<$BlogRSDURL$>

Thursday, July 29, 2004

Hann Gummi minn er að byrja í skólanum mínum í haust að læra HA(dat). Hann er í níunda himni yfir að vera að byrja í skóla, orðið raunverulegt núna þegar hann er búin að fá það á hreint að hann sé kominn inn í skólann.

Mig langar bara að óska honum innilega til hamingju með skólavistina.

Annars er nú bara mest lítið að frétta af mér, er að fara í bíó í kvöld með brósa, á þýsku gamanmyndina Good bye lenin, svo er ég bara að vinna um verslunarmannahelgina sem er bara ágætt þar sem að það er spáð bara rigningu og leiðinlegu veðri um helgina.

(9,13)

Monday, July 26, 2004

Það eldast víst allir og Eva vinkona er komin í hóp þeirra sem eru 25 ára á árinu, stórafmælisárið mikla. Til hamingju með afmælið Eva!

(12,16)

Saturday, July 24, 2004

Það er aldeilis að verðandi brúðhjónin fá gott veður í dag, glampandi sól.
Ég fór á Fame í gær, með litlu systur minni því henni langaði svo rosalega að fara. Ég verð nú bara að segja að þau sungu endalaust sömu lögin, aftur og aftur og aftur, og svo var enginn söguþráður. En systir mín var alveg dolfallinn fannst þetta rosa flott, hún er 8 ára sem segir kannski eitthvað um gæði sýningarinnar.

(14,18)

Thursday, July 22, 2004

Ég vildi bara lýsa ánægju minni með það að Skjár einn ætlar að taka enska boltann til sýninga, þó að nokkrir leikir verði ekki sýndir með íslenskum þulum, heldur enskum. Helstu leikirnir verða með 2 íslenskum þulum, mér lýst bara rosalega vel á þetta. Nú þurfa fótboltaáhugamenn ekki að borga morðfjár fyrir Stöð 2 og Sýn til að sjá nokkra skitna fótboltaleiki. Mér finnst þetta bara frábært framtak, afnotagjöldin af sjónvarpsstöðvum eru allt of há á Íslandi miðað við gæðin. Mér finnst Skjár einn bara hafa aukið úrval og gæði sjónvarpsefnis á Íslandi mikið síðan að hún kom til sögunnar.
 
En jæja nóg um það, var bara svona efst á baugi hjá mér þar sem ég var að enda við að horfa á umræður um þetta í sjónvarpinu, Íþróttafréttamaðurinn frá Sýn var ekkert sérstaklega málefnalegur í sínum umræðum hann gat ekki leynt vonbrigðum sínum að þeir eru að tapa einni stærstu auglýsingatekjulind sinni og fullt af áskrifendum. 
 
En já að mér, ég hef nú ekki gert mikið síðan ég kom til Íslands annað en að vinna. Fór að vísu út að borða þegar Anna héllt upp á 25 ára afmælið sitt. Skrapp á eitt Reunion og já var veik. Mamma og Pabbi skruppu í viku til Krítar á meðan átti ég að sjá um brósa. En alla veganna við svona sáum samt svoldið bara um hvort annað, hann er jú að verða 15 ára á árinu, ekki neitt barn lengur drengurinn. Gott að hafa hann til að stjana við mig þegar ég var veik. 
 
Ég hef bara ekki farið á einn einasta skemmtistað í miðbæ reykjavíkur, reyndar verið að vinna allar helgar en samt enginn frammistaða finnst mér, ungfrúin greinilega orðin svoldið slöpp í svona hlutum, og já vinirnir líka, allt orðið fjölskyldufólk. En maður gerir bara aðra hluti eins og að skreppa í sund og svona notalega hluti, sem eru svo yndislegir við Ísland ( heitu pottarnir)
 
En svo er bara alltaf að styttast í Spánarferðina, en mér hlakkar auðvitað óskaplega til að hitta hann Gumma minn aftur og sakna hans, en svo get ég heldur ekki beðið eftir því að komast í frí og liggja í sólbaði á spáni. Ég er semsagt farin að telja niður og bíð spennt eftir þessu.
 
Um helgina er ég svo að fara í Brúðkaup hjá Litlu frænku (omg), svo er ég nú að vinna með stelpum sem eru 8 árum yngri en ég, þær vissu fyrst ekkert alveg hvað ég var gömul, héldu að ég væri mun yngri ( sem er bara gott, alltaf gaman að vera unglegur), en alla veganna þær spurðu nú hvort ég ætti kæró og hvað hann væri gamall, ein missti gjörsamlega andlitið þegar ég sagði aldurinn á kæróinum, hún er ekki enn búin að jafna sig á því greyið, spurði mig t.d. í dag hvort að hann væri mjög unglegur heheheh....  Þeim finnst þetta hryllileg tala á aldrinum á honum, finnst hann eiginlega bara hundgamall. Sérstaklega þar sem að ein þeirra á pabba sem er 6-7 árum eldri en Gummi, finnst eins og ég sé eiginlega bara með eldgömlum karli heheh....  Já kannski er hann bara orðin eldgamall kallgreyið.
 
Ég hlakka til að fara í brúðkaupið, það er alltaf svo fallegt og hátíðlegt og gaman í brúðkaupum, tárin eiga örrugglega eftir að streyma í stríðum straumum ( er það alla veganna ekki alltaf svoleiðis í bíómyndunum). Veit alla veganna að maður á eftir að klökkna smá, kannski brynna örfáum músum ja hver veit.
 
( 16,20)
 
 

Saturday, July 03, 2004

Ég er komin með gsm númer á íslandi

8677075

This page is powered by Blogger. Isn't yours?