<$BlogRSDURL$>

Wednesday, April 28, 2004

Dansk Folkedans

Gummi sendi mér sms kl hálf átta og bauð mér að koma niður í bæ og horfa á danskan Folkedans, þar sem ég sat upp í skóla að læra og búin að vera þar í tæpa tólf tíma hljómaði það mun meira spennandi en að læra, var líka orðin svoldið svöng og ætlaði að dobbla hann eitthvað með mér að borða. En ég hitti Gumma og bekkjarfélaga hans úr dönskuskólanum, en bekkjarfélaginn er frá frönskumælandi Kanada og var ansi spenntur fyrir því að skella sér í Badstuen og skella sér í danskan folkedans. En þegar að við komum þangað inn þá biðu okkar svona 50 stykki af dönum og meðalaldurinn þarna inni var kannski um 78 ár og upp á sviði var fiðlu og harmonikku hljómsveit. Við stoppuðum nú ekki lengi við en bekkjarfélaginn var eftir, kallinn á barnum ( já gamlingjarnir voru með bar líka) hann vildi endilega fá okkur með í dansinn sagði að maður væri enga stund að læra þetta, við afþökkuðum það pent.
En ég fór á heimasíðuna hjá Badstuen og sá auglýsinguna sem hljóðar svona:

Folkemusiklauget Fynboerne
Onsdag den 28. april 2004 kl. 19-22 spiller Folkemusiklauget Fynboerne op til Bal på Badstuen, Østre Stationsvej 26 i Odense. Alle er velkomne. Vi instruerer, hvis danserne ikke kender dansen - så mød bare op og prøv at være med til at danse. Gratis Entré.


En Badstuen er reyndar ansi sniðugt fyrirbæri og verður stutt fyrir okkur að fara þegar við verðum flutt en þetta er svona kulturhús þar sem hægt er m.a. að smíða, úr við, búa til úr leir, gera skartgripi, ljósmyndir, málm og rafmagn, vídeo og ( serigrafi veit ekki hvað það er), svo er hægt að fara í tölvur ( edb) og ljósrita, sauma og lita efni. En allt þetta er ókeypis það eina sem maður borgar fyrir eru efnin sem maður notar. Þetta er hús á vegum kommúnunni og svaka sniðugt, eigum örrugglega eftir að skella okkur eitthvern tímann þangað aftur.

Fyrir utan þessi 7 forkunnarfögru verkstæði eru líka alls konar arrangement eins og þetta sem við fórum á og er það :
kulturafdeling som arrangerer en mængde aktiviteter, koncerter, udstillinger, børneteater, foredrag, rockcafé, sodavandsdiskotek og andre kulturevents.
og allt fríkeypis.

Tuesday, April 27, 2004

Unisex klósettin í Uni



Ég veit ekki hvort ég hef nokkurn tímann skrifað um unisexklóssettin uppi í Uni, en alla veganna þá eru flest klósettin í skólanum mínum ( Uni=universitet) svona fyrir bæði kynin og því getur maður átt von á pissuslettum útum allt og oft þarf maður að taka handþurrkurnar til að setja niður sessuna,ekki sest ég samt á hana skil ekki alveg afhverju ég hef því tekið hana niður en er snarhætt því núna og þar sem ég er frekar mikil pempía finnst mér þetta ógeðslegt og sé liggur við allar bakteríurnar og draslið skríða þarna um ( ímyndunaraflið er alla veganna það gott). Oft eru þau frekar illa lyktandi og bara ógeðsleg yfir höfuð. En í dag prufaði ég nýtt klósett í dag, var að fara út um inngang A og þurfti allt í einu að pissa og hjólaferðin heim eftir svo það var nú betra að skvetta úr henni Jakobínu ( úpps.... ég er kannski jafn klikkuð og Ólöf, ég skíri ekki heimilistækin mín heldur er það blaðran mín hún Jakobína) og í fyrstu var ég svaka glöð þegar ég sá að þarna var sér kvennaklósett, heldur betur fór nú gleðin mín að dvína þegar ég steig inn um dyrnar, það var fúkkalykt þarna inni og lausar þak/vegg plötur upp við einn veginn, greinilega eitthvað verið að vinna þarna, en sú allra vesta fúkkafýla sem ég hef á ævinni fundið, held að þessum klósettum hafi verið gleymt í 15 ár, alla veganna voru þau mjög illa þrifin öll 30 stykkin ( svona 10 til eða frá). Alla veganna öfunda ég ekki deildarnar þarna fremst sem þurfa að fá svona vibbaklósett, þá eru unisex klósettin skárri, ég héllt ég myndi nú aldrei segja það, en maður á víst aldrei að segja aldrei.

Monday, April 26, 2004

Jæja þá er ég komin heim, fastan yfirstaðin, en við mældum blóðsykurinn áður og eftir að við borðuðum kolvetnisríka máltíð ( franskbrauð með sultu , ég borðaði hraukkbrauð með sultu) og svo tókum við helling af blóði og geymum það í frysti þangað til í næstu viku þegar við mælum fitusýrumagnið í blóðinu. En Elin stóð sig vel í blóðtöku hlutverkinu og mundaði pennan hátt á lofti ( svona penna sem sykursjúkir nota). Minn blóðsykur var mjög fínn sem er bara gott mál, sá að hann hækkaði eftir að hafa borðað og lækkaði svo aftur eins og hann á að gera, en ég var orðin rosalega svöng því að svona óholl máltíð hækkar blóðsykurinn hratt en lækkar hann líka hratt aftur og því var ég orðin frekar óþolinmóð að bíða í lokin klt á milli mælinga, en Elin hafði keypt súkkulaði stykki handa mér og Anne og við nutum þess sko vel eftir þessa tilraun.

og það var frekar notalegt að slappa af milli mælinga meðan að hjólahópurinn ( Gunnhildur t.d) fékk ekkert að borða heldur þurfti að hjóla í 2 tíma og þau voru orðin vel sveitt í lokin, kaffihópurinn fékk heldur ekkert að borða heldur varð að drekka kalt ógeðslegt kaffi, þau hlóu frekar mikið þar, voru orðin svoldið svona hyper held ég. Svo fengu þau í þokkabót bara 1 dl af haframjöli í morgunmat og voru því næstum því fastandi líka öll.....

Sunday, April 25, 2004

Bara smá update: En kjötið var rosalega gott með uppstúf og öllum græjum, reyndar verð ég nú að segja að íslenska hangikjötið hafi vinninginn en engu að síður var þetta mjög bragðgott og bara hvet því endilega alla hangikjötsþyrsta íslendinga í danmörku að skella sér í fakta og kaupa sér sænskt reykt lambalæri á 99 kr.

Við skötuhjúin erum nú ekkert sérstaklega tilraunarsöm í eldhúsinu ( alla veganna ekki eins og Sigurrós og fleiri) en þar sem að við erum að tæma frystinn okkar áður en að við flytjum og núna var bara purusteik og reykt sænskt lambalæri eftir. Við tókum því reykta sænska lambalærið út úr frystinum í gær og vorum að sjóða það, ætlum svo að borða það með uppstúf á eftir, og vonum að það bragðist eins og íslenskt hangikjöt, það alla veganna lítur eins út, þó að kjötið sé ekki úrbeinað en það lyktar ekki alveg jafn vel og birkireykta hangikjötið að heiman. En við hlökkum til að gæða okkur á þessu í kvöld, vonandi bara bragðast þetta jafn vel og við vonum......
Því ég á svo að fasta frá því í kvöld og þangað til kl 14:00 á morgun, allt í þágu vísindanna. Eða sko við erum að fara að gera tilraun á morgun og verðum við líka tilraunadýrin í leiðinni, en maður hafði um 3 valmöguleika að velja, einn hópurinn á að fasta og fá svo að borða þegar við komum þarna kl 14:00, hópur númer 2 á að borða léttan morgunmat og hjóla svo í 2 klt með púls á 120 seinnipartinn, þriðji hópurinn á að borða léttan morgunmat og svo kaffibolla þarna kl 14.00 og kaffibollin er sko ekki bara venjulegur kaffibolli, þetta verður kallt sterkt kaffi, með koffein innihaldi sem samsvarar 5 venjulegum bollum. Þar sem að ég drekk ekki kaffi finnst mér þessi hópur ganga í gegnum þvílíka kvöl og pínu og þau fá hvorteðer bara ca 1 dl haframjöl og vatn í morgunmat og fasta svo til 14, þannig að mér finnst mitt hlutverk bara lang skárst af þessum öllum.

Saturday, April 24, 2004

Ég sá þetta á síðunni hennar Srósar en ég er víst Travis....



Which British Band Are You?


Við hjóluðum í morgun upp í skóla, bæði til að læra. Gummi var búin að ákveða að vera duglegur í dönsku málfræðinni, enda er hann að fara í próf 18.maí. En greyið var svo þreyttur eftir vikuna, að hann gerði mest af því að sofa fram á borðið eða sofa úti á bekk, og borða nestið sitt, en það gengur bara betur næst ;)
Annars er synd að þurfa að vera í prófum þegar það er svona gott veður, það er þvílíkt gott veður sól og steikjandi hiti.
Í kvöld ætlum við svo bara að slappa af heima.

Thursday, April 22, 2004

Snillingurinn William Hung úr American Idol var að gefa út. En platan er víst komin í 34 sæti á billboard listanum segir Gummi mér, en hann fékk að heyra í dag í útvarpinu Hungs útgáfu á Hotel California. En hérna komma nokkur tóndæmi frá kappanum... Njótið vel
Bailamos
Shake your Bon Bon
I belive I can fly

Wednesday, April 21, 2004

Ef ykkur langar að sjá viðtalið sem að var sýnt í kvöldfréttunum í gær á rúv, þá skellið ykkur á www.ruv.is og í vinstra megin er: horfðu á sjónvarp og þar ýtirðu á veldu og velur upptökur frétta svo er það efsta táknið ( rúv táknið) og þar velurðu gær þriðjudag og svo 22:00 og þá kemur upp fréttatíminn, og á 9 mínútu komur svo litli bróðir

Tuesday, April 20, 2004

Brósi bara frægur



Bróðir minn er alveg einstakur, hann er 15 ára og var áðan í Íslandi í bítið, það er viðtal við hann í fréttablaðinu í dag ( þeir sem eru heima endilega geyma fréttablaðið fyrir mig) og viðtal á rás 2 og í fréttatíma stöðvar 1 á eftir. Jahá hann ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, er í sambandi við meðlim úr hljómsveit Paul McCartneys og stendur fyrir undirskriftasöfnun á netinu, því Paul gæti komið til íslands ef áhuginn er nægur. Þannig að allir bara að skrifa undir á http://www.paulisland.tk/


Monday, April 19, 2004

Hver er maðurinn?!?!?......
Nú er mín forvitna síða farin að kræla á sér, þegar ég las þetta á nokkrum bloggsíðum, en var ekki búin að lesa þetta á mbl.is

Slapp með skrekkinn í Óðinsvéum
Rúmlega tvítugur íslenskur námsmaður í Óðinsvéum í Danmörku slapp með skrekkinn þegar hann mætti tveimur ræningjum í miðbænum snemma í gærmorgun.
Sagt er frá því í Fyens Stiftstidende í dag að Íslendingurinn hafi verið að skemmta sér um nóttina en var á leið heim fótgangandi og ætlaði að fara gegnum Kóngsgarðinn í átt að járnbrautarstöðinni. Þá mætti hann tveimur karlmönnum um tvítugt og sá að annar þeirra hafði hafnaboltakylfu í hendinni og hinn huldi andlit sitt með úlpuhettunni. Þeir gengu beint að Íslendingnum og sögðu: Láttu okkur fá peningana þína og hófu um leið kylfuna á loft.

Íslendingurinn svaraði á ensku og sagðist ekki skilja þá. Við þetta brá ræningjunum og þeir reyndu að endurtaka skipunina á lélegri ensku en Íslendingurinn nýtti sér fátið sem kom á tvímenningana og tók til fótanna. Honum tókst að stinga ræningjana af og hringja í lögreglu.

Blaðið segir að ekki hafi enn tekist að handtaka mennina þótt íslenski námsmaðurinn hafi getað gefið góða lýsingu á öðrum þeirra.


En út í aðra sálma, í gær vorum við með matarboð, eða eiginlega Gummi, ég lærði um helgina, en hann þreif íbúðina, og grillaði lambalæri og bauð fyrrum vinnufélaga sínum og kærustunni hans í mat, en þau búa hérna á kollegiunni og þar sem við erum að fara að flytja, var ekki seinna vænna að bjóða þeim. Við áttum notalega kvöldstund, og eftir dönskutal upp í skóla, dönskutal heima, talaði ég bara dönsku við Gumma í gærkvöldi þó hann hafi verið að spyrja mig á íslensku, var orðin svoldið þreytt....


Saturday, April 17, 2004

Lenti í smá ævintýri í dag, var upp í skóla að læra. En stefnan var tekin á fótboltaleik OB-Esbjerg kl 17.00, ég lagði snemma af stað, enda ætlaði að gefa mér nógan tíma í hjólaferðina, en þegar ég var kominn inn í miðjann skóginn sprakk á hjólinu mínu, svo mín þurfti að arka hratt gegnum skóginn með hjólið í eftirdragi. Loksins þegar ég kem út úr skóginum, eftir langa göngu, finnur mín hvað gatan heitir og hringir á taxa. En þetta var ákkurat á lokunartíma í rosengard, svo allir taxar í hverfinu voru uppteknir, mín þurfti að bíða ansi lengi fannst mér, voru kannski bara 5-10 min. En alla veganna loksins kom leigubíllinn og þá var geðveik traffík á leiðinni heim, héllt ég myndi aldrei komast heim með hjólið mitt. Svo var drifið sig að labba niður á völl, vorum rétt sest þegar að klappstýrurnar komu inn á völlinn.

Friday, April 16, 2004

Stærðfræði ( kannski efnafræði) nördar eru ekki girnilegir berir að ofan. Fór yfir á Imada í dag til að prenta út, þar sem að allir aðrir prentarar háskólans virðast vera bilaðir, þar blasti mér ekki fögur sjón, í portinu sem er niðri á milli þarna tveggja efnfræði ganganna og áður en að maður fer upp tröppuna í netkaffið. En það sem við blasti voru hálfnaktir nördar úti að læra, eins og áður sagt þá var það vægast sagt ekki fögur sjón. Eiginlega bara sjónmengun.

En annars er ég alveg komin í sumarfílinginn, veðrið hérna er dejligt, eiginlega bara betra en bestu sumardagar á Íslandi. Daninn er samt ekki kominn í alveg jafn mikinn sumarfíling og ég, sem hjólaði á stutermabol í skólann í morgunn, hjólaði framhjá gellu í ullarkápunni og með vettlinga, gaur í úlpu og ég veit ekki hvað. En það er um 18 stiga hiti og hvað er liðið að gera í vetrarklæðnaði kl hálftíu að morgni.

Thursday, April 15, 2004

Ég elska að grilla


Kom heim dauðþreytt úr skólanum áðan og sá Gumma út á svölum að gera grillið klárt. Varð ekkert smá glöð, því ég var svo svöng eftir hjólatúrinn, hlakka til að borða grillað svínakjöt.


Tuesday, April 13, 2004

Meðal aldur þeirra sem skoða síðuna mína er víst 24 ára, og allir virðast búa á íslandi sem að skoða hana, annars gæti það kannski líka verið að það var enginn sem svaraði nema Gunna vinkona könnuninni minni. Takk Gunna fyrir að svara, en finnst ansi lélegt af hinum sem skoða síðuna að hafa ekki getað svarað, það eru 34 búnir að skoða síðuna 12, og 13 apríl, og ég setti þetta inn 11. apríl og þá skoðuðu 49 síðuna, mér finnst nú að fólk hefði nú alveg getað svarað.......... Sá að alla veganna einn bauni frá Tietgen business college var að skoða síðuna í dag, hver sem það nú var.

Annars er ekkert að frétta, bara enn gott veður og spáð sól en ekki heiðskíru næstu daga, og hlýnandi veðri, það á að vera heiðskírt á fimmtudag, en svo aftur sól og hálfskýjað um helgina.... ha ekki spennandi að lesa veðurfréttir???


Sunday, April 11, 2004

Svona hljóðar málshátturinn minn í ár:Það dansar enginn við sjálfan sig
En Gumma er svona:Grísir gjalda, gömul svín valda




En núna ætla ég að leggja fyrir ykkur nokkrar spurningar, svona að forvitnast hver er að skoða síðuna, og allir að svara, ekki bara þeir sem ég veit að skoða síðuna...



Spurningaskema


Svaradu vinsamlegast eftirfarandi spurningum



Nafn:


Aldur:


Land:






Hérna eru svo páskamyndirnar okkar, meðal annars frá grillveislunni í gærkvöldi

Saturday, April 10, 2004

Fallega bleikur


Maður er bara orðin fallega ljósbleikur í framan eftir bongóblíðu undanfarinna tveggja daga, vil nú ekki samt meina að ég sé brennd. En það var hin árlega "íslenska" páskagrillveisla á raskinu í dag, ég fékk alveg ljúfengt grillað kjöt ala Gummi.
Annars er grillkappinn bara sofnaður í sófanum, tími eiginlega ekki að vekja hann til að henda honum inn í rúm því hann er svo mikil dúlla svona sofandi, en hann þarf að vakna til að fara í vinnu í fyrramálið.
Ég ætla að skella inn myndum á morgun og japla á páskaeggjinu mínu á morgun frá grillveislunni og frá bíltúr sem að við tókum á fimmtudaginn til Svendborgar.
Annars eru þau enn að nokkur úti, mér var bara orðið skítkalt gat ekki verið lengur úti.

Ég ætlaði að setja þetta á netið í gærkvöldi, en það tókst ekki alveg. En ég var að vakna og sólin skín enn, lítur út fyrir bara enn heitari dag í dag en í gær. Það var víst 27 stiga hiti í gær, held reyndar að það hafi verið í sólinni. Alla veganna gat maður verið í hlýrabol og á pilsi og samt verið heitt. Mér langar að skella mér í sund eða eitthvað í dag, við erum að fara til Fredericia í mat til Auðar og Gísla, þar er reyndar rosalega flott innisaundlaug, en mér langar út í sólina :) Alla veganna sleikja nokkra sólskinsgeisla og breyta bleika litnum mínum í rautt, ja hver veit.. Annars er kannski bleiki liturinn minn jafn bleikur og að úlpan mín er græn....

Friday, April 09, 2004

Mmmmm íslenskt lambalæri er ekkert smá gott........ Sólveig eldaði handa okkur ( Gumma, mér, Söru og honum danska Thomasi sínum), gat nú ekki séð annað en að danskurinn hafi líkað vel við íslenska lambið, hann lét alla veganna ekki sitt eftir ligga í átinu, hann og Gummi tóku vel á því. Enda var þetta alveg ljúfengt hjá íslensku húsfreyjunni henni Sólveigu.
Svo var tekið eitt spil af Lord of the rings Risk, sem er eina danska spilið sem þetta íslenska pakk á, gekk bara vel og Gummi kom sáttur heim, enda vann hann....


Tuesday, April 06, 2004

Þá er páskafríið hafið...... Ég held að mér eigi nú ekki eftir að leiðast í páskafríinu, en ég hef nóg af (skóla)bókum að lesa. Okkur er boðið í mat til Sólveigar á skírdag, svo á laugardaginn er grillveisla hérna á raskinu, á páskadag er okkur boðið í mat til Auðar og Gísla í Fredericia. Svo byrjar skólinn aftur á næsta þriðjudag..

En hvað ætlið þið hin að gera í páskafríinu, endilega sendið mér email eða kommentið hérna á síðunni.....

Sunday, April 04, 2004

Jæja eins og ég er nú mikið búin að skammast yfir dönsku bankakerfi, þá var ég að fá Dankortið mitt í dag, tók ekki langan tíma og fékk það sent heim, vúhúú....
Þeir eru nú ekki al slæmir, en þetta var hjá Danske Bank, en hitt vesenið er allt búið að vera hjá BG bank, en núna get ég farið og skipt ávísuninni úje og farið í búðir og verslað með korti, þvílíkur lúxus......
En ég er reyndar ekki komin með pinkodan, hann kemur eftir 3 daga og kemur því vonandi á miðvikudaginn, svo ég verði komin með nothæft kort fyrir páska...

:)

Friday, April 02, 2004

Danskt bankakerfi er nú til háborinnar skammar, alla veganna þjónustan sem þeir veita. Ég fór í dag voða hress með 628 dkr endurgreiðsluna frá skattinum í formi ávísunar og ætlaði aldeilis að geta keypt mér sumarjakka eða skó, ég byrja á því að fara í bankann þar sem að ávísunin var nú með tveimur strikum. En alla veganna ég beið í 20 min í bankanum eftir afgreiðslu, loksins þegar ég komst að þá spurði tussann

( sama og einu sinni neitaði að opna hraðbanka til að ná í visakortið mitt, sem að hafði fest í hraðbankanum vegna þess að hann var bilaður og þeir höfðu ekki fyrir því að setja skilti á hann að hann væri bilaður, nei hún vildi senda það til Íslands, það væru reglurnar, en kommon það eru reglurnar ef maður gerir vitlaust pinnúmer eða þetta er vákort, en neinei hún haggaði sér ekki þá).

hvort ég ætti reikning í bankanum ég sagði nei, þá sagðist hún ekki geta skipt ávísuninni því það væru tvö strik á henni, ég benti henni þá á að ég ætti engan bankareikning í danmörku og því hefði ég fengið ávísun frá skattinum, en hún sagði að enginn banki myndi geta tekið við henni nema að ég ætti reikning hjá þeim, sem mér finnst fáránlegt og hún var nú þegar hingað var komið til sögu búin að ýta á næsta númer svo næsti viðskiptavinur var komin, ég ætlaði nú ekki að gefa mig alveg svona auðveldlega og spurði hana þá var í andskotanum ég ætti nú að geta skipt ávísuninni ef ég ætti hvergi reikning, hún sagði mér að tala við told og skat, eins og þeir geti borgað út ávísunina.............. ohh ég er svo pirruð að það hálfa væri nóg, nú þarf ég semsagt að byrja á því að stofna bankareikning áður en ég get látið skipta ávísuninni....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?