Monday, June 30, 2003
Legoland! Við fórum í gær í Legoland, ég, Gummi og Ásdís Birta. Það var ekkert smá gaman hjá okkur, við fórum í öll tækin og sum tvisvar, veðrið var ekkert spes, þannig að það voru engar raðir, reyndar var þetta frábært veður, það var smá úði og við vorum bara í regngalla og okkur leið vel, við stoppuðum ekki, hlupum bara úr einu tækinu í annað og litla stúlkan vildi prufa allt og þá meina ég allt, hún fór í alla rússibana og allt, ég þorði ekki í einn en Gummi fór með hana. Reyndar var einn sem ég fór með hana í, svona tæki þar sem lappirnar löfðu niður og maður fór á hvolf og svona, en við völdum sko sjálfar hvað hann myndi gera fyrir okkur, en við áttum nú samt ekki alveg von á svona ferð, við vorum báðar skíthræddar, en það var nú bara gaman þegar þeirri ferð var lokið.
Síðan var farið nokkrar ferðir í þetta skemmtilega, hún prufaði allt í legoland nema bíla, langaði ekkert í það ( það var alltaf uppáhaldið mitt þegar ég var lítil).
Hún fór ein í parísarhjól og ég veit ekki hvað, það var ekkert smá gaman hjá henni, og ég verð að viðurkenna það að ég skemmti mér ekkert verr.
Síðan á leiðinni heim fórum við á Mcdonalds, enda er nú ekki oft sem ég fæ að gera eitthvað svona með henni systur minni.
En þetta var alveg frábær dagur.
Kveðja Bryndís

Thursday, June 26, 2003
Það er aldeilis tíðinda dagur í dag, búið að breyta einhverju á blogger og ég var að klára seinasta prófið mitt, fæ svo að vita eðlisfræðieinkunnina seinnipartinn og er alveg með hjartað í buxunum, reyndar ætlar Mie að kíkja fyrir mig, hún er að fara upp í skóla að tékka á leiðinni í bekkjarpartý og hún bauðst til að tékka fyrir mig, og ég þáði það með þökkum. Hún er sko ein af fáum bílandi dönum, en ég ætla að kíkja í bekkjarpartý, hjóla svo niður á lestarstöð og beint upp á Kastrup að taka á móti gestunum sem eru að koma, mamma, pabbi og Ásdís Birta.
En það er sól og 25 stiga hiti út, ekkert smá heitt og frábært veður......
en bara sólarkveðjur frá próflausu píunni.......
En það er sól og 25 stiga hiti út, ekkert smá heitt og frábært veður......
en bara sólarkveðjur frá próflausu píunni.......
Tuesday, June 24, 2003
Ég var að fá einkunnina úr stærðfræðiprófinu og mér gekk bara vel, er sátt við mitt....................
Monday, June 23, 2003
Voða lega er erfitt að koma sér að verki að læra núna, bara 3 dagar eftir með þessum til að læra undir seinasta prófið.....
ég ætlaði sko að fara að blogga helling, svo hringdi sólveig ákkurat þegar ég var búin með fyrstu línuna, við ákváðum að hittast bara upp í skóla og læra, þar hefur maður ekkert svona til að stelast í eins og tölvu, ( eða reyndar eru fullt af tölvum þar, en svona aðeins lengra að labba í þær, ef maður situr niðri í studiezonen)
jæja er farin í sturtu og að hjóla upp í skóla..........

Tuesday, June 10, 2003
Þá er sólin loksin komin aftur, það var gott veður í gær og í dag. Versta er að ég er bara á fullu að læra og frjókornin eru alveg að gera útaf við mig og ég á enga nefdropa né augndropa. Þannig að ég er bara inni, reyndi að vera úti í dag en eftir klukkutíma fór ég inn með rauð augu og lekandi nef.
Verð bara að drífa mig í því að panta tíma hjá heimilislækninum og heimta almennilegar ofnæmistöflur og nefdropa og augndropa. Seinast þegar ég fór lét hún mig bara hafa eitthvað claritin drasl sem virkar ekki jackshit, hún sagðist ekki geta látið mig fá þessar sem ég væri vön að taka, dont know why?.......
en annars er bara allt gott að frétta af mér og hef það voða gott, bara rólegheit að læra á daginn og svo hef ég nú alveg haldið frí á kvöldin semsagt bara notaleg heit hérna hjá mér.... en það er farið að styttast í prófið núna eru 9 dagar og þá koma mamma og pabbi og ásdís birta og ég er bara farin að hlakka til. Ég ætla út á flugvöll að ná í þau, semsagt eftir prófið þá verður bara beint heim og búa um þau og svona áður en að þau koma og gera kannski pínu fínt, svo að ná í þau um kvöldið. Síðan verður bara stuð hjá okkur fram á þriðjudagin 1.juli en þá byrja ég að vinna. En þau verða nú hérna áfram og hafa það gott í Danmörku ég vona bara að það verði áfram gott veður.
En alla veganna er farin að læra aðeins meira í dag um þá Hardey-Weinberg gaura,
kveðja frá danmörku ......

Monday, June 09, 2003
Ég var að forvitnast áðan hverjir væru að skoða síðuna mína og komst að því að það eru nokkrir sem ráfa hingað inn af leitarvélum, og þar á meðal einn sem var að leita á spænskri leitarvél að leita að grúppunni Bryndis held eg alla veganna kom upp mín síða og síðan hjá hljómsveitinni Bryndis, en ég verð nú að viðurkenna að þeir standa ekki undir nafni, prufaði að hlusta á hljóðdæmi hjá þeim en ef þið viljið heyra fyrir ykkur sjálf þá er linkurinn hérna hérna . og svo er myndband með þeim hérna svo eru alveg fullt af diskum með þeim til sölu hérna og svo hérna er einn helvíti flottur diskur með þeim frá 1996. Maður verður víst að promota þá fyrst þeir bera nafið manns, þó mér finnist þeir ekki alveg standa undir því........en label fyrirtækið þeirra heitir barasta Disa, já maður er sko aldeilis hlessa. En Bryndis þýðir víst skál á spænsku, svo þeir eru nú ekkert svo frumlegir.
Ég held að heilinn á mér sé bara að springa, eða er ég bara komin gjörsamlega með ógeð á stærðfræði, ég sagði reyndar eftir seinasta stæ áfanga í framhaldsskóla að þetta yrði sá seinasti, en það var víst vitleysa hjá mér ég er víst búin að vera heilt ár í stærðfræði í viðbót, mér finnst hún nú reyndar ekkert leiðinleg. En það er próf á morgunn og mér langar svo að fá góða einkunn( svona 11 alla veganna, en það eru bara svo fáir undanfarin ár sem hafa fengið góðar einkunnir í þessum prófum, þannig að líkurnar eru ekki miklar ), en ég er búin að reikna sko öll prófdæmi sem við tókum í vetur aftur, ég er búin að reikna 70% af öllum dæmum sem við reiknuðum úr bókinni ( hin 30% hef ég ekki tíma fyrir) og ætla að fara í þessi 16 skilaverkefni í dag og reikna þau, en samt einhvern veginn vildi ég hafa meiri tíma þó ég sé næstum farin að æla stærðfræði út úr eyrunum. Daginn fyrir stærðfræði próf í framhaldskóla slappaði ég nú bara alltaf af, eða sko fór í lesna prófið og svo bara á skalla að fá mér ís eða eitthvað og bara glápa á sjónvarpið, því eftir lesna prófið kunni maður allt, en mér einhvern veginn líður ekki núna eins og ég kunni allt, á manni kannski aldrei eftir að líða þannig í háskóla ég bara spyr, en ég fæ nú að hafa bókina með mér í prófið þannig að þó ég kunni ekki allt get ég nú alltaf fundið sýnidæmi í bókinni eða önnur dæmi sem við höfum reiknað í vetur ( vona ég) , alla veganna bara hugsið endilega fallega til mín.
Já og svo einar góðar fréttir Mamma og Pabbi og Ásdís Birta voru að kaupa sér flugmiða hingað til mín, þau koma daginn sem ég verð búin í prófum eða semsagt eftir rúmar 2 vikur og verða hérna í 10 daga. Ég og Ásdís ætlum alla veganna í Legoland og ég er bara farin að hlakka til að fara með henni, verður stuð hjá okkur systrunum. Svo var ég að vonast til að geta dregið þau með í dýragarðinn hérna í Odense ég hef aldrei farið í hann og svo langar mér líka á siglingu um Odense á, en þetta kemur bara allt í ljós, bara verður gaman að sjá þau og vonandi verður veðrið gott þegar þau koma.

Saturday, June 07, 2003
Mér langaði að deila með ykkur sögu sem ég heyrði hérna í danmörku, þið sem búið hérna í Odense og eruð að lesa þetta, þá hafið þið örrugglega heyrt hana oft. En þannig er mál með vexti að á leikskóla einum hér í bæ er mikið af íslenskum börnum og þeim er bannað að tala íslensku sín á milli, og það er ósköp eðlilegt þegar maður heyrir ástæðuna. En það er nú þannig hér í danmörku að það er mikið af innflytjendum sem tala ekki orð í dönsku og svo eiga þeir mörg börn og börnin læra dönskuna fljótt, alla veganna fljótar en foreldrarnir, og á þessum áðurnefnda leikskóla kom innflytjendabarn og foreldrarnir voru rosalega ánægðir því að barnið náði dönskunni rosa fljótt var farið að babla eitthvað heima hjá sér sem foreldrarnir skildu ekki neitt og auðvitað gerðu þau ráð fyrir að barnið væri orðið rosa klárt í dönskunni, en síðar kom það í ljós að barnið var orðið "altalandi" á íslensku en kunni ekki orð í dönsku. Mér finnst þetta alveg ógeðslega fyndið, en greyið foreldrarnir barnið búið að læra eitthvað mál sem bara rétt um 300 þús manns tala og það mun aldrei geta nýtt sér og var ótalandi á dönsku. Þannnig að það er bannað að tala annað en dönsku á leikskólanum sem er bara eðlilegt þegar maður heyrir þessa bráðfyndnu sögu...........
Monday, June 02, 2003
Yndislegur dagur............. fyrir utan eitt smá sko, var eiginlega í 5 tíma prófi, en sko veit ekki hvernig mer gekk gerdi alla veganna mitt besta og vona að mitt besta sé nog. Annars var almenn óánægja með hvað prófið var erfitt.
En eftir prófið var sko yndislegt, hjóluðum í friluftsbadet, og þar var sko legið i sólinni og safnað brúnku, á milli var kælt sig í lauginni og prufað 2 ferðir í rennibrautinni og ein í lítilli rennibraut sem var uppblásinn og svona á floti í lauginni.
Síðan eftir sundferðina var komið heim og grillað fyrir utan hjá Söru, semsagt bara snilldardagur. Og friluftsbadet er bara 5 min fra herna heima, madur er enga stund ad fara, sko 5 min a hjoli, kannski svona korter ad labba. Þeir sem ætla sér að heimsækja mig í sumar verða að gera sér grein fyrir að ég stefni að því að eyða góðum tíma þarna í sumar, styttra en á ströndina og bara frekar nice þarna.
Nú er svo bara þessi hálfi frídagur komin að lokum og viðtekur lestur fyrir stærðfræði próf sem að ég ætla að taka með trompi eins og alltaf........

Sunday, June 01, 2003
Þá er stóra stundin runnin upp
fyrsta prófið mitt er á morgunn, nú verða bara allir að krossa fingurnar og vona að ég nái. En sama hvernig fer ætla ég að njóta morgundagsins og taka mér frí eftir prófið, við 4 íslensku skutlurnar ætlum að taka fram bikinin og fara í sund og liggja þar og verða ógeðslega brúnar og kæla okkur svo á milli í lauginni, einnig gæti verið að við skreppum eina ferð í rennibrautina.
En ég hlakka rosalega til að fara út og njóta veðursins á morgunn eftir prófið.............