Sunday, January 25, 2004
Lítil Prinsessa fædd! Anna vinkona var að eignast algjöra dúllu, ég samt svoldið sein að fatta, gsm síminn minn virkar ekki á Íslandi og ég er því alveg sambandslaus við umheiminn og var ekkert búin að fara á netið. En Anna og Gulli hjartanlega til hamingju með litlu stelpuna.

Thursday, January 22, 2004
3 Annir búnar:
Þetta er búin að vera annasöm vika, ég á eftir að setjast niður í lestina á morgun bara ahhhh loksins slappa af. En alla veganna þá kláraði ég prófin á mánudaginn, svo á þriðjudaginn skrapp ég til Þýskalands. Í gær þá kom Helena frænka í heimsókn, ekkert smá gaman að hitta hana, við röltum í kuldanum í Odense og kíktum líka aðeins í búðir enda var svo kalt úti. En síðan fórum við upp á Rassmus Place og hún sá litla placið okkar, en við borðuðum svo kjúlla og horfðum á American top model, hún gisti síðan bara hérna og fór heim í dag um hádegi, þegar við höfðum vaknað og fengið okkur að borða og svona. Ég síðan bauð henni að fara í sturtu ætlaði að vera rosa góður gestgjafi, en haldiði ekki að ég hafi bara ekki átt eitt einasta hreint handklæði, leið svoldið eins og hálfvita langaði nú ekki að bjóða henni að nota handklæði sem ég eða Gummi hefðum notað.
En ég fór upp í skóla til að athuga með einkunnir og Helena tók lestina til Köben, síðan hitti ég Söru , Elvu, Valdísi, Kötlu upp í skóla og lá leiðin í Rosengardcenter þar sem að við hittum Sólveigu, síðan var kíkt í búðir, og eina það sem ég ætlaði að kaupa var ekki til var frekar fúl, en fann í staðinn svaka flottan kjól sem verður fínn á þorrablótið. Er svartur allur útsaumaður með steinum og palliettum að framan blátt, silfrað og grátt, þannig að ég verð svaka fín á þorrablótinu.
En svo fórum við út að borða á Jensens Bøfhus og fengum okkur steik á hádegistilboði og ætluðum svo að fá okkur stóra Kók, en gerðum okkur ekki grein fyrir hversu STÓRA kók við vorum að kaupa fyrr en þjónustustúlkan kom með 5 glös hver með 750 ml í. Já semsagt 3,75 L handa okkur 5, sem var ansi mikið, þannig að við reyndum nú að þamba í okkur kók til að klára glasið en það gekk ekki nógu vel hjá öllum held að Elva hafi verið vinningshafinn sú eina sem kláraði glasið. En þetta kókglas vó þungt á námsmannabuddunni, hún kostaði 44 dkr eða rúmar 500 kr íslenskar, jafndýr og steikin og dýrasta kók sem ég hef drukkið um ævina. En naut þess nú samt, ætla nú samt ekki að kaupa það aftur.
En svo er það bara að klára að pakka, og sofa og svo bara flyhaven i morgen..
glæder mig meget ..........
Knus og Kram til jer alle

Monday, January 19, 2004
Loksins er þessi önn búin.... seinasta prófið í dag og ég stóðst það.. Hin 3 prófin sem ég tók á ég eftir að fá útúr og fæ það eitthvern tímann út í rassgati. En einkunn í munnlegum prófum kemur alltaf strax svo það var svoldið notalegt bara að fá hana eftir 5 mín bið eða varla það...
en núna er stefnan á stelpupartý í kvöld, Sólveig bíður okkur í mat og svo verður bara djammað og stuð, og svo þýskalandsverslunarferð á morgun og svo kemur Helena frænka líklegast í heimsókn á miðvikudaginn og svo er það bara Ísland á föstudaginn mikið um að vera en bara gaman að því....

Sunday, January 18, 2004
Seinasta prófið á morgun!!!!!! Jibby..... spurning hvort ég segi jibby eftir prófið á morgun en allt kemur víst í ljós eitthvern tímann .... eða eitthvað...
En alla veganna þá hlakka ég rosalega til að ferðast til fyrirheitna landsins í lok vikunnar, ég hlakka til að haft tíma til að taka til heima hjá mér, en það er orðið frekar sjúskað hérna, Gummi segist hafa verið í samúðarpróftörn með mér og því ekki nennt að taka til eða gera neitt á heimilinu.
En ég stefni svo á rútuferð til Þýskalands á þriðjudaginn með reykþyrstum dönskum gamalmennum í áfengisleit, ég ætla að kaupa ódýran mjöð og annað sem er mun ódýrara í Þýskalandi...
En alla veganna ætla að halda áfram að rifja upp fyrir prófið á morgun....
kærar kveðjur

Friday, January 16, 2004
Ég er að horfa á fréttir og þær snúast um ástandið á vegunum, það er bara rosalegt ástand ha, það er smá slabb á vegum það er búið að snjóa í dag. Enginn alvarleg slys hafa orðið þetta er sko rosalegt ástand samt mér leið eins og ég væri að hlusta á svaka spennandi frétt en sá svo sem ekki spennuna í þessu sama hvað ég reyndi, en Gummi sá strætó sem var stopp í hallanum frá fótboltavellinum/cyklebanen og þar upp ( þið sem hafið komið í heimsókn hafið kannski séð þetta og þið hin sem búið hérna vitið hvað ég er að tala um en aðrir geta bara sleppt því að hugsa um þetta) en alla veganna þetta er ekki stór brekka smá halli og þar var bara allt stopp. Ég myndi nú alveg treysta mér til að keyra ef ég væri á almennilegum dekkjum og á góðum bíl, en ég myndi ekki fyrir mitt litla líf þora að mæta dönskum ökumanni, það verður því spennandi æsiför á eftir þegar við hjúin og sigurrós fáum far hjá freyju á fund á eftir... vonandi lendum við ekki í neinum slæmum dönskum ökumanni.....
þið kannski byðjið fyrir okkur......... ( thíhí)

En eins og þið sjáið kannski hefur síðan mín tekið stakka skiptum, þetta er reyndar html sem ég þróaði fyrir löngu síðan en ekki orðið það hugrökk að skipta um útlit fyrr en núna. Enda farin að langa að endurhanna þetta netheimili mitt, enda ekki vanþörf, var svoldið ljótt seinast en þessi var fínpússuð í gærkvöldi og skellt inn í templatið í dag og kemur svona assgoti vel út, búin að laga og fara í gegnum linka.........
en njótið vel og endilega hvernig finnst ykkur............
fékk mér nýtt kommentakerfi sá það á síðunni hjá Söru, var orðin svoldið þreytt á að Klinkfamily draslið var alltaf að bila......... en vonandi er þetta betra

Thursday, January 15, 2004
Matreiðlsuhorn Bryndísar
Ég er orðin algjör snillingur í matreiðslu á kjúklingabringum, þær eru bara svo góðar hjá mér. Í dag ákvað ég að prufa svoldið nýtt, en það voru kjúklingabringur á tilboði í nettó í dag tvö stykki á 15 dkr, en ég átti svo hellings afgangs Dijon Sinnep síðan að jólahamborgarahryggurinn var eldaður, svo að ég ákvað að búa til smá svona sinnepshúð á kjúllann, setti eina eggjarauðu og 2 1 /2 mtsk sinnep plús salt og pipar og papriku duft. En byrjaði á að velta bringunum upp úr hveit og síðan blanda saman eggjarauðu, sinnepi og kryddi, mareneraði síðan bringurnar upp úr þessu.
Hafði sko kveikt fyrst á pönnunni svo hún var vel heit þegar bringurnar voru tilbúnar skellti þeim á og brúnaði fyrst báðar hliðar, til að þær yrðu nú ekki þurrar lækkaði strax hitann og lét þær malla lengi, en þetta var sjúklega gott mmmm......... Bráðnaði í munninum var svo safarík bringan og svo mmmmm sinnepið gerði sko gott...... og ég sem borða venjulega ekki sinnep finnst það vont....
en alla veganna mæli með þessu er rosa gott..........
( já vorkennið mér bara, hef ekkert betra um að hugsa er í prófum )

Wednesday, January 14, 2004
Jæja var að koma úr prófi 3 af 4 og það gekk bara vel. Er ekkert smá sátt eftir þetta próf, en það er ekki margar einingar. En núna er bara munnlegt próf eftir sem mér kvíður svoldið fyrir, ég er betri að koma hlutum frá mér skriflega heldur en munnlega, en kemur allt í ljós ég hef aldrei farið í munnlegt próf áður, nema bara í tungumálum og það er ekki alveg það sama er svoldið meira efni í þessu í prófi. Finnst samt svoldið asnalegt að fara í munnlegt próf í Lífefnafræði en þar sem að við gerðum verkefni sem við þurfum að verja mega þau ekki hafa skriflegt próf líka þannig að við verðum spurð út úr í vörninni, förum 3 inn í einu, en það voru 3 í hóp að vinna verkefnin, en það kemur allt í ljós hvernig fer. Hlakka svo rosalega til að vera búin í prófum......
Tuesday, January 13, 2004
Friday, January 09, 2004
Litla systir á afmæli í dag! Er bara orðin 8 ára stúlkan, ekkert smá stór orðin, mér finnst hún bara vera pínu lítill ennþá.
En hjartanlegar hamingjuóskir með daginn elsku litla systir, vonandi að þú eigir góðan dag!!!!!
og já ég tók próf á netinu hvaða lord of the rings karakter ég er og ég er víst Pippin

Congratulations! You're Pippin!
Which Lord of the Rings character and personality problem are you?
brought to you by Quizilla

Thursday, January 08, 2004
Þá er komið að prófi nr 2 á morgun, úff já tíminn líður allt of fljótt þegar gaman er..... eða þegar maður hefur mikið að gera, hef ekki beint haft gaman undanfarna daga, en ég er búin að vera rosalega dugleg og er sko alveg með samviskuna í lagi, þannig að nú get ég ekkert gert nema slappa af og gera mitt besta á morgun.
Samt er ekki laust við það að ég sé með prófskrekk, enda er þetta frekar erfitt próf, en það er próf í Fysisk Kemi ( Physical Chemistry).
En nú er bara að hugsa fallega til mín á morgun! milli 10 og 15 að íslenskum tíma!!!
( 9-14 að dönskum ).

Wednesday, January 07, 2004
Ég heyrði eitt í dag ansi fyndið! Það var sko smámæltur arabi að tala dönsku, semsagt arabískur hreimur, smámæli og það kom ansi fyndin danska út. Get eiginlega ekki líst því, en sko danskan hljómar með svona kokhljóði uppi í kokinu ( skola með vatni þegar maður er að tannbursta sig, losa slím úr kokinu), en arabarnir tala með svona kokhljóði niðri í kokinu ( ert að safna munnvatni til að geta skyrpt). Þannig að útúr þessu öllu hjá greyið drengnum komu ansi fyndin hljóð. Hann talaði svo rosa hátt í gsm símann sinn að allur strætóinn heyrði.
Seint koma sumir en koma þó! já ég sótti víst um lengri tíma í prófunum núna, en var ekki búin að fá neitt bréf frá þeim um staðfestingu um það og hafði satt að segja ekkert hugsað um það fyrr en rétt fyrir prófin og ákvað að nenna ekkert að standa í því þar sem að ég myndi nú kannski ekki nota það, þar sem ég notaði ekki lengri tíma á seinustu önn. En ég semsagt var að fá þetta bréf í dag, var sent í gær, en ég er semsagt búin í einu prófi sem var þann 2.janúar ég hefði alveg þegið lengri tíma þá, en það var bara 2 tíma próf.
En núna er hausinn á suðupunkti, ég var í skólanum í dag að læra frá 9 - 4 kom heim um 5 leytið og settist niður og lærði í 2 og hálfan tíma. En er víst farin að finna smá prófskrekk.....
Talvan er víst ekki besta lausnin við hausverk, en mér langaði bara aðeins að kíkja...

Tuesday, January 06, 2004
Það er nú endalaust fyndið ( finnst mér) hvað ég get nú hlegið að eitthverju sem venjulega finnst mér ekkert svo rosalega fyndið, ég er meira að segja farin að tala við sjálfa mig og ráðleggja mér hvernig ég ætti nú að leysa dæmin og svona kommenta á hvernig gengur ( vona að ég geri þetta nú ekki líka í prófinu, aumingja sessunautarnir þá).
En alla veganna ég ákvað áðan að taka mér smá pásu og kíkja í tölvuna, byrjaði á mbl.is og þar blasir við mér frétt um Guðmund Ólaf Endalaust fannst mér það nú fyndið, fyrir þau ykkar sem vita það ekki þá heitir Gummi ( eða Óli, hann gengur víst undir mörgum nöfnum) Guðmundur Ólafur.
En fréttin var svohljóðandi:
Guðmundur Ólafur var á veiðum norður af Rifsbanka, 50 mílur norður af Melrakkasléttu. Þar voru einnig Beitir og Bjarni Ólafur. „Við vorum á þessum slóðum í gær og fengum þá ágætan afla, en ákváðum að keyra austar í fréttir sem bárust þaðan, en snérum við í nótt og vorum að koma á þetta svæði aftur og erum nýbúnir að kasta. Það eru töluverðar lóðningar hér svo við gerum okkur vonir um að klára

Monday, January 05, 2004
Í fréttum er þetta helst! Bryndís labbaði út í búð og keypti svarta ruslapoka áðan, og snúum okkur svo að veðrinu, það snjóaði í gær og núna er smá snjór þar sem áður var gras...
já lífið er spennandi þegar maður er í próflestri.............

Friday, January 02, 2004
Frasi nr 3: Pøj pøj!, hvað dettur ykkur í hug þegar þið heyrið þetta, þetta er einn sá allra fáránlegasti danski frasinn. Þetta er sagt í staðinn fyrir gangi þér vel, eða þýðir eiginlega svona lukku til ( nei það er víst danskt líka) æ svona bara brake a leg eða eitthvað. En fáránlegt, héllt fyrst að eitthver hefði verði að prumpa og sá sem sagði þetta væri farin að finna skítalyktina.
Þá er árið búið.........
og nýtt ár byrjað á sama hátt og seinasta, það er að segja með prófi og próflestri.
Þetta er reyndar fyrsta skipti sem að ég er jól og áramót annars staðar en á Íslandi.
En að öðrum efnum, þá er ég alltaf að læra eitthvað nýtt í danskri tungu og þar sem að ég hef aldrei upplifað jól og áramót hérna er komin tími til að læra að spyrja hvernig gamla árið hafi verið og hvaða frasa maður á að nota og svona. En nokkrir frasar í dag hafa staðið í mér, finnst þeir svoldið asnalegir, en ætli maður reyni ekki að nota þá næst þegar tækifæri gefst, eða eftir eitt ár eða svo.
En frasarnir eru t.d. : Har du haft et godt nytår? Ég fattaði nú alveg hvað var verið að spyrja um, en fannst þetta samt fáránleg spurning, nýja árið er ekki búið en samt er verið að spyrja mig hvernig það var, þau voru að spyrja hvernig gamlárskvöld hafi verið.
Næsti slæmi frasi sem ég heyrði var: Er du på udsalg? Ég vissi nú ekki hvert ég ætlaði, langaði mest að segja nei ég er ekki á útsölu, þó ég hefði skilið hvað var verið að segja, það var verið að spyrja hvort ég væri að fara að versla á útsölunum.
En maður er orðin svo vanur svona fáránlegum frösum hérna í danmörku, að maður er hættur að taka eftir þessu, hættur að heyra nýja frasa en núna lærði ég 2 nýja í dag.....'
En enn einn sem ég heyrði reyndar fyrst í sumar, þegar ég byrjaði í fyrstu dönsku vinnunni minni og þeirri einu hingað til: Hvornår har du fyraften? Ég hugsaði þá með mér, ég vona nú bara að ég verði ekki rekin, og hvað er þetta gamalmenni að bulla, er hún að tala um flugelda eða hvað. En neinei það var verið að spyrja mig hvenær ég hætti í dag. Fyraften = þegar vinnutíma lýkur. Eða hvenær verðuru rekin heim fyrir kvöldið.......
Ég gæti haldið endalaust áfram með fáranlega danska frasa, en ætla að láta þetta gott heita í dag...... Kannski heldur bara dönsku kennsla Bryndísar áfram í næstu viku hver veit...........................