<$BlogRSDURL$>

Saturday, February 28, 2004

Ég fór í partý í gær það var mjög gaman og sungið og spilað á gítar fram eftir nóttu. . Ég söng mig hása og svaf svo í 5 tíma og fór þá með Gumma á námskynningu upp í háskóla, þar lentum við á spjalli við tvo stráka sem eru að læra HA(dat) sem er sko það sem Gummi er að velta fyrir sér að fara í, en þeir voru komnir jafnlangt og ég í náminu og mér fannst þeir svona ekki alveg vera með réttu yfirsýnina yfir námið rétt hálfnaðir með B.S inn, Gummi var svo að spyrja um fög sem voru seinna og þá vissu þeir ekkert um það, mér fannst það svona vanta smá á það, en annars var rosa fín kynningin.
Við eiginlega komumst ekki frá drengjunum þeir töluðu svo mikið, fegnir að fá eitthvern á sinn bás enginn annar sem kom til þeirra en ég og Gummi.

Ég sá svo að kallinn sem kenndi mér eitthvað í lífefnafræði í haust var fyrir mína institut eða BMB og svo voru eitthverjar kellur sem ég hef aldrei séð áður, væntanlega ph.d nemendur eða mastersnemendur, eitthverjir komnir alla veganna eitthvað áfram, sá samt engann svona ungan. Mér finnst að á svona námskynningu eigi að vera einn svona ph.d studerende einn i mastersnami og einni B.S svona þannig að þú getir fengið mismunandi sjónarhorn á námið, eftir því hvað þú villt vita. Sá að eðlisfræðideildin var með einn sem er komin jafn langt og ég og svo voru eitthverjir lengra komnir .... annars held ég að ég ætli að hætta þessum óspennandi vangaveltum mínum um námskynningar.......

Thursday, February 26, 2004

Ég lenti áðan í strætó fyrir framan tvo háskólapróffessora, annar þeirra var danskur en hinn bandarískur. En þeir voru að spjalla um hinar og þessar niðurstöðurnar og svo barst talið að danska háskólakerfinu og hann var að tala um hvað Háskólar í danmörku væru farnir að selja sig til að útskrifa sem flesta nemendur til að fá peninga, en ekki að gera kröfur í náminu eins og ætti að vera. Danski gaurinn sagði t.d. að lækna námið í Árhús og Kaupmannahöfn væru gjörsamlega búin að fórna akademiunni til að geta útskrifað sem flesta og Háskóli væri bara orðinn venjulegir skóli og margir nemendur væru ekki hæfir fyrir læknastarfið þess vegna og einnig að það væri gjörsamlega búið að slíta tenglsinn milli rannsókna háskólanns og margra nemenda í öðrum deildum háskólans. En hann sagði að Odense væri að fara að breyta læknanáminu eins og er í Köben og Árhús og það væri mjög slæmt, held það sé svona bútakennsla þar þú tekur bara kannski eitt efni í mánuð og tekur svo annað efni næst. Honum fannst þetta til mikilla ókosta og með því væri ekki verið að stilla eins stórar kröfur til nemendanna. Einnig sagði hann að margir háskólanemendur færu bara í b.s sem væri bara sko fáránlegt þú kannt nátturulega ekki neitt eftir 3 ár, þeir voru alveg sammála um það og margir væri bara útskrifaðir eftir 3 ár með prump menntun og færu beint í að kenna í menntaskóla og misstu þar með öll tengsl við háskólann og rannsóknirnar og það þróaðist ekkert það sem þeir vissu heldur kenndu þeir það sem þeir lærðu en það er ekkert endilega sannleikurinn eftir x ár. Þetta var að hluta til rétt sem þeir voru að segja, en ég var nú ekki sammála öllu. Er bara búin að vera að velta þessu fyrir mér, mér langaði stundum að snúa mér við og blanda mér í samræðurnar, sérstaklega þegar þeir voru að tala um að fyrsta árið í háskóla færi bara í djamm og þar með væri því ári bara sóað, og það ætti að gera stærri kröfur til fyrsta árs nema sérstaklega í læknadeildinni, veit nú ekki hvað þessi kall hét, kunni nú ekki við að spyrja, en hann er frá læknadeildinni og var bara alveg brjálaður hvað deildin er að selja sig til að útskrifa sem flesta.
Svo sko var bandaríski gaurinn þvílíkt hneykslaður á þessu hvernig þetta er uppbyggt með að háskólar fá bara borgað með hversu margir útskrifast, honum fannst allt of lítið fjármagn frá danska ríkinu í háskólum, honum fannst t.d. bara hryllilegt að Háskólinn í Odense fékk neitun um að byggja Campus, átti sko að byggja meðal annars kollegiur og annað á túni við háskólann bara byggja svona rosa stórt háskóla svæði, svona svipað og maður sér í bandarísku bíómyndunum sem Campus.

Ég sel það ekki dýrara en ég stal því í strætó......




Tuesday, February 24, 2004






You Are Most Like Carrie!


You're quirky, flirty, and every guy's perfect first date.

But can the guy in question live up to your romantic ideal?

It's tough for you to find the right match - you're more than a little picky.

Never fear... You've got a great group of friends and a
great closet of clothes, no matter what!



Romantic prediction: You'll fall for someone this year...

Totally different from any guy you've dated.




Which Sex and the City Vixen Are You Most Like?
Take This Quiz Right Now!



Find the Love of Your Life
(and More Love Quizzes) at Your New Romance.



Sunday, February 22, 2004

Góð Helgi


Það er búið að vera rosa gott að eiga rólega helgi eftir annir undanfarna helga, en ég hef samt afrekað ótrúlega mikið. Samt eiginlega ekki gert neitt mikið en samt gert alveg helling. En svo var okkur boðið í bollukaffi í dag... mmmm ekkert smá góðar bollurnar hjá henni Sigurrós.
Svo er bara enn ein vikan hafin, tíminn líður rosalega hratt. Eiginlega bara allt of hratt... svo aftur á móti þegar maður er að bíða eftir eitthverju þá líður tíminn allt of hægt.

En bara já hef ekkert að segja en langaði samt að blogga, veit eiginlega ekki afhverju, held ég fari nú bara að gefast upp á þessu bloggi hef ekki getað skrifað neitt af viti hérna í langan tíma. En koma tímar og koma ráð, skil samt ekki alveg að fólk nenni að koma hérna inn og lesa bullið mitt er að fá um 20 heimsóknir á dag hmm.. hefur fólk ekkert þarfa að gera við tímann en að lesa bullið í mér og bullið í fullt af öðru fólki. Allir alltaf að lesa bloggsíður hjá hinum og þessum, en í rauninni stendur yfirleitt ekki neitt merkilegt á þessum síðum. Ég held að þetta sé bara svona forvitni að fylgjast með næsta manni, alla veganna les ég heilan helling af síðum öðru hvoru þar sem að stendur alveg hellingur um ekki neitt, ég er ekki sú alsaklausasta í þessum efnum eins og þú kannski gerir þér grein fyrir þegar þú lest þetta. En alltaf tekst mér nú að koma eitthverjum heilum helling frá mér sem að hefur gjörsamlega enga merkingu.


Friday, February 20, 2004

Haldiði ekki að það séu tvær rosalega myndarlegar húsmæður á þessu heimili! Þar sem að Gummi er ekki heima 4 kvöld vikunnar, annað hvort í fótbolta eða skólanum þá erum við rosalega löt við að elda kvöldmat og orðin vægast sagt þreytt á því. Þannig að þessa helgina keyptum við bara helling af mat í Bilka eldum hann allann og frystum svo bara í pokum með skammt fyrir einn, svo að þegar maður er svangur er bara að taka einn poka út og hita í örbylgjunni....

Thursday, February 19, 2004

:::::::::Endilega lesið um hundleiðamálið::::::::::
Gummi er loksins búin að finna sér hvað hann ætlar að læra! Ég kom heim með bækling í gær um nám sem er bland af viðskiptafræði og tölvunámi, eða sko forritun og svona og svo viðskiptafræði eitthvað sem tengist því að vera milli viðskiptavina og dreifingaraðila, svona netsala og annað, alla veganna mjög sniðugt nám held ég ( veit reyndar ekki alveg hvað það gengur út á en hann kannski útskýrir það betur fyrir þér ef þú hefur áhuga) og hann féll alveg fyrir því og er því núna að fara að útbúa umsókn. Hann var orðin svoldið vonlaus þar sem hann var búin að ákveða að fara í skóla en vissi bara ekki í hvað. En hann fyllir líka aðgangskröfurnar í þetta nám sem er mjög gott....


Tuesday, February 17, 2004

Óförum þessa dags ætla bara ekkert að ljúka, ég bíð bara eftir því að þessum degi ljúki. En Gummi gerði við hjólið mitt, og þegar hann var búin að því sprakk aftur, já hann búin að eyða svona klt í þetta allt, svo þá komst hann að því að það var glerbrot í dekkinu og stórt gat á dekkinu, semsagt dekkið ónýtt og þarf að kaupa mér nýtt dekk það er dágóð upphæð. En þetta gerðist í brekkunni við barinn varið ykkur á glerbrotum þar, en ég héllt þetta væri bjórdós sem ég hjólaði yfir niðri við fótboltavöllinn en svo var ekki, heldur bara hvellsprakk þarna í brekkunni við barinn....


var ég að tala eitthvað um að þetta væri ekki minn dagur þá hafði ég sko rétt fyrir mér, því á leiðinni heim eftir að hafa farið í ekki neinn tíma vegna míns misskilnings, þá sprakk á hjólinu mínu á leiðinni heim, reyndar einn ljós punktur það var hérna á raskinu, ekki langt að labba með hjólið heim.
Þetta er sko ekki minn dagur!
Ég átti að vera í einum tíma í skólanum í dag, mætti kl 10 en mér til mikillar mæðu þá var tíminn búinn, hann var víst kl 9. Búin að hjóla mína 10 km til að gera ekki neitt hérna í skólanum.

Saturday, February 14, 2004

Núna þrái ég ekkert heitar en heitt bað, eða bara baðkar yfir höfuð. Ég er að lesa góða bók eða svona stelpubók, heitir 4 blondes er eftir höfundinn sem skrifaði Sex and the city, semsagt bara skemmtilestur. Erum að fara út eftir einn og hálfan tíma og væri alveg til í að liggja í baði og lesa bókina á þeim tíma, er svona bók sem bara rennur í gegn, ákkurat svona einnar baðsbók. En þar sem ekkert baðkar er í nánd verð ég bara að láta mér nægja heita sturtu og svo leggjast upp í rúm með bókina...

Friday, February 13, 2004

CWINDOWSDesktopFightclub.jpg
Fight Club!


What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla

Wednesday, February 11, 2004

Hérna koma svo fleiri myndir en þetta eru Hildarmyndir, sem kom með áms til Odense

Monday, February 09, 2004

Ákvað að setja inn smá linka á myndir sem aðrir hafa tekið á Þorrablótinu,
en hérna koma Sörumyndir, Elvumyndir og aftur okkar myndir, ef eitthverjir fleiri eiga myndir frá Þorrablótinu í Odense 2004 væri mjög gaman að fá þá linka hérna í kommentin.

Þá er Þorrablótið búið og það tókst bara í alla staði frábærlega, allir skemmtu sér vel og ekkert nema gott um það að segja. Svo á hljómsveitin Á móti sól sko hrós skilið en þeir héldu upp þvílíkri stemmingu á ballinu, þetta var bara í einu orði sagt FRÁBÆRT Þorrablót.
Ef ykkur langar að fá smá sýnishorn af stemmingunni skoðiði þá myndirnar sem við Gummi tókum á blótinu hérna.

Wednesday, February 04, 2004

Þá er ég loksins búin að fá einkunnina úr seinasta prófinu og er bara sátt við sjálfa mig en það má alltaf gera gott betra, en semsagt það er farið að styttast námið hjá mér, er núna búin með eitt og hálft ár og B.S inn hálfnaður og næstum því einn þriðji af Kandidatsprófinu. Ég er ekki farin að sjá fyrir endann á þessu en svona er alla veganna sannfærð að ég mun klára þetta nám og það er góð tilfinning.
Vona að Mamma og Pabbi séu nú stolt af litlu stóru stelpunni sinni........
Bara 3 og hálft ár eftir núna.

Tuesday, February 03, 2004

Ég sá þetta kort á síðunni hennar Sólveigar og mér langaði að sjá hvernig mitt kort myndi líta út og vildi endilega deila því með ykkur en ég hef víst komið til 17 landa, gat samt sko ekki fundið Skotland en það var bara hægt að setja United Kingdom, mér finnst nú Bretland og Skotland vera tvö lönd en hvað um það...

hérna kemur kortið mitt:



create your own visited country map
or write about it on the open travel guide


Ég sé að ég þarf að fara að víkka út sjóndeildarhringinn, þetta er allt á svipuðum stað og flest löndin í Evrópu, hef bara aldrei farið til Asíu né Afríku stefni á að komast þangað næst þegar ég fer að ferðast...............

Sunday, February 01, 2004

Þá er ég komin heim heil á höldnu, svoldið skrýtin tilfinning að vera komin heim og þessi tilfinning sem maður fær þegar maður er búin að fara í ferðalag, ahh hvað það er gott að vera komin heim en samt er maður í útlandinu.

Ferðin gekk bara vel en ég er mjög þreytt og ætla held ég snemma í háttinn og skrifa bara seinna............

This page is powered by Blogger. Isn't yours?