánægður með geisladiskinn sem ég fékk, því hann fílar ekki Christian, en ég var ánægð og það var víst ég sem fékk pakkann, svo hann verður bara að sætta sig við að hlusta á Christian svona öðru hvoru.

Laugardagur:Ég vaknaði klukkan 9 eftir lítinn svefn og gat ekki sofnað aftur, lítill fíll lagði af stað í leiðangur, eða sko svona næstum því, ég og Gummi fórum í bæinn, hann ætlaði að kaupa handa mér afmælisgjöf og ég ætlaði að kaupa gjöf fyrir peninga sem ég fékk senda að heiman frá mömmu og pabba og ömmu. Ég keypti mér aerobikk skó fra mömmu og pabba, ekkert smá flottir skór, með efni sem anda að ofan, ekstra styrktum hæl og tá, og svo eru sko loftpúðar í hæl og tá, bara rosa fínir, ég er ekkert smá ánægð með þá. Síðan keypti ég mér í HogM aerobik buxur frá ömmu, ég er semsagt orðin algölluð í spriklið. Síðan sko keypti Gummi handa mér strigaskó, svartir nike svona gönguskór, er meira að segja í þeim núna. En dagurinn var langt frá því að vera búinn eftir bæjarferðina. Við sko nefnilega vorum búin að plana að grilla með Ingva og Sigurrós, og það var sko grillaður góður matur, svínakótilettur með alveg brilliant meðlæti, Sigurrós bjó til gráðostasósu og sveppi með gráðost í og ég ætla bara að segja ykkur það að ég borðaði mig svo Sadda að ég var að springa. En það var ekki nóg með það, ég átti heila bountyköku eftir, svo að við borðuðum líka bountyköku, mmm... hún var svo góð. Semsagt borðað alveg á sig gat að íslenskum sið, þetta var svo gott, svo spiluðum við líka, eða gerðum tilraun tilþess við vorum öll orðin svo södd að við gátum varla gert neitt. En um miðnætti fékk ég afmælisgjöf frá Sigurrós og Ingva, þau höfðu sko farið til þýskalands að versla á föstudeginum, og komu með svona sniðugt dót frá útlandinu, ég fékk sko skot sem að var með líkjör í, ég vissi reyndar fyrst ekkert hvað þetta var héllt þetta væri sleikjó eða eitthvað hehee, en þetta var sæðisfruma, höfuðið var sko tappinn og með augu og allt, svo var sko glært svona skott sem að var með svona hvítleitum vökva í, þetta var ógeðslega fyndið. Svo stóð sko svona teksti á miða sem var með þessu, þar var mynd af sæðisfrumunni og hún var með tekstabox og þar stóð " Ich komme" semsagt alveg ógeðslega fyndið.
Síðan hljóp hann gummi yfir til okkar og náði í pakkana sem systkini mín sendu mér, það var ekkert smá flott og gaman að fá það, Bróðir minn bjó til kertastjaka úr tré og brenndi stafinn minn í stjakann, síðan hafði systir mín perlað alveg helling handa mér, eitt stórt hjarta og eitt lítið og svo var einn svona kassi, rosa flott allt.

Sunnudagur:Ég vaknaði um ellefu leytið og dreif mig með Sigurrós í ræktina til að prufa allt nýja outfittið og kannski aðeins að grynnka á matnum sem var borðað kvöldið áður. Síðan kom ég heim og bara sofnaði og svaf til um að verða hálffjögur þegar Mamma og pabbi og systkini mín hringdu og spjölluðu við mig. Eftir að hafa talað við þau, þá ákváðum ég og Gummi að baka okkur pitsu, ég bakaði og Gummi fór út í búð að kaupa á hana eitthvað gott, það var semsagt ljúffengur matur hjá okkur. Síðan stálumst við til að horfa á myndina sem ég keypti fyrir Bróður minn, eða sko dönsku kennarann hans, reyndar var þetta opið svo að við rufum nú ekkert innsigli. Við ákváðum líka að testa hvort myndin væri nú öll í lagi áður en að við sendum hana, ég verð að senda hana á morgun, ég gleymdi henni heima í dag. Þetta var bara rólegur og góður afmælisdagur enda var nú líka bara öll helgin á fartinum, þurftum aðeins að slappa af á Sunnudeginum.
// posted by Bryndis @ 07:56

Saturday, March 08, 2003

Festen!!


Já það var virkilega skemmtileg fest sem ég héllt í gærkvöldi. Ekta dönsk veisla, með bjór og teningaspili sem heitir "meget" borið fram sem mæja. Hef eiginlega ekki mörg orð að lýsa því annað en "FRÁBÆRT"
// posted by Bryndis @ 08:44

Thursday, March 06, 2003

Núna stendur afmælisundirbúningur yfir , fór í dag og keypti tvo kassa af bjór og einn kassa af gosi í gleri, ( mmmmm...... er alltaf best í gleri). Ég reyndar ætlaði að plata Gumma til að fara með mér, við ætluðum að fara og kaupa kassa út í lokalbrugsen sem er í svona 5 min göngufæri, ætluðum að hjóla þangað og reiða svo hjólið tilbaka með kassann á bögglaberanum. Hefði alveg reddast en þá hefði ég ekki getað keypt gosið í gleri líka.....En maður á víst svo góða að hérna úti, Sigurrós bjargaði mér enn einu sinni og skutlaði mér í búð og með allt heim.....hún reyndar gat nú ekki alveg verið útundan og keypti einn kassa af gosi í gleri og ýmislegt annað gott. En við ákváðum það að grilla saman á laugardaginn, ég reyndar spurði ekkert Gumma að því, bara ákvað að segja já, ég keypti líka kjöt m..... danskar middagssvínakótilettur eru geðveikt góðar. Mareneraði þær áðan.....umummm....svo verður bara grillað og tekið spil eftir matinn..... Er bara farin að hlakka til, reyndar þekkji ég nú Gumma vel og veit að hann segir ekkert nei, er alltaf til í allt svona sem er skemmtilegt.
Það verður semsagt bara stuð alla helgina hjá okkur, fyrst afmælispartý á morgun, grillveisla á laugardaginn, og svo er minn æðsti draumur að á sunnudaginn ( raunverulega afmælinu mínu) að fara út að borða og svo á james bond í bíó, þar sem að nú 1/3 af myndinni var tekinn á Íslandi, en efast stórlega um að eftir svona stóra helgi og miklar veislur að maður leggi í að fara út að borða svo að það sem er eftir af draumnum mínum, það er bondinn á afmælisdaginn.
Svo á ég svo ógeðslega góða foreldra og ömmu að þau eru búin að gefa mér penge svo ég geti keypt mér eitthvað fallegt, ætla að fara í bæinn á laugardaginn og reyna að kaupa mér skó. Þannig að ég get nú ekki sagt annað en að ég bíði spennt eftir helginni. Langt síðan það hefur verið svona margt skemmtilegt í gangi hjá mér á einni helgi.
Annars bara kveðjur frá mér...

og já ég gleymdi að segja takk held ég við Sigurrós áðan, var svo upptekinn að koma öllu dótinu heim, bera það upp tröppurnar og svona alla kassana að ég man ekki alveg hvort ég hafi þakkað fyrir mig. En ef ég gleymdi því þá segi ég bara Takk Sigurrós.


// posted by Bryndis @ 14:03

Wednesday, March 05, 2003

Fyrirlestur.


Já þá er komið að því minn fyrsti fyrirlestur á dönsku, hmm.......... ég er sko miklu betri en ég var í dönsku en ég er samt ekki nógu góð til að geta haldið fyrirlestur.
En í morgun þegar ég mætti í skólann voru umræður í gangi um fyrirlesturinn og ein bekkjarsystir mín sem er í hópi með 2 öðrum bekkjarbræðrum mínum sagði að þau væru nú ekki með svo langan fyrirlestur en þau ætluðu bara að "improvisera" á staðnum og bulla eitthvað um þetta. En ég sagði að við þrjár ( ég , sara, sólveig = islenska klanið) værum nú ekki svo heppnar vegna þeirrar einföldu ástæðu að okkur vantaði orðaforða til að geta dottið í hug eitthvað sniðugt að segja fyrir framan 40 manns. Hún sagði bara að við ættum að bulla nógu mikið og í staðinn myndi hún klappa rosavel í lokin og þykjast hafa skilið allt ( ein sem er greinilega að vænta þess að skilja ekki neitt, sem ég lái henni ekki).
En mér fannst þetta drullugott ráð hjá henni, við verðum bara að tala rosa mikið og þykjast vita allt um þetta, það skilur okkur hvort eðer enginn.

// posted by Bryndis @ 12:48

Monday, March 03, 2003





I'm Chandler Bing from Friends!

Take the Friends Quiz here.

created by stomps.





// posted by Bryndis @ 13:10

Sunday, March 02, 2003

Þetta er bara búið að vera hin fínasta helgi, við fengum gesti á föstudagskvöldið og fórum svo aðeins á vertarann ( kollegiubarinn) en þar stendur yfir 100 daga fest. Á föstudaginn var grímuball og þar voru margir í hinum ýmsu búningum, við ákváðum bara með klt fresti að fá gesti og gera eitthvað um kvöldið svo að við vorum nú ekkert búin að undirbúa neina búninga, en margir voru ansi skrautlegir ég segi nú ekki annað.
Síðan í gærkvöldi var gjörsamlega ekkert í sjónvarpinu, jú dönsku tónlistarverðlaunin og þar voru Nik og Jay og Saybia sem sópuðu að sér ansi mörgum verðlaunum. Síðan var ég að komast að því að það er önnur hljómsveit sem er dönsk og heitir Outlandish, já maður er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt sambandi við danina, en það er bara fullt af góðri tónlist hérna í danmörku, Saybia er svona voða svipuð hljómsveit og Coldplay og er víst búið að spila svoldið heima seinasta árið og fæstir vita að hún er dönsk ( en ég er ekki búin að vera heima seinasta árið svo ég veit ekkert hvað er að gerast þar)
En í gærkvöldi fórum við í heimsókn og sáum þessi dönsku tónlilstarverðlaun og okkur var sko boðið upp á kræsingar þó ég segi nú ekki meira, en það var apallo lakkris og góu súkkulaði rúsínur, semsagt allt kræsingar úr mínum heimabæ firðinum. Þetta voru sko veitingar í lagi, og maður kom með bros á vör heim aftur frá Sigurrós og Ingva.
// posted by Bryndis @ 09:11

This page is powered by Blogger. Isn't yours?