Tuesday, July 29, 2003
Ég held að dagurinn í dag hafi bara verið heitasti dagur sumarsins það var 32 stiga hiti á mæli í skugga hjá einnu gömlu kellunni sem ég var að aðstoða í dag. Það var eiginlega of heitt til að vinna, en ég náði nú samt að þrífa gólfið hjá henni og svo sátum við og spjölluðum, ég fékk reyndar leyfi til að fá að pússa gluggana hennar , en hún vill helst ekki sko að ókunnugir geri neitt hjá henni og þetta er núna 3 skiptið sem ég er hjá henni þannig að min er farin að sannfæra hana um að láta mig þrífa svoldið hjá sér, hún segist verða að gera eitthvað sjálf, en er svo alla daga í " vinnunni" svona dagvistun fyrir aldraða þar sem að hún föndrar, en hún þurrkar aldrei af, það er vibba ryk inni hjá henni og það fer svoldið í brjóstið á mér, en ég búin að virkja hana til þess að þurrka af meðan ég þríf gólfin hjá henni ( annars stendur hún yfir mér og færir hluti, og er meira fyrir en gerir gagn)
En hæ hó jibby ei og jibby ei, það er geðveikt veður..........
þeir sem eru að koma í heimsókn til mín á næstunni....... ekki gleyma sundfötunum..................

Saturday, July 26, 2003
Til hamingju með afmælið Eva í dag, og Anna sem átti afmæli 10 júlí, átti alltaf eftir að óska henni til hamingju
[img]http://www.smilies.nl/birthday.gif[/img]

|
Guð hvað ég væri til í að fara á ströndina, og liggja þar og flatmaga eins og strumpurinn. En það verður víst ekki á næstunni, en maður má láta sig dreyma....... |
|
Friday, July 25, 2003
Ég tók einn eitt IQ prófið, veit ekki alveg hvað er í gangi, bara ekkert í sjónvarpinu og mér leiðist.....
en ég fékk hærra skor núna, ég fékk 141 stig........
sem þýðir að ég er bara definitely genius....... ha ekki slæmt það.....
100 The average IQ Score.
120 Smart enough to finish most college undergraduate level courses.
130 Entry level "genius" score.
140 Definitely genius level.
150 Less than 1/2 of 1% of all IQ test takers achieve this score or higher.
ef þig langar að taka prófið er það á http://www.iqtest.com

Já það er ýmislegt spennandi sem maður tekur sér fyrir hendur loksins þegar maður á frí, ég t.d. var að taka gáfnapróf á www.persóna.is
þar fékk mín 132 stig, var ekki alveg viss hvort ég ætti að sætta mig við það en kíkti svo á einhverja útlenska IQ síðu og þar stóð sko
An IQ of 100 is higher than 50% of all persons taking this test.
An IQ of 110 is higher than 75% of all persons taking this test.
An IQ of 120 is higher than 93% of all persons taking this test.
An IQ of 130 is higher than 98% of all persons taking this test.
þannig að mín var rosa ánægð bara 2% prósent með hærri greindavísindatölu samkvæmt tölvunni, verst bara að það er ekkert að marka svona próf, það voru viðvaranir á síðunni um að maður mætti ekki taka of mikið mark á niðurstöðunni en að ef maður fær hátt þá. En ég kemst alla veganna ekki í klúbbinn með ofurgreindaliðinu, þessum tvö prósentum sem voru hærri,
. If your score is high, you may use that knowledge to see the possibility to achieve, easily, education that you now may feel incapable of obtaining
A higher IQ score is not a guarantee that an individual will achieve happiness, maintain sanity, or obtain spiritual growth.
Já maður öðlast víst ekki hamingju með háu IQ skori........ ( en hver hefði svo sem haldið það.......ja well.........

Loksins loksins frídagur.........
Ég á ekki marga frídaga þetta sumar, það er einn á viku, sem er frekar þreytandi, að vinna svona 6 daga í röð og svo einn dag frí og svo aftur sexvinnudagar.....
Ég átti að vinna síðan allar helgar í ágúst, en mín vildi ekki alveg sætta sig við það vegna komu bróður síns og bað um frí helgina 17 og 18 ágúst, en döhh..... það er sunnudagur og mánudagur, en mér er svo sem alveg sama bara ef ég fæ þetta aukafrí, verð þokkalega þreytt þegar skólinn byrjar eftir alla þesa vinnu....

Thursday, July 24, 2003
Ég er undir stöðugum árásum frá " thordenfluer" þetta eru viðbjóðsleg kvikindi, pínulítil mjó og löng, þær skríða á manni og manni klæjar undan þeim. Þær sækjast greinilega í svitann minn á daginn, ég sko hjóla eins og brjálæðingur milli staða í 25-30 stiga hita og svitinn lekur alveg af mér, og þær laðast greinilega að vel sveittum gellum, en sérstaklega á leiðinni heim, þá pirrar þetta mig, ég get varla hjólað er alltaf að bursta þær af mér, blása á þær, þær liggja um allt á mér. Fara í hárið jakk........... það besta sem ég veit er að koma heim og fara í ískalda sturtu og losna við thordenfluerne ( Thornenflúúeene )og svitann..
Saturday, July 19, 2003
Sweet sixteen......... eða svona næstum því
Ég var í 30 ára surprise afmælisteiti, afmælisbarnið var frekar hissa, en það var haldið úti í garði, allir bara með garðstólana sína og svo var skálað í freyðivíni og borðaðir ostar og annað góðgæti. Bara voða góð afmælisveisla, held alla veganna að afmælisbarnið hafi verið ánægt með veisluna sem kærastan hans stóð fyrir.
En þið baunabúar sem dveljist á íslandi núna eruð kannski að velta fyrir ykkur hver það er sem fyllti þetta ár, en það var hann Hilmar ( Nornin úr leikritinu). Það var gerð leit að brjóstunum hans en þau fundust hvergi, hefði verið góð kveðju og 30 ára afmælisgjöf. En þau eru að flytja heim til Íslands aftur og bara voða ánægð með það...
Annars var ég svo bara að enda við að elda kvöldmat handa átta manns og jesús minn þvílíkt magn, það mætti halda að það væri heil hersveit sem dvælist hérna hjá okkur. Svo erum við bara með ogguponsu ofn, þannig að mín er að hita matinn í 3 lagi, svo er settur álpappír og diskur yfir til að halda heitu, svo verður í lokin bara rétt sett inn í ofninn í 10 min, já það er ekki auðvellt að elda mat handa mörgum í pínu litlu eldhúsi. Svo eigum við ekki mörg eldfast mót, þannig að mín er að nota líka kökuform til að hita matinn í. Já maður bjargar sér.....
Næst á dagskrá er síðan að fara í sund eða ströndina á morgunn, spáin hljóðar alla veganna upp á 30 gráður og sól, vonum bara að það rætist.
Thursday, July 17, 2003
Jæja þá er loksins seinasta einkunnin komin og mín tilbúin í næsta ár og rosa feginn að vera búin með þetta fyrsta ár ( sem var ef ég á að segja satt frekar þurrt að mörgu leyti námslega séð). En nú fer að koma meira sem tengjist mínu áhugasviði, þar sem að fyrsta árið var sameiginlegt með allri raunvísindadeildinni og maður fékk að kynnast stærðfræði, líffræði, efnafræði, eðlisfræði, eiginlega svona framhald af náttúrufræðibraut í framhaldsskóla, byggt frekar á grunninn þar til að gera mann að betri vísindamanni með yfirsýn og þekkingu á fleiri vísindagreinum en bara sinni eigin.
En þar sem að ég var búin að gera mér grein fyrir fyrir löngu síðan að eðlisfræði og efnafræði eru greinar sem heilla mig ekki sérstaklega var maður á köflum oft ansi þreyttur á þessu fyrsta ári, þessar greinar einhvern veginn fanga bara ekki áhuga minn. En ég á víst eftir að taka meiri efnafræði næsta ár, en þangað til í haust ætla ég ekki að hugsa meira um það.
Er bara yfirþyrmandi ánægð að vera búin með þetta fyrsta ár, núna eru bara fjögur "tilbage". Ég trúi varla að þetta sé búið, þetta er búið að líða ansi hratt þetta fyrsta ár.
Á þessu ári er búin að læra
1) Skilja dönsku
2) Er að byrja að geta talað hana núna, er samt enn smá málhölt.
3) Læra helling nýtt og nytsamlegt
4) Læra helling leiðinlegt og algjörlega óþarft
5) Farin að geta eldað bara hvaða mat sem er
6) Búin að komast að því að mamma og pabbi voru ansi dugleg að hugsa um heimilið heima, og ég hefði kannski mátt vera smá hjálplegri ( en samt ágætt að hafa átt áhyggjulaus unglingsár, maður metur það núna)
7) hmm...... er það ekkert merkilegra en þetta sem ég er búin að læra á þessu blessaða ári...........alla veganna dettur mér ekkert í hug ákkurat núna, en mér finnst ég samt vera reynslunni ríkari og hafa lært helling.......en spurning hvað........

Saturday, July 12, 2003
þá er víst komið að því að segja ykkur aðeins meira frá vinnunni minni, en eins og flestir vita er ég hjólandi heimahjálp. Mér líkar bara vel við starfið svona að mestu leyti, en það er mikið að gera, dagurinn líður hratt og ég er yfirleitt búin um tvö leytið í vinnunni, sem er gott, en í staðinn þarf ég að vakna ansi snemma og vera mætt í vinnu kl 7.00 og þar sem að mín hjólar í hálftíma áður og þarf smá að pústa áður en er sest upp á fákinn aftur og farið að vinna er ég að fara út úr dyrunum svona korter til tuttugu minutur yfir sex.....
En ein gamla konan sem ég fer er algjör dúlla hún er 94 ára, en hin allra hressasta, talar reyndar svoldið hátt, og galar stundum og þá bregður mér ekkert smá. En hún kannski tekur allt í einu upp á því að gala "úúhaaa der kommer den helvedssil ........ ved du hva' de´eer, det er en nerve som BRÆNDER ( svo kemur sko aftur rosa hátt úúúhaaa öskur aftur, " en þar sem að hún öskrar þetta á hverjum degi þá er ég orðin svoldið vön þessu, en fyrst fékk ég alveg sjökk, hún benti á andlitið á sér og fór að tala um helvedssil ég héllt ég væri bara komin til einnar sem væri alveg út úr heiminum. En hún er það ekki og með mjög gott minni, er alltaf að spyrja um hann "vin" minn , eða hann Gumma og hvað hann sé nú að gera af sér þegar ég sé að vinna, hefur mjög mikinn áhuga að heyra um hann. En það eina sem ég geri fyrir hana er að hjálpa henni í nælonsokkabuxur... og kjafta smá við hana......
Reyndar er hún svoldið að rugla með þjóðernið mitt, í fyrradag þegar ég var að fara þá kom ein vinkona hennar, svona um áttrætt í heimsókn.... og þá heyri ég hana segja ( þið kannski munið en hún talar svoldið hátt)...... " Det er en normand, hun er så sød....." well ég er víst ekki norðmaður en hvaða máli skiptir það ég er víst vingjarnleg.......( vona að hún sé ekki að ruglast á því líka)..
En í gær þá sá ég róna í leit að rómans hérna á kollegiunni. Ég og Gummi fórum út í búð, og í röðinni á undan okkur var blindfullur gaur og pínu sjúskaður, hann tók upp klinkið sitt og var að telja það sem hann átti að borga og með klinkinu kom bara hassköggull á borðið, ekkert að fara leynt með það taldi bara klinkið og skellti svo bara kögglinum aftur í hólfið fyrir smápeningana í veskinu. Svo þegar við erum búin að borga og komin út sjáum við hvar hann stendur við blómabeð og er eitthvað að róta í jörðinni, við héldum að hann væri að grafa eitthvað niður, en við fórum síðan fyrir neðan sjoppuna og sátum og vorum bara að kjafta, þá kemur kallinn með blóm með rótum og öllu, eiginlega eitthvers konar mini trjátegund með rauðum blómum, okkur datt strax í hug að hann væri að fara í heimsókn til dömu, en mér fannst nú svoldið ulækkert að vöndurinn var með rótum og mold og öllu, og ræturnar voru ekkert smásmíði, hann tók líka eina trjágrein til að hafa smá grænt í vendinum og nokkra túnfífla til að hafa gullt, klassavöndur hjá honum. En hvað um það við sitjum í smástund og svo heyrum við rónann vera að tala við einhvern og koma aftur, þá er hann að spjalla við einhverja unglingsstráka um það hversu gott það sé að vakna hjá konu því þær lykti svo gott, við virtumst hafa eitthvað rétt í þeim málum að hann var í leit að kvonfangi en blómvöndurinn hans var horfinn, og hann var eitthvað að tala um fjölskyldu og svona við strákana, síðan labbar hann upp að búð með piltunum og kemur svo aftur eftir smástund með hjól, þá hafði hann gleymt hjólinu sínu við búðina. Síðan fer hann niður brekkuna fyrir framan þvottahúsið og er ekki með lappirnar á petulunum né hendurnar á handbremsunum og bremsar svona með löppunum, ég held það sé nokkuð erfitt edrú hvað þá blindfullur, svo segi ég svona við Gumma, hann á örrugglega eftir að enda í runnanum, en viti menn hann náði að stoppa rétt framdekkið fór í runnann fyrir neðan, en hann komst ekki til baka þurfti að fara af hjólinu og leiða það....... Ég veit ekki meira um afdrif hans en mér fannst ekkert smá fyndið að fylgjast með honum........
þá er þetta víst orðin ansi löng romsa.......skrifa meira seinna en þangað til þá bara ...........farvella

Thursday, July 03, 2003
Ég held að rassinn á mér sé að verða í laginu eins og hnakkur, ég er búin að hjóla svo mikið þessa viku, reyndar fékk ég að keyra í fyrsta skipti bíl í danmörku, það var ekkert smá nice. Vinnan er nefnilega með bíl sem hún lánar út til okkar, þeirra sem eru með bílpróf það er að segja, ég verð því á bíl oft á helgarvöktum sem verður nice, geta bara skutlast á bílnum, heldur en að hjóla á milli. Maður fékk svona smá hvíld milli staða og gat blastað útvarpið á fullu. En í dag var sko enginn miskunn bara lærin notuð til hins ýtrasta, en alltaf getur maður verið jafn latur að teygja, vöðvarnir á mér eru orðnir svo stuttir að ég hef á tilfinningunni að þeir fari að slitna einhvern daginn, svona svipað og ég hafði á tilfinningunni að afturdekkið á hjólinu mínu væri að detta af, og svo fyrsta vinnudaginn minn datt það bara af, og ég komst bara hvorki lon né don, þurfti að fá lánað hjól í vinnunni og svo laga þetta með höndunum áður en að ég hjólaði heim og ófá stoppin urðu á leiðinni og ég að herða dekkið, reyndar hafði pabbi lagað það daginn áður, en það er víst eitthvað skökk gjörðin á dekkinu þannig að held að afturdekkið mitt sé bara að gefa upp öndina.
jæja nú verð ég að fara að sofa, klukkan að verða tíu og ég þarf að vakna hálf sex í fyrramálið..............
góða nótt

Tuesday, July 01, 2003
Þá er maður byrjaður að vinna, búin að hjóla um allt í rigningu, þrífa hjá gömlu fólki og baða það , tala hellings dönsku og læra helling um t.d. hvernig maður vinnur bug á mauravanda og ýmsu sniðugu. Kom inn á mitt fyrsta danska heimili, hef bara komið heim til bekkjarfélaga minna, og herbergi og stúdíóíbúðir þeirra flokkast varla undir heimili, þar er oft að finna, sjónvarp, svefnsófa, combiovn( sem er örbylgju + venjulegur ofn), ef þau eru heppin eru þau með sér bað og eldhús en annars er þetta sameiginlegt með nokkrum, þetta inniheldur líka oft ansi mikið drasl, alla veganna virðast bekkjarfélagar mínir ekkert vera sérstaklega iðnir við það að þrífa eða taka til hjá sér fyrir partý, enda kannski skynsamleg ákvörðun, ekki er mikið hreint eftir þau, blessuðu partýin.
jæja nú er víst komin tími til að fara að sofa...... enda bíður harður dagur í hjemmehjælpen.....................