Sunday, November 30, 2003
Skemmtilegt jólalag..... endilega hafið hljóðið á og hlustið á fallegan söng
http://www.batman.is/ut/35915
http://www.batman.is/ut/35915
Fyrsti sunnudagur í aðventu komin, ég búin að gera eina genaflevering og eina skýrslu, búin að kveikja á einu kerti í aðventukransinum, og á bara eftir að gera í BM112 verkefninu, gera tvö skema i Kemi og þá er ég tilbúin að takast á við næstu viku úff púff.. nóg að gera ......
Saturday, November 29, 2003

cuddle and a kiss on the forehead - you like to be
close to your special someone and feel warm,
comfortable, and needed
What Sign of Affection Are You?
brought to you by Quizilla
Thursday, November 27, 2003
Ég héllt ég hefði séð allt á hjóli........... en mér skjátlaðist
Ég hef séð ýmislegt á hjóli hérna í danmörku, en í dag þá fékk ég gjörsamlega sjokk. Haldiði að maðurinn fyrir framan mig sem beið á ljósunum hafi ekki bara verið með dauðan kött í hjólakörfunni sinni að aftan, hann var orðin stífur og bara já steindauður og eins og frosin. Héllt að þetta væri eitthver dýrauppstoppari eða jafnvel í dýrafórnum, við vorum reyndar 3 þarna, en ég held að ég hafi verið sú eina sem bókstaflega gafti. Hann eins og aðrir danir nátturulega spjallaði við okkur og útskýrði að þetta væri köttur nágrannans sem hefði verið týndur í nokkra daga, og hann hefði fundið hann fyrir tilviljun og væri á leið með hann heim til grannans. Fyrr má nú aldeilis kattaelskan vera í þessum blessuðu dönum, það er önnur hvor manneskja með kött, mér til mikilla ama og nýji nágranninn líka með kött......... ekki myndi ég hjóla með köttinn þeirra heim ef ég fyndi hann eitthvers staðar......myndi bara láta hann rotna.......
Wednesday, November 26, 2003
Jeg må bare skrive ned her mine frustrationer, det er nogle problemer med idol udsendelsen, det bliver sikkert ikke noget Idol i aften. Jeg sidder og venter på det, var lige færdig før kl åtte at gøre det som jeg skulle klare før at jeg skulle få lov til at se på Idol, men men..........
Men grunden til at jeg skriver på dansk i dag, er at jeg fik nogle opfordringer til at skrive på engelsk, men jeg hved ikke fra hvem, det står bare John Paul og takk og bless i mit shout out, tænkte at han vil hellere høre det på dansk....... Hvem som John Paul er.

Tuesday, November 18, 2003
Ég verð víst að leiðrétta svoldið sem ég skrifaði í gær en Elín er farin að skilja það mikið í Íslensku að hún sagði mér að Mew er ekki upphitunarband heldur er jafn stórt númer og Kashmir. Heldur er færeyski listamaðurinn Teitur upphitunaratriðið....
Það er ótrúlegt hvað hún skilur orðið, en samt fannst mér eitt ógeðslega fyndið hún var að þýða og misskildi orðið sko sem skór, í gær skrifaði ég verður sko geggjað gaman og hún þýddi það sem skór sem passa saman ( Sko som passer sammen) það var nú ekki alveg rétt en hún er á góðri leið með að ná íslenskunni.
Hún var einmitt að tala um að hún gæti tekið á móti íslenskum túristum í noregi, gæti bara túlkað fyrir þá.
En Sara er greinilega búin að ala hana vel upp í fyrra bara búin að kenna stúlkunni móðurmálið...........

Monday, November 17, 2003
Er á leið á tónleika.......
Það er ekkert smá mikil gróska í dönsku tónlistarlífi, hefði bara aldrei trúað því hvað það eru margar góðar danskar hljómsveitir, og aqua er ekki eina danska hljómsveitin..... og aðrar eru flestar mun betri..
En ég er að fara á tónleika með Kashmir og upphitunarbandið er Mew, einnig dönsk hljómsveit og líka mjög góð, verð samt að viðurkenna að ég þekki ekki mörg lög með Mew en ætla að kynnast þeim fyrir 12.des...
Tónleikarnir verða hérna rétt hjá heima eða hjá Stadion, þetta er dagurinn sem að ég Elin og Anna (báðar norskar) skilum verkefni sem við erum að gera saman og því ætlum ég og Elín að fara og fagna, kannski við förum nú fleiri á tónleikana, en við ætlum pottþétt, verður sko geggjað gaman....
en ef þið viljið kynna ykkur tónlist Kashmir klikkið hérna,
ef þið viljið kynnast Mew klikkið hérna

Haldiði ekki að hún Jenný frænka sé orðin fyrirsæta...............
í heilsíðu auglýsingu í fréttablaðinu í dag, er á síðu 5 þarna fremst, vegna þess að flugleiða söluskrifstofan sem hún vinnur á er greinilega að fara að flytja....
Það er nú ekki amalegt að vera orðin svona ljósmyndafyrirsæta
til lukku með myndina..........

Monday, November 10, 2003
Tom Cruise
Ég má bara til með að segja ykkur smá sögu af honum Gumma mínum....
en í gær þá vorum við að elda sunnudagssteikina, og ég var að gera sveppasósu ( eina sósan sem ég kann að búa til ) og bað Gumma um að hrista saman hveiti og vatn. Hann tók það að sér, og það var svoldið af hveiti utan á hristaranum, en ég hafði sett í hristarann en hann tók ekkert eftir því. Svo byrjar hann að hrista og þeitir hveiti út um allt, en hann var geðveikt að fíla sig og tekur ekkert eftir hveitiskýinu, ég bað hann um að halda hristaranum yfir vaskinum, hann er ekkert að skilja afhverju, hann sagðist vera eins og Tom Cruise í myndinni Cocktail. Ég verð nú að viðurkenna að hann líktist ekki mikið Tom Cruise og hann áttaði sig á því líka þegar hann leit niður á bolinn sinn, hann var allur hvítur af hveiti.....
En það er alltaf gaman þegar maður getur fílað sig inn í eldamennskuna....
en ég ætla að láta fylgja með uppskrift í dag........ af Cocktail....
COSMOPOLITAN
3/4 oz vodka
1/2 oz triple sec
1 oz cranberry juice
1/2 oz lime juice
Add ingredients to cocktail mixer, shake, then strain into a chilled martini glass
Sunday, November 09, 2003
Ég er komin í svo mikið jólaskap, mér langar að baka jólasmákökur. Allra helst langar mig nú bara í súkkulaðismábitakökurnar hennar mömmu, ég á víst smá sendingu af svoleiðis á leiðinni. En þar sem að ég fer ekki heim um jólin, verður maður bara að búa sjálfur til jólastemminguna, ég er í svaka jólabakstursfíling núna, en á ekki neitt í baksturinn, þannig að það verður ekkert um það í dag.......
Ætla bara að taka fram jólaföndrið mitt........
Ætla bara að taka fram jólaföndrið mitt........
Friday, November 07, 2003
Heilsan er farin að skána en ekki orðin góð.......
Gummi fór í Gokart í gærkvöldi með íslensku strákunum hérna í Odense svaka stuð hjá þeim og hérna er mynd af sjálfum kappanum...........
Gummi fór í Gokart í gærkvöldi með íslensku strákunum hérna í Odense svaka stuð hjá þeim og hérna er mynd af sjálfum kappanum...........
Wednesday, November 05, 2003
hæbbs......... ég er enn lasin því miður og verð að mæta í verklegt í dag, er komin með ógeðslegan hósta, svimar alltaf þegar ég hósta, og hver var það eiginlega sem sagði að maður ætti ekki að fá hálsbólgu þegar að hálskirtlarnir væru farnir, ég fæ nú bara enn jafn slæmar hálsbólgur, er jafn illt, eini munirinn er að ég get borðað þegar ég fæ hálsbólgu en það gat ég ekki áður.........
en þetta hlýtur að fara að lagast, er núna búin að vera lasin í 3 daga, getur ekki verið annað en að ég fari að hressast...........
hafið það gott kveðja Bryndís
en þetta hlýtur að fara að lagast, er núna búin að vera lasin í 3 daga, getur ekki verið annað en að ég fari að hressast...........
hafið það gott kveðja Bryndís
Tuesday, November 04, 2003
Ég er enn lasin, komst ekki í skólann í dag......... en í gærkvöldi í staðinn fyrir að sofa gerði ég myndaalbúm með dreamweaver og fireworks, algjör snilld, gerir bara allt fyrir mann, ég bjó til myndaalbúm í fyrra og það tók mig ekkert smá langan tíma að finna kóðana fyrir allt og finna fína stærð fyrir myndirnar, þetta forrit gerir allt, maður velur bara % stærð, en það var samt einn galli, því ég setti myndir á tveimur gæðum, þannig að verstu gæðin verða rosalega litlar þegar þær eru minnkaðar um helming og myndirnar á bestu gæðum eru samt enn full stórar þegar þær eru minnkaðar um helming, en næst geri ég albúm bara með einum myndagæðum.
En endilega kíkjið á albúmið okkar, þetta eru myndir frá Hamborg, eða alla veganna sýnishorn af þeim ,við tókum svo margar myndir þar
hér eru þær: http://www24.brinkster.com/bryndisg/
En endilega kíkjið á albúmið okkar, þetta eru myndir frá Hamborg, eða alla veganna sýnishorn af þeim ,við tókum svo margar myndir þar
hér eru þær: http://www24.brinkster.com/bryndisg/
Monday, November 03, 2003
Ég er orðin lasin, eða sko ógeðslega kvefuð og slöpp, Gummi er búin að vera svona í næstum viku.
Ég hef einfaldlega ekki tíma né nenni þessu................. átti að vera að fara í tíma í leikfimi þar sem að búið væri til prógram fyrir mann á eftir, en get það ekki, það tók mig klt að hjóla heim og mér leið eins og það væri að líða yfir mig alla leiðina.....
venjulega er ég hálftíma og það er ekkert mál.........

Sunday, November 02, 2003
Haldiði ekki bara að við séum komin með smá jólaskraut upp, ég er bara byrjuð að jólaföndra, keypti um daginn jólaföndur á tilboði og var að gera áðan, ýkt sæt gömul hjón, var reyndar tvö pör í pakkanum og ég nennti bara að gera eitt parið, hef ekkert að gera við annað nákvæmlega eins og svo er hnæst á dagskrá að gera krakkapar sem eru ýkt sæt. mun stærri og allt öðruvísi en gömlu hjónin
er reyndar ekki með nógu gott lím, þannig að ég tími ekki að byrja á hinu jólaföndrinu fyrr en að ég er komin með betra lím....
svo er mamma búin að senda mér smá smakk af uppáhaldsmákökunum mínum og nýja geisladiskinn með hljómum, það segja allir að hann sé mjög góður, mér hlakkar til að heyra hann.........
ég er bara komin í jólaskap, líka byrjuð að föndra jólakort.........