<$BlogRSDURL$>

Sunday, August 31, 2003

Ég er með rosalegar harðsperrur, ég held að sko samansafnaðar harðsperrur sumarsins séu að koma í ljós. En ég er alltaf búin að vera að hjóla ca 30 km á dag, kannsk einn og einn frídag inn á milli en aldrei fengið harðsperrur. Síðan er ég ekki búin að fara í vinnu í 3 daga og ekki hjólað neitt, ég gat varla gengið í dag þegar ég vaknaði, en svo var ég í rundtball í gær, við unnum fyrsta leikinn, en lögðum okkur ekkert öll í næsta leik því það var svo geðveikt rigning, þannig að við töpuðum honum, vorum mjög fegin gátum þá farið heim, en unnum í staðinn engann bjórkassa, mér var svo sem alveg sama, það var ekki þurrblettur á mér og kylfurnar voru farnar að fljúga inn á völlinn því allt var svo blautt, enginn hitti á boltann og misstu margir takið á kylfunni, var eiginlega orðið stórhættulegt.
En ég er örrugglega bara með harðsperrur eftir rundtball....... er rosalegt....
en svo var grisefest i gær, heilsteiktur pattegris.... við fórum og borðuðum okkur södd, en ég verð nú að viðurkenna það að ég hef skemmt mér betur......
En svo var ball með hljómsveit, þetta var eiginlega bara bílskúrsband með þvílíkum hávaða og gargi, við gáfumst upp á látunum og fórum heim til Söru, síðan eftir klt lögðum við í hann aftur, en þá hittum við Niels, Árný og Ragnheiði, en þau voru úti á svölum og við skelltum okkur þangað inn, síðan lögðu nokkrir fílar á stað í leiðangur út á bar, sem endaði með því að það var fullt og þau 3 fengu ekki að fara inn....... Eftir stutt stopp vildi Gummi fara heim, enda mikilvægur fótboltaleikur daginn eftir...... þannig að viðburðalítið kvöld en samt ánægjulegt...

Friday, August 29, 2003

Mín var í klippingu á þriðjudaginn, aldeilis búin að gera breytingu á sér. Er komin með svaka töff klippingu.
Síðan fór ég í bæinn í gær og verslaði mér úlpu, trefil, húfu og vettlinga, mér finnst orðið ógeðslega kallt hérna þó það sé núna um 16 hiti og venjulegt íslenskt sumarveður, en thermostatið mitt er eitthvað vanstillt.
Ég keypti mér jakka/úlpu í HM, svartann jakka með hettu, ýkt sætur. Svo keypti ég mér röndóttan trefil og vettlinga, svarta húfu og bleikan bol.

Síðan er ég búin að gera forstofuna hjá okkur svoldið appelsínugula, keypti appelsínugulan blaðastand, málaði snagana í forstofunni appelsínugula og var svo um daginn búin að setja speglaflísar og mála appelsínugult í kringum þær. Er orðið svoldið líflegra og litaglaðara þar.

Ég héllt að það færi núna að hægjast um hjá mér eftir sumarið, svona þegar gestagangurinn færi að hætta, en aldeilis ekki, núna eru allir að koma út aftur og þeir sem voru hérna í sumar að lifna við, það er bara eitthvað að gerast á hverju kvöldi og félagslífið er greinilega tekið við. En í kvöld er saumó hjá okkur stelpunum á raskinu ( gaman að hitta þær aftur eftir sumarið og forvitnast um hvort það séu komnar eitthverjar nýjar). Síðan á morgun þá er grisefest hérna á kollegiunni og spilaður hafnabolti um daginn, semsagt keppni milli blokka og gyde, bara fínt, við ættum nú að safna í lið hérna í blokk 14, veit alla veganna um tvo gríslinga á þessu heimili sem væru til í að keppa.
Síðan verður grillað heilt svín og gætt sér á því...... mmmmmmm......
og svo ball seinna um kvöldið á barnum.


Thursday, August 28, 2003

Víííí........... frídagur í dag, ætla sko að njóta hans, vaknaði reyndar allt of snemma miðað við það að ég sofnaði 2 og hálfum tíma seinna en " venjulega" í sumar. En það er smá sól úti en samt skítakuldi. Í gær í vinnunni var mér kallt í fyrsta skipti í sumar og með ískaldar hendur, greyið gamla fólkið. Þetta virðist ekki stefna í eins góðan september og í fyrra, þá var sko sjúklega gott veður og um 25 stiga hiti.

Ég hef svo sem ekkert að segja........................


Hvem ka'
Bilka

Hvordan dufter det?
rugbrød milt
men hvordan dufter det?
rugbrød milt, men lidt anderledes

Saturday, August 23, 2003

Bara 7 vinnudagar eftir og 8 dagar í skólann....... hmm svoldið skrýtið sumarið búið og ég er enn að bíða eftir að það byrji....... well ætla pottþétt að fá mér sumarfrí næsta sumar...... bara spurning hvar í heiminum það verður......

Friday, August 22, 2003

Já þá er nú farið að líða að því að skólinn hefjist aftur.....
9 vinnudagar eftir, 10 dagar þar til skólinn hefst. Ég á eftir að eiga frí næsta fimmtudag annars er ég að vinna alla daga þangað til skólinn byrjar og helgina áður en að skólinn hefst. En ég er búin að vera að vinna á stað með miklum vandamálum, nýjum yfirmanni sem veður bara á skítugum skónum yfir starfsfólk sitt, við tveir sumarstarfsmennirnir erum ekki þeir einu sem er farið illa með, hún bara breytir frídögum, hvað þú vinnir lengi bara eins og henni hentar án þess að láta vita, fasta starfsfólkið lætur hún nú vita daginn áður, en jesús minn ég er orðin frekar pirruð á henni. Hún spurði síðan í dag hvort ég vildi vinna eitthvað í vetur og ég afþakkaði það pent, þá spurði hún en hvað með haustfríið, ég sagði nei takk.....
Semsagt eftir 10 daga verð ég laus þaðan og ætla aldrei þangað aftur, nema ég í neyð vanti vinnu..... held bara að þetta sé ein versta vinna sem ég hef verið í, aldrei hefur nokkurn tímann verið ætlast til þess að ég vinni 5 helgar í röð og það sé bara breytt frídögum oftar en nærbuxum og geti aldrei reiknað með að mæta í vinnu og fara heim á þeim tíma sem mér var sagt daginn áður. Já mín er pirruð en þetta er á enda rétt bráðum................

Monday, August 18, 2003

Ég var svoldið utan við mig í dag, ég skellti mér í sturtu og svo ætluðum ég og lille bror að drífa okkur í verslunarleiðangur með hann að kaupa sér nú föt í útlandinu. En alla veganna þá þvoði ég á mér hárið og skolaði eins og lög gera ráð fyrir síðan setti ég helling af hárnæringu og hmm...... er ekki viss um að ég hafi skolað...
Alla veganna þegar við komum í Bilka að kaupa nærbuxur á tilboði fyrir lille bror þá var hárið á mér svoldið hart, og hmm...... lyktaði frekar vel..... hef svona grun um að ég hafi ekki skolað hárnæringuna úr........ púúhaa

En Sigurrós og Nökkvi eru komin frá Íslandinu og þau komu með svoldið gott handa okkur, keypti helling af íslensku nammi, allt of mikið, en ég segi nú ekki nei við svona góðri gjöf mmmm.......
Voru að þakka okkur fyrir að passa íbúðina þeirra, mér finnst ég samt ekki eiga skilið allt þetta nammi, þau eru alltaf að gera eitthvað fyrir okkur, en nammigrísinn ég er sko rosa ánægður með nammið......

en meira um hárið á mér, ég skolaði það áðan í vaskinumog mér líður eins og það sé ennþá hárnæring í hárinu, verð bara að fara í sturtu...

þannig að Farvella.............


Friday, August 15, 2003

Þá er maður komin heim úr alldeilis reisu, fórum sko til kóngsins köben með lille bror og þar skelltum við okkur í tívolí og svo smá skroppið á strikið. Síðan áttum við gistingu á farfuglaheimili í 3 manna fjölskylduherbergi. En þegar þangað var komið áttum við bara eftir allt ekki 3 manna herbergi, en þar sem að við vildum ekki sætta okkur við að vera öll þrjú í sitthvoru herberginu með helling af liði, rökræddum við á dönsku og útskýrðum bara einfaldlega fyrir henni að við hefðum fengið staðfestingu á 3 manna herbergi og hringt líka til að vera viss um að staðfestingin væri rétt og hvort við gætum komið kl 20:00, en allt kom fyrir ekki.
En ég held að þetta sé fyrsta skipti sem við gátum rætt málin á dönsku með svona dót og staðið á okkar, oft þá gefst maður upp því manni vantar orð eða bara skilur ekki en neihei ekki í þetta skipti................
Við fengum svo okkar 3 manna herbergi sem var reyndar 5 manna en við vorum bara þrjú í því, þannig að það var mjög notalegt hjá okkur.
Lille bror sagði reyndar að þetta væri bara eins og hótel, well það vantaði nú smá en þetta er mjög fínt farfuglaheimili.
Daginn eftir vöknuðum við svo og skelltum okkur í bonbonland, semsagt dagur númer 2 í skemmtigarði, en þar fengum við nokkrar adrenalín sturtur eins og lille bror segir, reyndar sá Gummi aðallega um það en hann fór 6 eða 7 sinnum í nýjasta tækið í bonbon land, sem er þokkalega stór rússibani, með 17 m háu falli, eða sko farið beint niður og endar svo í beygju, þetta er 22 m hátt, en beina fallið er 17 m og það virkar á mann þreföld þyngdin manns í þessu tæki. En þetta var hann alveg óður í, fór aftur og aftur, en við systkinin létum okkur nægja að horfa á hann kallinn.
En guð hvað ég var þreytt eftir þessa tvo daga, og þurfa svo að vakna í vinnu í dag það var frekar erfitt, en í staðinn fyrir að sofa þegar maður kemur heim, eins og manni dreymir um á morgnanna og hugsar allan daginn, þá fer maður í tölvuna eða gerir eitthvað þegar maður kemur heim, er sko ekki alveg þá tími til að sofa, þó maður hafi ætlað sér það allan daginn.

Nú er farið að styttast í skólann, bara tvær vikur í að hann byrji, er ekki alveg tilbúin í það, þarf alltaf að fara að drulla mér í að hjóla upp í skóla og tékka á í hvaða holdum ég er, svo ég geti nú sett saman stundatöfluna mína, en er ekkert rosa dúlleg, er eins og ég sagði rosa þreytt og nenni ekki að hjóla meira í dag.....

Sunday, August 10, 2003

Þá er bara litli bróðir einn á leið út í heim! Mér finnst ótrúlegt hvað hann er orðin stór, 13 að verða 14 ára. Mér fannst ég sjálf svo rosa fullorðin þegar að hann fæddist ég var 10 að verða 11 ára.
Hann var sko allgjör dúlla ( og er enn), en hann var alltaf að banka á dyrnar á herberginu mínu og vildi ólmur komast inn, en gelgjan ég þegar ég var á sama aldri og bróðir minn nennti ekki alveg að hafa hann rífandi og tætandi inni hjá mér svo oftast var honum hent út og læst á eftir, en hann bankaði og bankaði og kallaði " DISDÍS" þá hækkaði mín í tónlistinni, en hann gafst ekki upp bankaði og bankaði, "disdís mín"

En svo labbaði ég einn vetur alltaf á morgnanna með litla brósa á leikskólann, en það var ekki ókeypis fyrir foreldra mína, ég fékk 500 kr á viku fyrir það.
En hann var sko algjör dúlla hann brósi, þekkti orðið alla og allir féllu fyrir þessum litla sjarmör, hann var pínu búttaður með algjörar bollukinnar.

Hann þekkti orðið bankakonurnar með nafni þegar hann var 4 ára, og ég fór með hann í bankann, og þá segir gjaldkerinn við bróður minn ( ég hafði verslað við þennan banka í 15 ár, alla mína ævi) nei er þetta systir þín Brynjar, þá hafði hann víst talað helling um mig í bankanum, en hann talaði ansi mikið, lærði snemma að tala og talaði út í eitt. Það var ekki ein manneskja sem hann gat ekki brætt hjartað á, hann kom heim með spil úr bankanum, hann kom heim með eitthvað alls staðar engin hjörtu voru ósnert þar sem að hann fór.

En nú er hann bara að koma til mín, flýgur aleinn, já rosalega er tíminn fljótur að líða. Fyrir mér verður hann alltaf litli bróðir sem bræðir öll hjörtu, ´

Ég hlakka til að hitta hann seinnipartinn þegar að hann kemur.............

Friday, August 08, 2003

Þá er bloggæðið að ríða sér rúms meðal yngri kynslóðarinnar líka, en bróðir minn er að útbúa bloggsíðu fyrir litlu systir mína og hann er búin að gera banner sem lítur svona út




Það er ekkert smá heitt........
búin að vera 29-30 stiga hiti síðustu 2 vikur og það er ekkert að fara kólnandi næstu daga alla veganna, og það er frekar mikill raki orðinn, bara eiginlega varla hægt að þola hitann og hvað þá að vinna í honum...
Á leiðinni heim ætlaði ég að versla mér eitthvað til að borða í kvöld og svo nesti í vinnuna um helgina, það eina sem ég keypti voru drykkjarvörur, ég keypti þrjár 2 lítra gosflöskur, mjólk, drykkjarjógúrt, og helling af hálfslítra sódavatni, og fattaði þegar ég var að setja oní poka, ég þarf nú kannski að borða eitthvað.... ekki bara drekka, en það eina sem kemst að hjá manni er að drekka, enda þarf maður ekkert smá mikinn vökva sérstaklega þegarmaður er að vinna í svona hita og sól, það á að vera bannað að vinna yfir heitasta tímann, afhverju er ekki siesta hérna...

skil sko alveg núna afhverju spánverjar eru svona rólegir í tíðinni, það er bara ekki hægt að vinna í svona hita, manni líður ekkert smá illa að vinna við þessar aðstæður...

þær segja það í vinnunni að þetta sé heitasta tímabil sem þær muna eftir hérna í danmörku, sögðu að það hefði oft verið svona sólrík sumur, en ekki svona rosalega heit.... hitinn er alveg að fara með alla..... en við ættum kannski ekki að kvarta það er enn heitara annars staðar í Evrópu......

Thursday, August 07, 2003

Ohhh my god, var að kaupa mér í seinustu viku hörbuxur, ég setti þær út á svalir og þær eru búnar að vera þar í 2 daga, þær eru ónýtar, upplituðust í sólinni og frekar flekkóttar, ok þetta voru ekki dýrar buxur, en jesús minn sólin eyðilagði þær, svona lendir maður alla veganna ekki í á íslandi.....
( hnuss.... glænýju sumarbuxurnar mínar)

Friday, August 01, 2003

Hérna kemur litla dúllan hún systir mín.........þessi mynd var tekin þegar að hún var hérna í sumar.
a hlid

This page is powered by Blogger. Isn't yours?