Sunday, May 30, 2004
Ég hef ekkert skemmtilegt að segja þar sem ég geri ekkert nema lesa skólabækur og þeir sem að tala stöðugt um námið sitt eru bara hundleiðinlegir.
En í gær þá tók ég strætó upp í skóla, get eiginlega ekki hjólað núna það er svo mikið af grasfrjóum í loftinu, eða sko var að lesa hjá ofnæmissamtökunum í Odense, eru sko í þarnæstu götu að maður á ekki að hjóla þegar að þegar maður er slæmur af ofnæmi því þá innandar maður helmingi meira, og heldur ekki að keyra í bíl með opna glugga né miðstöð í gangi nema miðstöðin sé með sérsakri ofnæmissíu eins og flestir nýjir bílar. Gummi var með mér og loksins trúði hann mér að ég var ekkert að ljúga með að maður á ekki að keyra með opna glugga né með miðstöðina á, held af ofnæmislæknirinn minn hafi sagt mér það, skiptir annars ekki máli.
En alla veganna aftur að strætóferðinni, þegar ég stend úti og bíð eftir strætó koma tveir rónar, þessi sem er alltaf að spila á gítar og er með hatt með eitthverju svona dóti út úr, alla veganna hann var að ræða við annan frekar ungan róna um hvað fólk gengi nú illa um miðbæinn, þetta væri agalegur sóðaskapur, mér fannst þessar samræður ansi fyndnar, og enn betra þegar hann fór að tína upp í ruslatunnu drasl og safna flöskum ( fær reyndar pening fyrir þær). Hver segir svo að rónar séu slæmir fyrir miðbæinn.
En alla veganna nú er pásan mín búin og tími til komin að hella sér í bækurnar aftur....
túrilú

Sunday, May 23, 2004
Ég hef nú ekkert að segja, það er að hefjast próflestur og talvan er líka biluð, er svo sem alveg sama um það þar sem að ég hef hvorteðer ekkert tíma til að vera í henni. En það er ein vika eftir af skólanum og þegar hún er liðin er vika í fyrsta prófið...
semsagt væntanlega ekki innihaldsríkt blogg á næstunni...
en fariði vel með ykkur og endilega sendið mér email.
semsagt væntanlega ekki innihaldsríkt blogg á næstunni...
en fariði vel með ykkur og endilega sendið mér email.
Tuesday, May 18, 2004
Monday, May 17, 2004
Þá erum við flutt í frábæra íbúð á besta stað, íbúðin er yndisleg, er ótrúlega björt og flott. Okkur líður rosalega vel hérna. Ég fékk líka heimsókn frá pabba mínu, sem er sko bara bestasti pabbi í öllum heiminum, ekkert smá mikil hjálp að hafa hann hjá okkur.
Það var samt ekki nógu vel gert hjá okkur því við fáum ekki allt inskuddið okkar tilbaka, þarf að mála hluta af íbúðinni aftur, erum frekar pirruð yfir því, eiginlega bara hoppandi bandsjóðandi ill, en fáum að kíkja á hana þegar að málarar verða búnir að gera það, og ef þeir gera ekki betur en við skal ég verða argandi hoppandi sjóðandi ill og heimta inskuddið aftur.

Thursday, May 13, 2004
Stóri Flutningadagurinn er í dag, á morgun er svo stóri brúðkaupsdagurinn. Það snýst allt um þetta blessaða brúðkaup, í gær þegar ég náði í Pabba út á flugvöll, var allt fullt af krökkum í lestinni sem höfðu verið á ráðhústorginu að hitta mæju og frikka, Kaupmannahafnarborg var að gefa þeim 300 glös. Þau eru búin að fá ótrúlegar gjafir, danskir skattgreiðendur eru að borga 142,5 danskar milljónir fyrir þetta... úff hvað ég er fegin að við erum ekki með kóngafjölskyldu.
Tuesday, May 11, 2004
Ég hlakka til að fá hann pabba minn á morgun, og hlakka til að verða flutt, finnst ekkert sérstaklega gaman að flytja og mála, en verður frábært að búa niðri í bæ.
Það var líka geggjað veður í gær um 25 stiga hiti, ég fékk reyndar ekkert að njóta þess þar sem að ég var inni í skóla allan daginn.
Hef svo sem ekkert að segja, það er fjall af kössum fyrir aftan mig, og þetta er ekki beint eins og heimili lengur... Bara eldhúsdót og baðdót enn uppi við og jú tölvuborðið og sjónvarpið :) svona nauðsynlegustu hlutirnir.

Sunday, May 09, 2004
Saturday, May 08, 2004
Ég verð víst að losa mig við uppáhalds hlutinn minn í öllum heiminum, nefnilega ofninn minn sem ég keypti í vetur, mér er nefnilega alltaf kalt og ég elska að geta bara kveikt á ofni þegar mér er kalt og það verður strax heitt, sérstaklega eftir kl 23 á kvöldin þegar að raskurinn slekkur á sínum ofnum. En þegar maður er að flytja á stað þar sem að rafmagnið er ekki innifalið í leigunni verður maður að passa sig, ofninn minn elskaði er nefnilega rafmagnsofn. Ég verð því að skilja mig við hann, annað hvort að setja hann niður í geymslu í 3 ár, eða að selja hann. Ég ætla að reyna að selja hann á 100 kr, en þetta er 7 rifja og 1500 w ofn, algjör draumur í dós, ef ég á eftir að sakna eitthvers af raskinu þá verður það hann og allar sjónvarpsstöðvarnar.
En ef ykkur vantar ofn þá bara að hafa samband...
og Gummi benti mér á að hún "Þorgerður"-þvottavél þarf líka að fara, þannig að ef eitthverjum vantar þvottavél...
En ef ykkur vantar ofn þá bara að hafa samband...
og Gummi benti mér á að hún "Þorgerður"-þvottavél þarf líka að fara, þannig að ef eitthverjum vantar þvottavél...
Friday, May 07, 2004
Landssöfnunn til styrktar norðmönnum
Hingað til hefur noregur ekki verið talið eitt af þurfandi ríkjum heimsins. En danir hafa samt staðið í landsöfnun undanfarna daga til styrktar norðmönnum, vegna þess að þar ríkir víst verkfall á að ég held bílstjórum sem að koma með klósettpappírinn í búðirnar. Við urðum að sjálfsögðu mjög áhyggjufull þar sem að systur hans Gumma eru í noregi og mágur hans, skelfingu lostin sendum við þeim sms, bjuggumst jafnvel við að þurfa að taka bátinn yfir og koma með klósettpappír, þau gætu þess vegna setið föst á klósettinu. En svo var nú ekki sem betur fer, þau eru hólpin, ekki allar búðir eru víst ramdar af þessu.
En einn danskur þáttargerðarmaður stóð á Karl Johansgade í dag og dreifði klósettpappírnum sem hafði verið safnað í danmörku til þurfandi, það sést maður á mynd þiggja heilar 16 rúllur, hann hefur kannski verið með niðurgang greyið.
Thursday, May 06, 2004
Wednesday, May 05, 2004
Hafiði nokkuð séð þennan á Rassmus Rask Kollegiunu á aðfaranótt sunnudagsins 2.mai, það var nefnilega afmæli úti í músíkhúsi á laugardagskvöldinu og gestgjafanum var ekki sagt á skrifstofunni að fleiri væru með lykla að músíkhúsinu svo þau skildu eftir afmælisgjafir inni í húsinu, þessi sást fyrir utan þegar að var verið að læsa húsinu og það vildi svo til að það var óvart tekin mynd af honum. Ef þið hafið séð þennan gæða sér á 12 ára gömlu wiski, leika sér dvd xbox kit, og hlustandi á skrifaðan disk af bubba og fleiri góðum tónlistarmönnum, talandi í nokia síma, annars á maður nú víst ekki að sakfella fyrr en að sekt er sönnuð, en þetta er eina vísbendingin í málinu og skrifstofan á kollegiunni gerir ekki neitt í málunum frekar en fyrri daginn...
Ef þið vitið hver þetta er, eða sáuð eitthvað á kollegiunni megið þið endilega hafa samband við íbúð 1105 eða bara á kommentakerfinu hérna....
Ef þið vitið hver þetta er, eða sáuð eitthvað á kollegiunni megið þið endilega hafa samband við íbúð 1105 eða bara á kommentakerfinu hérna....
Sunday, May 02, 2004
Það er sko frábært að búa í útlöndum þegar það er 22 stiga hiti og sjúklega gott veður, en ekki alveg jafn gott þegar maður ætlar sér að verða að læra en verður ekki mikið úr verki vegna góðs veðurs. En ég er skaðbrennd á annari öxlinni, ég sat úti á svölum að læra og svo voru ólöf og Axel að kveikja upp í grillinu í hádeginu svo við skelltum okkur niður og settum pulsur og hamborgara á grillið, og svo sat ég niðri í garðinum hjá þeim og reyndi að lesa í hitanum en það gekk frekar hægt held ég hafi lesið 2 bls á 3 tímum, en þar sem ég var að reyna að lesa sat ég ekki beint upp í sólina og úff... vinstri öxlin mín er eldrauð en ekki hægri hehehe.... SVo er ég komin með far eftir sandalana mína á ilina. En ég vona að það verði svona gott veður eftir 2 vikur, en þá erum við að flytja og hann Pabbi minn er að koma í heimsókn. Ég hlakka rosalega til að hitta pabba, vona bara að hann fái gott veður, hann er líka svoddan sóldýrkandi eins og ég, ég er nú ekki vön að brenna verð yfirleitt bara brún, en núna því miður er ég brennd en verð samt ýkt brún þegar ég hætti að vera rauð.
Saturday, May 01, 2004
Ég var rosalega góð kærasta í gærkvöldi, þegar Gummi kom heim úr vinnunni eftir langan vinnudag var ég búin að elda voða góðan mat, og gera eftirrétt a la gústi . Svo í kvöld erum við að fara í 30 ára afmæli til Hauks, hann heldur upp á það hérna á kollegiunni í músikhúsinu. Það verður örrugglega stuð þar, ég held samt að ég verði ekkert langt fram eftir nóttu því ég þarf að læra á morgun.... en túrilú ætla að fara að koma mér í veisluna