<$BlogRSDURL$>

Tuesday, March 30, 2004

Foreldrar mínir hafa nú gert mig að stoltum eiganda að Husqvarna Emma saumavél
Er rosa ánægð með gripinn, en verst að ég á ekkert efni að tvinna eða neitt til að sauma, en ætla að sauma gardínur og stytta þær sem við eigum og svona á nýja staðnum, en langar samt að skella mér í stof og stíl bráðlega, sem er víst rosa stór og flott efnabúð, en hef aldrei farið inn í hana.

Monday, March 29, 2004

I am an Intellectual



Which America Hating Minority Are You?


Take More Robert & Tim Quizzes
Watch Robert & Tim Cartoons



Sunday, March 28, 2004

Ég vinn kannski 12 miða á leik OB næsta Sunnudag, því ég giskaði á rétta niðurstöðu í leik í fötex. Gummi var eitthvað að monta sig í dag að hann gæti unnið, en vúhú húsfreyjan á bænum fékk rétt niðurstöðu. Þannig að á morgun verður dregið úr réttum giskunum, vona að ég verði sú eina sem giskar rétt og ég vinni... En OB vann sko 3-1 , veit ekkert hvaða lið þeir unnu. En Gummi giskaði 2-1.

En ég fór á stúfana í gær að leita að saumavél, og fann barasta alveg helling og er búin að snúast í 300 hringi hérna með hvaða vél mér langar í, en er nokkurn veginn búin að ákveða mig, ætla ekki að kaupa bernine drals, ekki Jasmine tælenska, né brother sem er japönsk. Var að velta kannski Singer , Pfaff og Husqvarna, en er farin að aðhyllast husqvarna þar sem hún er með ekta overlock saum en ekki Pfaff vélin sem var á afslætti og var þá á sama verði og Husqvarna vélin. En það var bara svo léleg þjónusta þarna í stof 2000 að ég eiginlega labbaði öfug út, ætla að prufa að fara í hina stof 2000 búðina og vona að þar sé meira úrval af Husqvarna vélum og þær hafi meiri vit á þessu en gellan sem afgreiddi mig niður í bæ, hún benti mér bara á aðra búð, sem selur önnur merki. Ekki góð sölumennska þar, er reyndar búin að komast að því að danir eru ekkert sérstakir sölumenn fyrir löngu.



Saturday, March 27, 2004

Við fórum á Íshokkíleik í gær og biðum spennt eftir slagsmálum og látum og bara þvílíkri spennu sem ég héllt að íshokkí væri. Það var mjög skemmtileg stemming á leiknum og sungið hástöfum... t.d
- Bonderøver
- Odense I K
- O I K ( var sönglað sko )
- Champion ( hljómaði samt eins og tjampíone tjampíone)
- Hundehimlen var sungið óspart

og svo var fólk látið setjast niður allir á sama tíma, vorum sko í stæði og svo allir standa upp á sama tíma, og þeir í sætunum voru oft látnir standa upp þá var gólað : op at stå ( obbasto obbasto og sönglað nátturulega eins og allt annað).
Síðan var eitthvað svona vink með hendinni sem ég var ekki alveg að fatta. Og man ekki alla tekstana sem voru sungnir en þeir voru margir....
Svo voru margir með prjónaða bjórglasahaldara og það var teygað vel af bjórnum, enda föstudagskvöld og flestir búnir að vera á fredagsbar í skólanum eða vinnunni.

ég komst líka að því að einn sem er með mér í næstum því öllum tímum, hljóðláti norðmaðurinn er bara brjálaði íshokkímaðurinn, voðalega dæmdi ég hann eitthvað vitlaust, hann alla veganna segir ekki mikið í tímum og heldur í verklegu, var í sama hold og hann í verklegu seinust önn.

En ekki fór mikið fyrir slagsmálunum á leiknum, enda rústaði Odense Bulldogs sveitadurgunum frá Herning Blåræver ( blufox held ég), leikurinn fór 10-4, staðan var lengi 9-3 mér fannst það flottari tölur :)

En þetta var seinasti leikur vetrarins og unnu Odense Bulldogs brons með þessum leik....
hérna eru myndir ef þið viljið skoða

En núna er ég að fara í saumavélaleit, er búin að finna 6 forhandlara í Odense og ætla að fara á stúfana í dag, nenni því samt varla.......

Wednesday, March 24, 2004

Ég og Sigurrós fórum í göngutúr áðan, aðeins að hrista á okkur spikið. Við könnuðum áður ófarnar slóðir en er samt bara hérna rétt fyrir neðan, elmelundshaven heitir þetta víst, það er skidebane þarna og ridebane ( semsagt bæði skít og reiðvöllur). En við sáum ýmislegt spennandi á leiðinni. Við sáum meðal annars hund sem borðar gulrætur, hver annar en danskur hundur borðar gulrætur. Við sáum kofa með gervigrasþaki, hvað er málið með að nota ekki bara torfþak. Síðan sáum við danskar rollur, sem öskra baaa en segja ekki fallegt me eins og íslensku rollurnar, einnig eru þær mun ófríðari en íslensku rollurnar þó að þessar hafi verið með því skásta sem maður sér af dönskum rollum.
Ég tók helling af myndum, þær eru hérna
52 dagar til flutninga...... Það er nú ekki langt og því miður er því líka farið að styttast í prófin... sem eru ekki alveg jafn spennandi......
annars er ekkert að frétta, ég er bara búin að sitja í dag og í gær að lesa um glycolysis, gluconeogenesis og sitronsyrecyklus........ ekki spennandi....


Tuesday, March 23, 2004

Ef ykkur langar að skoða teikningu af nýju fínu íbúðinni okkar, þá ýta hérna.... Svo sko getiði ýtt hérna ef þið viljið skoða staðsetningu þess í miðbænum...
En við flytjum semsagt 15.maí næstkomandi, vona bara að það seinki ekkert lokafrágangi á blokkinni, en nýja heimilisfangið verður:
Rosenbæk Torv 15
Svo endilega droppið í heimsókn, en endilega takið með ykkur vatn ef þið búið á stað þar sem ekki er mælt notkun vatns ;)

Monday, March 22, 2004

Ég sit núna og borða Flatkökur með hangikjöti og drekk sviss miss með mmm..... þetta er ekkert smá gott, svo fékk ég páskaöl í gær, semsagt blandað malt og appelsín í dós, sjúklega gott og borðaði þá líka flatkökur með hangikjöti með. En þetta kom hann Gummi með handa mér frá Íslandi. En svo sit ég og læt mig dreyma um hvernig ég eigi að raða í nýju íbúðinni okkar :) já við erum búin að fá íbúð í nýju kollegiunni niðri í bæ.... újeee hlakka ekkert smá til að verða flutt þangað, hlakka samt ekki til að flytja þar sem að mér finnst það leiðinlegt.

Sunday, March 21, 2004

Ég skrapp á föstudaginn til Helenu frænku sem býr í köben, og við byrjuðum á því að skreppa í Christaniu þar sem að það var gerð stór rassía kvöldið áður og okkur langaði aðeins að kíkja á þetta. En þar var nú bara ein stærsta krumpudýrasamkoma sem ég hef farið á, held bara að elliheimili danmerkur hafi sameinast um að fara og líta hinstu augum á christaniu, kannski þau hafi litið á þetta sem jarðarför eða erfidrykkju hver veit....
En þau létu samt alveg jónurnar vera, enda var ekkert verið að selja, veit samt ekki alveg hvernig það hefði verið að sjá 78 ára skvísur með jónur í annari og stafinn í hinni.
En þið sem ekki vitið það þá er búið að banna hasssölu í christaniu og aðal ástæðan er nú sú að lóðarverðmæti þarna er mjög mikið, ef Christania verður jöfnuð við jörðu er hægt að byggja þarna og selja íbúðir fyrir mörg mörg hundruð milljónir.... Eða það telja alla veganna margir, því ekki er hægt að stöðva hasssöluna alveg og hún fer bara eitthvað annað ef hún verður ekki í Christaniu.

En ég kom heim í gærkvöldi og hjólaði í stormi ( dönskum sko) brjálaðri rigningu og roki, kom heim og var rennandi blaut, ekki einn þurrur þráður. En svo var brjálað rok og læti í gær á svölunum, og mér stóð nú ekki orðið á sama á tímabili héllt það væri eitthver á svölunum, en sé núna að það eru eitthverjir brotnir blómapottar og blóm útum allar svalir..

En nú sit ég við tölvuna og bíð eftir að hann Gummi minn komi heim aftur, er búin að sakna hans svoldið og hlakka til að fá hann heim aftur...

Thursday, March 18, 2004

Ég kveikti í poppkorni áðan......... ussuss..........
Svoldið sýrður dagur hjá mér í dag. En í anatómíu í dag þá vorum við að skoða líffæri, fórum inn í blautsalinn og fengum þar fullt fat af nýrum úr hinum og þessum, reyndar ekki úr Jón og Gunnu, kannski frekar Mette og Mads. En það voru engir einnota hanskar og urðum við því að pota og handfjatla þetta með berum höndum, sem hljómar kannski ekkert allt of vel að vera að handfjatla líffæri úr dauðum manneskjum með höndunum, en þar sem líffærin eru búin að liggja eitt ár í formalíni áður en að þau fara upp í salinn þá eru allar bakteríur dauðar enginn smithætta. En við vorum líka með gamla konu sem var búið að taka alla þarmana og ýmsilegt úr, alla veganna maður sá bara legið, og svo næsta sem kom voru nýrun og svo vöðvana á bakvið. En þegar við komum fyrst inn liggur konan þarna á hjólaborði og ég sé hana á móti mér, og sýndist að það væri búið að taka lungun og þetta væri kall með bringuhár, Elín hló ansi mikið að mér enda kannski ekki skrýtið, ég veit ekki hvenær ég ætla að læra að hugsa áður en ég tala, það tók mig svona 1 sek að fatta að ég var að líta á greyið konuna frá öðru sjónarhorni og þetta voru skapahárin á henni Mette en ekki bringuhárin á Mads. En alla veganna skrýtið hvað maður eitthvern veginn getur skoðað þetta bara hlutlaust, en maður lærir langbest svona og miklu meira á því að skoða og koma við en að lesa um þetta í bók.
Svo voru nú eitthverjir að velta fyrir sér hvort það væri virkilega ekki verri lykt en þetta, það var alla veganna ekki vond lykt þarna inni, og þeir spurðu og hann sagði okkur að það væri ekki vond lykt fyrst þegar að maður fær líkamshlutana, en læknanemarnir eru að plokka og skera í líkin í 14 daga og hann sagði að á 14 degi væri lyktin ekkert sérstaklega góð lengur, ég get alveg ímyndað mér það og ætla bara að taka hann trúanlegan á orðinu, langar ekkert að sannreyna það.

Wednesday, March 17, 2004

hæ hó jibby ei og jibby ei..... það er komið sumar!!!

Alla veganna vor, svaka heitt veður í dag, bara hjólaði á bolnum og þurfti að taka af mér vettlingana og trefillinn og pakka oní tösku.....

sjúbbí....

Tuesday, March 16, 2004

Skuggalegur maður á bjöllunni

Það kom rosalega skuggalegur maður áðan, hann var með stóran pakka undir hendinni og í sjúskuðum rauðum og svörtum vinnugalla og með stafina DHP á, ég kannast ekki við það flutningsfyrirtæki, en alla veganna hann var með pakka til nágranna minna og bað mig að taka hann, ég var nú ekki alveg á þeim nótunum og sagðist bara ekki þekkja þá neitt, manni stendur nú ekki alveg á sama að taka við eitthverju frá ansi sjúskuðum kalli eldsnemma á þriðjudagsmorgni.

Monday, March 15, 2004

Annað hvort er ég búin að búa hérna of lengi eða fjónn er of lítill, ja reyndar búa jafn margir á fjóni og á öllu Íslandi, en þar þekkja reyndar allir alla. En þannig er mál með vexti að ég var í afmæli á laugardagskvöldið. Árný átti 23 ára afmæli, en Níels kærastinn hennar var með dana í skóla og kærastan hans hún var þarna líka og sko hún var með tveimur bekjarsystrum mínum frá því í fyrra í bekk í menntaskóla, já heimurinn er lítill, semsagt Mette var með þeim Tine og Wendy í bekk í menntaskóla....

Sunday, March 14, 2004

Hvað gerir þig sexy??? En samkvæmt þessu þá er þetta það sem gerir mig það::

What Makes You Sexy? by eva71
Name/NickName
Gender
Sexy Body Part IsYour Boobs
Special Talents AreLooking Innocent
Created with quill18's MemeGen 3.0!

Þetta er búin að vera afkastamikill Sunnudagur hjá okkur! Gummi byrjaði daginn á því að taka til hérna frammi og ég svaf aðeins lengur en hann eða til svona hálftíu, hann vaknar alltaf fyrir allar aldir. Svo lærði ég og hann þvoði þvott og eldaði hádegismat handa okkur. Síðan þegar við vorum búin að borða skelltum við okkur í hjólatúr og kíktum á antiksölu. Skruppum svo í búði í bakaleiðinni og ég keypti mér tvo striga, ég var ekki lengi að mála á þá og hengja upp myndirnar og á meðan lærði Gummi fyrir dönskuskólann, síðan fór Gummi að hafa sig til fyrir fótboltaleik, hann fór um hálffimm og síðan þá er ég búin að þrífa svefnherbergið, semsagt orðið hreint og fínt hérna hjá okkur en ég sit ein heima og drulluleiðist núna, Mæja fyrir neðan hringdi í mig en kærastinn hennar er í boltanum líka og hún sagði mér að leiknum seinkaði og þeir kæmu ekki heim fyrr en kl tíu í kvöld............. Semsagt bara jibby, ég hefði átt að kaupa mér fleiri striga í dag og meiri málningu þá gæti ég bara setið og málað, en ætla að slökkva á tölvunni og reyna að finna eitthvað í imbanum og ef það tekst ekki að taka fram DVD mynd.
En þetta er einn sá afkastamesti sunnudagur sem við höfum átt í langan tíma.

Saturday, March 13, 2004

Við fórum í bæinn í dag og keyptum draumapönnuna okkar, erum sko búin að vera að skoða pönnur lengi þar sem okkar er ónýt, en þetta er Raadvad panna og glerlok með rosa fín panna, er meira að segja leverandör fyrir danska hofið ( ég held samt að flest öll dönsk hönnun sé það). En ég keypti pönnuna fyrir pening sem að Mamma og Pabbi hans Gumma gáfu mér í afmælisgjöf. En við erum alveg í skýjunum með nýju pönnuna, elduðum rosalega góðan mat á hana í kvöld. Svo erum við að fara í afmæli til hennar árnýjar, ótrúlegt en satt þá er ég tilbúin og er að bíða eftir honum Gumma hann er að hafa sig til.
Adios og já skírnaðarkveðja til Helenu frænku, hún og Ellen eru að halda skírnarveislu í kvöld fyrir túttustaði.........


Friday, March 12, 2004

Ég var að fá pakka í dag, er bara alltaf að fá pakka þessa dagana. En núna þá voru það mínar bestustu vinkonur , Anna, Beta, Gunna og Rósa að senda mér afmælispakka. Þær sendu mér rosalega fallegt hálsmen. Takk kærlega fyrir mig krúttin mín.... hvenær ætlið þið svo að kíkja í heimsókn til mín????
Sjúbbí!!!!!!
Ég er komin í helgarfríííí!!!!!!!!! Það er ekki anatomíufyrirlestur í dag þess vegna fékk ég gott forskot á helgina, enginn skóli á föstudegi. Sit núna í náttfötunum við tölvuna og ætla að slappa aðeins af fyrir framan imbann og hitta svo hana Röggu niðri í bæ.

Wednesday, March 10, 2004

Ég var að fá sendan pakka frá noregi, þær tilvonandi mágkonur ( mákonur???) mínar og svili sendu mér rosa fínan bol og vettlinga...... hérna kemur mynd af mér í bolnum, tók hana sjálf og allt með svona timer.......



Ég er ætti að vera doktor samkvæmt nafninu mínu..........

Your future occupation by meteoric
Your name
Your future occupationDoctor
Yearly income$328,793
Hours per week you work39
EducationOver 6 years of college
Created with quill18's MemeGen 3.0!


Og hann Gummi ætti að vera forseti, ekki amalegt það

Your future occupation by meteoric
Your name
Your future occupationPresident
Yearly income$970,173
Hours per week you work73
EducationVery little
Created with quill18's MemeGen 3.0!

Myndir fra afmælinu

Tuesday, March 09, 2004

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún áfmæli hún Bryndís, hún á afmæli í dag
sjúbbí........
ég sit hérna og dilla mér við svona tölvupóstkort sem Gunna, Gísli og óskírða dúllan þeirra sendu mér.. En það hættir bara ekkert að spila ég varð að slökkva á því eftir smástund.
Ég er líka búin að opna afmæliskortið frá Gumma nokkrum sinnum en það syngur fyrir mig.... " Simply the best" ( better than all the rest, reyndar syngur það bara simply the best, en ég heyri hitt bara í huganum koma líka hehehe). Það stendur sko utan á því:
" Tillykke med fødselsdagen til en som er....." svo opnar madur og kortið syngur... heheheheh Simply the best....

Monday, March 08, 2004

Magga, Ásta og Sigrún Dóra snillingar


Það kom önnur pakkatilkynning um helgina og ég fór og náði í pakkann þegar rådskontoret opnaði áðan kl fjögur, það var ekkert smá æðsilegur afmælispakki. Þær stöllur sendu mér fullan kassa af íslensku nammi, það voru draumar, djúpur, siríus súkkulaði, tromppoki, lakkrískonfekt og risaópallar........ mmmmmmm það var fullur kassi af góðgæti. Það verður sko aldeilis nammi á morgun þegar ég á afmæli. Takk elsku Magga, Sigrún Dóra og Ásta þetta var frábær sending. Þið vitið sko greinilega hvernig nammi mér finnst gott



Ég veit að þeir sem búa hérna úti eru slefandi þegar þeir lesa þetta ..... svona sending eru sko gulls ígildi þegar maður býr í útlöndum.

En pakkinn sem ég fékk fyrir Helgi það var afmælispakki frá systkinum mínum, þau sendu mér rosa fína peysu, ég svindlaði smá og opnaði hann á laugardaginn pakkann og var í peysunni á laugardagskvöldið í partýinu. Takk elsku Brynjar og Ásdís Birta......

Sunday, March 07, 2004

Partý


Mér langar bara að byrja á að þakka fyrir mig, það var ekkert smá margir sem komu í gær og bara allir sem komu kærlega takk fyrir mig.
Ég og Ólöf heldum partý í gær í tilefni af afmælum okkar í músíkhúsinu í gærkvöldi. Ég skemmti mér rosalega vel, og vona að allir aðrir hafi gert það líka. Svo voru líka bara eins og jólin hjá mér í gær, ég fékk svo marga pakka, bjóst ekki við að fá neina pakka þannig að það var mjög gaman hjá mér, fékk alveg fullt af flottum gjöfum......

En ég vaknaði eldsnemma í morgun og ég og Gummi ( aðallega ég) vorum eitthvað svo morgunhress að við skelltum okkur út í músíkhús og þrifum pleisið á klt. Núna ætla ég að leggja mig aðeins fyrir framan imbann og safna kröftum í það að fara að læra. Skrifa kannski meira seinna um hvernig var í gærkvöldi..........

Thursday, March 04, 2004

Það var margt spennandi í póstkassanum í dag
Ég var að fá pakka tilkynningu í dag og svo beið Gumma rosa fallegt appelsínugult boðskort, sem hann er ekki enn búin að sjá, en vonandi sér hann það fyrir laugardagskvöldið....

Í gærkvöldi fór ég til Ólafar og við ætluðum að gera boðskort til að bera út á rassgati ( Rassmus Rask Kollegiet), en við misstum okkur aðeins í boðskortagerðinn og hmm... já þau voru vægast sagt skrautleg sum hver.....
En það hefur vonandi eitthver skemmt sér yfir þeim....

Tuesday, March 02, 2004

Bara að prufa hvort þetta virkar

Ég heyri alveg í honum justin vini mínum með þessu og syng hérna hástöfum....
Kvefið mitt virðist ekkert vera á leiðinni að fara, héllt ég væri að verða betri í gær en í gærkvöldi leið mér bara drulluilla og var komin með hósta og enn meira hor þegar ég vaknaði í morgun.
Þannig að ég sleppti eina fyrirlestrinum sem er á þriðjudögum hjá mér og vona að ég verði orðin betri á morgun..............

Monday, March 01, 2004

Vitlausi íslendingurinn kom á rådskontoret á kollegiunni og ætlaði að borga fyrir músikhúsið þar sem hún ætlar að halda upp á afmælið sitt næstkomandi laugardagskvöld. En hún kom með 25 kr til að borga þar sem að leigan kostar það, eða 300 kr íslenskar fyrir að leigja salinn sem er nú ekki slæmt. En auðvitað átti að borga tryggingu líka svo að hún fór aftur út og sagðist koma á föstudaginn að borga, en svo hringdi hún Gumma til að skamma hann fyrir að ljá að tilkynna sér um 300 kr þar sem að hann hefur leigt húsið áður, en hann héllt það væri fyrir bestikket en sagði henni nú frá földum 300 kr á heimilinu þannig að hún fór aftur út og borgaði og er því komin með lykil að músíkhúsinu og tilbúin að tjútta og fagna því að hún er að verða ansi gömul.... eða jafn gömul og það kostar að leigja húsið...
Maður lifir svo einangruðu lífi þegar internettið dettur niður eins og það gerði hérna á raskinu á laugardaginn, þannig að ég bara hafði ekki hugmynd um að það var óskarsverðlauna hátíðin seinustu nótt.
Svo sko horfði ég ekki á úrslita þáttin af Love and money og ætla að horfa á hann þegar hann verður endursýndur, svo var ég í mesta sakleysi að lesa bloggsíðuna hjá ástu þegar að hún byrjar að skrifa um þáttinn, náði rétt að loka glugganum, fékk semsagt sem betur fer ekki skúbbið frá henni. En núna er bara eins gott fyrir fólk að kjafta ekki hver vann....
en annars er mest lítið að frétta annað en það að ég er bara búin að vera hálf lasin um helgina, er svo kvefuð og slöpp... En vona að það fari að lagast, ég hata að vera kvefuð...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?